Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 37
ram til þessa hafa feðgarnir sinnt
Sportferðum samhliða öðrum
störfum. Sveinn stundaði búskap á
Kálfsskinni um íjörtíu ára skeið uns hann
leigði búskapinn fyrir rúmu ári. Hann rak
einnig eigið byggingarfyrirtæki, Bygging-
arfyrirtækið Kötlu, sem eldri sonur hans,
Jón Ingi, rekur núna - en feðgarnir þrír eru
eigendurþess. Marinó og Jón Ingi eiga hlut
í veitingastaðnum Pizza 67 á Akureyri, en
Marinó sér um rekstur staðarins ásamt því
að sinna daglegum rekstri og markaðssetn-
ingu Sportferða. Það er því óhætt að segja
að feðgarnir séu athafnasamir en starf
þeirra að ferðamálum, sem nær mun lengra
aftur en að stofnun Sportferða 1994, hefur
verið þeirra annað aðalstarf.
Skemmtiferðir Fijáls verslun hitti Svein,
Jón Inga og Marinó á Ytri-Vík við Arskógs-
strönd en þar er upphaf þátttöku þeirra í
ferðaþjónustu. „Við teljum okkur vera á
góðri leið í ferðamálunum,“ segir Marinó í
upphafi spjallsins þegar athafnasemin er
borin undir þá feðga. „Við erum búnir að
vera lengi að, uppbyggingin hefur gengið
frekar hægt og misjafnar skoðanir hafa ver-
ið um það alla tið hvort við hefðum átt að
halda henni áfram eða ekki. Það er almennt
hæg uppbygging í ferðaþjónustu á Islandi,
nema maður hafi mikla peninga, og þá er
erfitt að fá - sérstaklega úti á landi. En við
erum hægt og örugglega að byggja upp
gott fyrirtæki á Norðurlandi í samvinnu við
marga aðila sem tengjast ferðaþjónustu. Við
erum fyrirtæki sem sinnir afþreyingarmál-
um fyrst og fremst en við teljum að hvatinn
fyrir því að ferðast sé að gera eitthvað
skemmtilegt, hvort sem það er að skoða og
njóta náttúrunnar eða takast á við hana á
annan hátt.“
Það var árið 1983 sem fjölskyldan á
Kálfsskinni ákvað að nýta eyðijörð í sinni
eigu, að Ytri-Vík, fyrir ferðaþjónustu. Þar
var sterkt og reisulegt hús sem tilvalið var
að lagfæra og bjóða upp á ódýra gistingu
fyrir ferðamenn. Sveinn talar um að í gamla
bænum á Ytri Vík hafi ekki verið hægt að
bjóða upp á nútíma þægindi, bað og snyrt-
ingu á hverju herbergi, þannig að íljótlega
hafi verið farið að huga að því að byggja bú-
staði á jörðinni svo fólk gæti þá líka verið út
af fyrir sig. Þetta hafi ljölskyldur og hópar
nýtt sér í vaxandi mæli í gegnum árin og
TEXTI: Halla Bára Gestsdóttír
MYNDIR: Gunnar Sverrisson
Pizza 67 á Akureyri. Jón Ingi og Marinó eiga hlut ífyrirtœkinu og sér Marinó um rekstur stað-
arins.
37