Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 5
EFNISYFIRLIT
40 Utflutningur á tónlist
ítarlegt viðtal við Steinar Berg ísleifsson, hjá Skífunni, um útflutning á íslenskri
tónlist. Steinar telur brýnt að tekjur af tónlistinni skili sér heim. Nýlega gerði
Skífan m.a. athyglisverðan samning ytra vegna Svölu Björgvinsdóttur söngkonu.
Forsíða: Hallgrímur Egilsson, útlitshönn-
uður Fijálsrar verslunar, hannaði forsiðuna
en myndir tók Geir Ólafsson ljósmyndari.
6 Leiðari
8 Kynning: Auglýsingakynning á skrifstofu-
húsgögnum frá Ikea.
18 Forsiðuefni: Umfangsmikil úttekt á kjör-
um sendiherra og sendiráðsfólks. Laun
sendiherra eru 261 þúsund á mánuði. Hins
vegar fá þeir skattfrjálsar staðaruppbætur
sem nema um 460 þúsund á mánuði að
jafnaði. Fróðleg lesning!
24 Fjármál: Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka, er gestapenni að þessu sinni.
Hann íjallar um nauðsyn þess að sameina
viðskiptabanka!
26 Nærmynd: Gunnar Örn Kristjánsson, for-
stjóri stærsta fyrirtækis á íslandi, er í fróð-
legri nærmynd. Samstarfsmenn hans segja
hann með stáltaugar.
28 Markaðsmál: Umfangsmikil úttekt á vöru-
merkjum og virði þeirra. Hvers virði eru
vörumerki og hvernig eru verðmæti þeirra
fundin út.
28 Hvers virði eru vörumerki?
Sérlega fróðleg umfjöllun
um vörumerki og virði
þeirra. Hvernig á að meta
virði þeirra og hvaða vinna
liggur að baki ímyndar
góðs vörumerkis? Coca
Cola er verðmætasta vöru-
merki í heimi.
26 Af grónum skipstjóraættum!
Gunnar Örn Kristjánsson, 44 ára, er ekki aðeins forstjóri SÍF heldur stærsta
fyrirtækis á íslandi. Hann er sagður með stáltaugar!
34 Kynning: Auglýsingakynning frá Ofna-
smiðjunni.
36 Viðtal: Þeir eru kraftmiklir feðgar norðan
heiða og reka ferðþjónustu, byggingatyrir-
tæki og veitingastaðinn Pizza 67.
40 Markaðsmál: Steinar Berg ísleifsson, hjá
Skífunni, vill útflutningsráð í tónlistariðnað-
inn! Hann telur verulega landvinninga ís-
lenskrar tónlistar fyrir hendi standi stjórn-
völd og tónlistarmenn rétt að málum. Og
hann vill að tekjurnar skili sér heim!
46 Hagfræði: Stórfróðleg grein Sigurðar Jó-
hannessonar hagfræðings um arðsemi
Fljótsdalsvirkjunar. í ljós kemur að um 13
milljarða króna tap verður af henni!
50 Kynning: Auglýsingakynning um Láns-
traust, en það er fýrirtæki sem miðlar Qár-
hagsupplýsingum á Netinu.
52 Fjölmiðlun: Arni Þór Vigfússon, sjón-
varpsstjóri á Skjá einum, er 23 ára eldhugi.
Hagnaðurinn af leikritinu Hellisbúanum
gaf honum byr undir báða vængi með sjón-
varpsstöðina nýju.
56 Viðtal: Hildur Halldórsdóttir, 34 ára líf-
fræðingur, fluttist vestur á Flateyri. Þar
ræktar hún japanska sveppinn shiitake við
góðar undirtektir.
58 Tískan: Er tískan að breytast í klæðaburði
forstjóra og ríkra ungra manna? Er nema
vona að spurt sé?
60 Kynning: Auglýsingakynning frá VISA ís-
landi. Þar á bæ eru margar fróðlegar nýj-
ungar.
62 Endurskoðun: Stefán Svavarsson fjallar
um alþjóðleg reikningsskil og þróun
þeirra.
65 Fólk.
5