Frjáls verslun - 01.07.1996, Síða 66
Gullhamrar. Glæsilegur salur. slirevttur fyrir brúðkaupsveislu.
Gullhampar
Glæsilegur veislu- og fundarsalur í hjarta Reykjamkur
r
Húsi iðnaðarins við Hallveigarstíg, í hjarta borgarinn-
ar, er að ftnna Gullhamra, glæsilegan einkaveislusal
búinn íslenskum húsgögnum og myndum eftir ís-
lenska listamenn. Það er Veitingamaðurinn ehf. að Smiðju-
vegi 14, sem rekur Gullhamra, og var salurinn opnaður í
janúar 1995, að sögn Lúðvíks Th. Halldórssonar, eiganda
fyrirtækisins. Segja má að „ef góða veislu gjöra skal” þá
séu Gullhamrar kjörinn salur fyrir árshátíðir, þorrablót,
brúðkaup, afmæli og erfisdrykkjur eða fundi og ráðstefn-
ur. í ráði er að halda þar einnig vörukynningar á næstunni.
Salurinn tekur allt að 360 manns í sæti og séu haldin
svokölluð „standandi boð” rúmar hann um 500 manns.
Veisluþjónusta Veitingamannsins, sem Lúðvík hefur
rekið frá því árið 1990, sér um allar veitingar fyrir Gull-
hamra. Veitingamaðurinn flutti fyrir tveimur árum í hús-
næði sitt við Smiðjuveg og rekur þar eldhús, búið öllum
nýjustu tækjum. Veisluþjónustan þjónar ekki aðeins Gull-
hömrum heldur einnig öðrum viðskiptavinum og tekur að
sér að undirbúa hvers kyns veislur úti í bæ fyrir fyrirtæki,
sali og einstaklinga. Meðal stórverkefna Veitingamanns-
ins var rúmlega fimm þúsund manna tjaldveisla úti í ís-
lenskri náttúru á Þingvöllum á fimmtíu ára afmæli lýðveld-
isins 1994.
GLÆSILEGUR OG VEL BÚINN
SALUR
í Gullhömrum hafa verið haldnar ótaldar árshátíðir og
stórar veislur frá því salurinn var opnaður og hefur mönn-
um þótt vel tii takast, enda er húsnæðið í senn glæsilegt
og hlýlegt. Rauðir og bláir litir eru ríkjandi í salnum og
bólstraðir stólar með rauðu áklæði eru þægileg hægindi
fyrir veislugesti. í salnum er tíu metra bar og sömuleiðis
koníaksstofa, sem gefur honum gífurlega mikið gildi því
vilji gestir standa upp frá borðum geta þeir flutt sig í
koníaksstofuna, sest þar niður og spjallað saman í íslensk-
um sófum frá Desform en allar innréttingar og búnaður
eru íslensk hönnun og smíði. Á veggjum eru myndir eftir
Veisla í aðsigi og þau María Anna Gísladóttir, Jóna Sigríður Þor-
leifsdóttir, Lúðvík Halldórsson, Þóra Guðmundsdóttir og Ragnar
Bjömsson tilbúin í slaginn.
Svona mikilfenglega brúðkaupstertu sjá
menn eldd á hverjum degi. Enda veislan
engin önnur en brúðkaupsveisla Agústs
Gunnarssonar, bakarameistara í Boston, og