Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Page 55

Frjáls verslun - 01.07.1996, Page 55
Bjami Hákonarson, framkvæmdastjóri DHL-hraðflutn- ingafyrirtækisins sem styrkir núna úrvalsdeildina í körfubolta þriðja árið í röð. „Við teljum okkur hagnast mikið á þessu. Nafn okkar kemur stöðugt fyrir í sjón- varpi, útvarpi og í öðmm fjölmiðlum.“ fyrir sig, sést glögglega að íþróttafólk (eða þeir sem áhuga hafa á þeim) er svoh'tið sérstakur hópur. Hann hefur ákveðna eiginleika sem eru mjög vænlegir fyrir auglýs- endur. Það er erfitt að álykta hvað þetta er stór hópur, en hérna hefur verið skotið á að virkur hópur, sem fylgist vel með íþróttum, sé 15-20% af þjóðfélaginu. Ef við skoðum hvers konar hópur þetta er, þá er hann mjög virkur í þjóðfélaginu. Hann er að gera mjög mikið, í honum er ötult fólk sem er í íþróttum, þarf að kaupa sér græjur til þess að taka þátt í þeim, kaupir sér íþróttatíma og fer í líkamsræktarstöðvar. Þetta er yfirleitt fólk á besta aldri á annasamasta tíma lífsins og er að koma sér upp húsnæði. Hann er þess vegna sterkur markhópur, hávær, kröfuharður og eftirsóknarverður að sama skapi. Það er mjög algengt að fólk, sem er í markaðsstörfum, sé innan þessa sama hóps. Markaðsstjórar eru oft karlar á aldri sem passar mjög vel við íþróttahóp og þeir eru oft veikir fyrir því að taka þátt. Ekki má gleyma því að ímynd íþrótta er einnig mjög jákvæð. Það eru ekki mörg ár síðan menn áttuðu sig á því hvað íþróttafólk er sterkur neyslu- hópur. Sennilega verða markaðsmálin miklu tæknilegri hér á landi í framtíðinni. Til dæmis ef talað er um auglýsingar í Tugþrautarkappinn Dan O’Brien á ólympíuleikunum í Atlanta. Leikarnir voru sjónvarpsleikar og fengu ótrú- lega umfjöllun sem og þeir sem auglýstu þar. En skilar þetta auglýsingafé sér til baka? R í ÍÞRÓTTUM fyrirtæki að styðja íþróttir eða auglýsa á búningum liða og á íþróttavöllum? 55

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.