Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 20
Sigríður Snœvarr, sendiherra í París, er eina konan sem gegnirstarfi
sendiherra fyrir hönd Islands.
herra íslands erlendis, sem og annars sendiráðsfólks, eru ein-
göngu skattlögð hér á landi.
Skattfrelsi Af þessu er ljóst að möguleikar sendiherra til að
halda eftir góðum mánaðartekjum liggja í hinum skattfijálsu stað-
aruppbótum sem að jafnaði eru um 460 þúsund á mánuði hjá
sendiherra í hefðbundnu sendiráði í Evrópu. A móti kemur að
maki sendiherra fær ekki greidd laun þótt á honum hvíli augljós
vinna vegna starfsins ytra og auk þess getur hann þurft að segja
upp ágætlega launuðu starfi hérlendis við að flytja út og fórna
bæði starfsframa og lífeyrisréttindum hér heima fyrir vikið. Jafn-
framt kunna sendiherrar að þurfa að halda úti öðru heimili hér-
lendis vegna unglinga sem eru í mennta- eða framhaldsskólum
hér heima. Raunar mun það vera algengara en hitt að sendiherrar
reki tvö heimili, annað ytra og hitt hér heima.
Rikið greiðir á hinn bóginn 90% af skólagjöldum barna sendi-
ráðsfólks á grunnskólaaldri. Hins vegar geta þarna lika leynst
tekjumöguleikar sem felast í þvi að leigja út húsnæðið heima eða
einfaldlega selja það og nota andvirðið til ávöxtunar á verðbréfa-
markaði; kaupa hlutabréf.
Risnan Það mun vera meira en á mörkunum að risna upp á
um 50 til 150 þúsund á mánuði að jafnaði dugi sendiherrum fyr-
ir veislum og ýmsu öðru tengt móttökum og málsverðum.
Kvöldverður á góðu veitingahúsi erlendis kostar vart undir 5
þúsund krónum á mann. Bjóði sendiherra í tvær tólf manna
veislur á mánuði á veitingahúsi nemur kostnaðurinn 120 þús-
und krónum - og risnan farin þann mánuðinn. Því mun það vera
algengara en hitt að þeir greiði með sér varðandi veislur og
móttökur og skerða þeir því staðaruppbæturnar sem því nem-
ur. Færa þarf mjög nákvæmar risnuskýrslur um fjölda boða, há-
degisboð og kvöldverði, fjölda boðsgesta sem og tilgang boðs-
ins. Risnan telst hluti af rekstrarkostnaði sendiráða og henni er
ætlað að kosta samskipti við lykilmenn í stjórnmálalífi, atvinnu-
lífi og menningarlífi. Utanrikisráðuneytið fylgist með því að
risnunni sé ráðstafað til þeirra verkefna sem nauðsynleg eru
talin.
Annað sendiráðsfólk Laun annarra sendirráðsstarfsmanna
eru nokkru lægri en sendiherra. Þeir fá, eins og sendiherrar,
staðaruppbætur og frítt húsnæði, auk ýmissa annarra hlunninda.
Staðaruppbætur þeirra eru fast hlutfall af staðaruppbótum sendi-
herrans og skiptast þannig miðað við að sendiherrann sé með
100%: Sendifulltrúar fá 70%, eða um 322 þúsund á mánuði að jafn-
aði, sendiráðunautar 66%, eða um 303 þúsund á mánuði, sendi-
ráðsritarar 57%, eða um 262 þúsund á mánuði, sendiráðsfullrúi
45%, eða um 207 þúsund á mánuði, og almennur ritari fær 41%,
eða um 189 þúsund á mánuði. Staðaruppbætur annars sendiráðs-
fólks eru að sjálfsögðu skattfrjálsar, líkt og sendiherrans - og
geta nýst því til að auka tekjúmöguleika sína.
Annað sendiráðsfólk, fyrir utan almenna ritara, fær einnig
risnu - þó auðvitað langtum minni en sendirherrarnir, eða að
jafnaði á bilinu 15 til 40 þúsund krónur á mánuði. Ekki er um fast
hlutfall af risnu sendiherrans að ræða. Ljóst er t.d. að sendifull-
trúar og sendiráðunautar þurfa bæði að snæða og funda með
ýmsum gestum og starfsmönnum í atvinnulífinu ytra. Sömuleið-
is fá aðrir sendiráðsmenn frítt húsnæði og einn þriðja greiddan
Annað sendiráðsfólk
Annaö sendiráðsfólk íslands erlendis fær sömuleiðis skattfrjálsar staðaruppbætur, (þær eru hlutfall af staðaruppbót sendi-
herrans), risnu og frítt húsnæði. Það á einnig kost á að skipta við svonefndar tollvöruverslanir „bonded stores". Almennt
gildir að diplómatískir starfsmenn geti flutt inn vörur til þess lands sem þeir starfa í (nema íslands) án þess að greiða af
þeim opinber gjöld, eins og tolla eða skatta.
Skattfrjálsar staðaruppbætur
Möguleikar sendiherra til að halda eftir góðum mánaðartekjum liggja í hinum skattfrjálsu staðaruppbótum sem að jafnaði
eru um 460 þúsund á mánuði hjá sendiherra í hefðbundu sendiráði í Evrópu. Þetta eru eins konar fjölskyldutekjur því maki
sendiherra fær ekki greidd laun þótt á honum hvíli augljós vinna vegna starfsins ytra og hann fórni bæði starfsframa og líf-
eyrisréttindum hér heima fyrir vikið.
20