Frjáls verslun - 01.07.1996, Qupperneq 73
FÓLK
ERLA FRIÐRIKSDÓTTIR, KRINGLUNNI
Þótt Erla Friðriksdóttir sé kona eigi einsömul leysir hún
Einar I. Halldórsson núna af í hinu erilsama starfi fram-
kvæmdastjóra Kringlunnar. Erla er 27 ára, uppalin í
Stykkishólmi. Kringlan hélt upp á 9 ára afmæli sitt 13.
ágúst sl.
FJÖLBREYTNI í FYRIRRÚMI
Kringlan var opnuð þann
13. ágúst 1987 og hélt því
nýlega upp á 9 ára afmæli
sitt. Þar eru nú rekin um 90
fyrirtæki, þar af rúmlega 60
verslanir. Á þessum 9 árum
hafa nokkrar verslanir hætt
og aðrar komið í þeirra stað.
Allar slíkar breytingar fara
fyrir stjóm Kringlunnar sem
leggur áherslu á að sem fjöl-
breyttastur verslunarrekst-
ur sé stundaður í húsinu.
Meðal þess, sem Kringl-
an hefur boðið gestum sín-
um upp á, eru ýmsar list-
sýningar svo sem málverka-
sýningar og
ljósmyndasýningar. Sýning-
in „World press photo“ á
þar m.a. sinn fasta sess.
Þemadagar eru haldnir af og
til, t.d. sænskir, breskir og
amerískir dagar. Á vorin er
hægt að fá allt fyrir garðinn,
meira að segja sumarblóm,
og sérfræðingar í garðyrkju
gefa góð ráð. Síðast en ekki
síst má nefna Kringluköstin
víðfrægu þar sem hægt er
að gera hagstæð innkaup á
nýjum vörum. Bömin em
ekki undanskilin því þau fá
kameval á öskudag.
Kringlan er eina versl-
anamiðstöðin á landinu sem
býður upp á barnagæslu.
TEXTI: BRYNDÍS JÓNSDÓHIR MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR
erslunarhættir á ís-
landi breyttust með
tilkomu Kringlunn-
ar. Þeir, sem að henni
standa, hafa verið fremstir í
flokki þeirra, sem stunda
verslun og komið fram með
margar nýjungar, — segir
Erla Friðriksdóttir, fram-
kvæmdastjóri verslanamið-
stöðvarinnar Kringlunnar.
Erla er 27 ára gömul,
fædd í Reykjavík en uppalin í
Stykkishólmi. Hún lauk
stúdentsprófi frá Verslunar-
skóla íslands árið 1988 og
prófi í viðskiptafræðum frá
Háskóla íslands árið 1993.
Að námi loknu vann Erla á
skrifstofu Baldurs hf. í
Stykkishólmi þar til hún hóf
störf sem markaðasfulltrúi
Kringlunnar í september
1994. Hún gegnir starfi
framkvæmdastjóra meðan
Einar I. Halldórsson vinnur
að sameiningu Borgar-
kringlunnar og Kringlunnar.
Starfsemin heitir því
skemmtilega nafni „Ævin-
týra-Kringlan“ og þar geta
bömin fengið að hlusta á
sögur, syngja og teikna auk
þess sem stundum er boðið
upp á leiksýningar gegn
vægu gjaldi. Tvö þúsund
bílastæði standa viðskipta-
vinum Kringlunnar til boða
gjaldfrítt.
AÐTÍNADÚN
Starf Erlu er fyrst og
fremst fólgið í því að halda
utan um rekstur Kringlunn-
ar sem er ærið viðfangsefni
eins og nærri má geta.
„Þetta er mjög fjölbreytt og
skemmtilegt starf,“ segir
Erla, „þótt vissulega komi
það fyrir að taka þurfi á erf-
iðum málum.“ Auk Erlu
starfa tæplega 20 manns hjá
Kringlunni, m.a. markaðs-
fulltrúi, öryggisgæslustjóri
og tæknistjóri auk öryggis-
varða og ræstingafólks.
Meðan á náminu stóð
stofnaði Erla, ásamt fleir-
um, útflutningsfyrirtækið
íslenskur æðardúnn ehf.
Fyrirtækið kaupir dún af
bændum og selur hann
hreinsaðan úr landi, aðal-
lega til Japan. Erla áætlar að
þau flytji út um 176 af lands-
framleiðslunni. Það kemur
því ekki á óvart að eitt af
aðaláhugamálum Erlu er að
fara á sumrin út í Breiða-
fjarðareyjar og tína dún.
„Helst vildi ég vera þar sem
lengst,“ segir hún. Á vet-
uma segist hún stundum
skreppa á skíði og jóga er
einnig ofarlega á blaði. Sam-
býlismaður Erlu er Sigþór
Hallfreðsson iðnaðartækni-
fræðingur.
73