Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 15
Geir H.
Haarde fjármálaráðherra afhjúparhiö nýja m
Ný stjórn FVH. Neðri röð frá vinstri: Brynja Guðmundsdóttir, formaður
frœðslunefndar, Margrét Kr. Sigurðardóttir varaformaður, Margrét Þorsteins-
dóttir, framkvæmdastjóri FVH, og Margrét G. Flóvenz gjaldkeri. Efri röð frá
vinstri: Kristján Jóhannsson, formaður stjórnar FVH, Runólfur Smári Stein-
þórsson meðstjórnandi, Brandur Þór Ludwig, formaður ritnefndar, og Haf-
steinn Már Einarsson, formaður kjaranefndar.
0eir H. Haarde fjár-
málaráðherra af-
hjúpaði nýtt merki
Félags viðskiptaffæðinga og
hagfræðinga í móttöku sem
félagið hélt á dögunum.
Merkið er hannað af Hany
Hadaya, grafískum hönnuði
hjá auglýsingastofunni Yddu.
Með nýju merki vill stjórn fé-
lagsins endurspegla nýjar
áherslur og framtið-
arsýn í starfi félags-
ins við upphaf nýrrar
aldar. Á fundinum
kynnti Kristján Jó-
hannsson, formaður
FVH, nýja aðild fé-
lagsins að Nordisk
Civilokonomforbund, NCF, og
þýðingu þess fyrir félagið. Er-
lent samstarf á sviði endur-
menntunar er eitt nokkurra
mála sem félagið leggur
áherslu á. Þess má geta að ný
FV-mynd: Geir Ólafsson.
stjórn Félags viðskiptafræð-
inga og hagfræðinga var kosin
á síðasta aðalfundi félagsins. S5
Leiðrétting
au leiðu mistök
urðu í síðasta tölu-
blaði Frjálsrar versl-
unar, bókinni 100 stærstu,
að hagnaður Opinna kerfa
átti við eftir skatta en ekki
fyrir. Sagt var að hann væri
89 milljónir fyrir skatta. Hið
rétta er að hagnaður fyrir
tekju- og eignaskatt nam
119 milljónum, auk þess
sem söluhagnaður eigna
fyrir skatta nam um 26 millj-
ónum kr. Hagnaðurinn var
því 145 milljónir kr. fyrir
skatta en ekki 89 milljónir.
Þá var sagt að tap Radison
SAS Hótel Sögu hefði verið
60 milljónir. Hið rétta er að
samanlagt tap bæði Radison
SAS Hótel Sögu og Radison
SAS Hótel íslands, þ.e. sam-
stæðunnar, var 60 milljónir.
Þá nam sameiginleg velta
samstæðunnar, beggja hót-
elanna, um 1.040 milljónum
en velta beggja Flugleiða-
hótelanna nam 1.030 millj-
ónum. H3
Matra Nortel
símstöðvar
• Mikið úrval ISDN símstöðva
• Allt frá 4 upp í 12.000 innanhússnúmer
• Netkerfistengingar mögulegar milli allra
Matra Nortel símstöðva
• Sami hugbúnaður í öllum símstöðvunum
• Fjölbreyttir möguleikar t.d. beint innval,
talhólf, sjálfvirk svörun, tölvutengingar,
þráðlausar lausnir o.fl.
• Þráðlaus símtæki með titrarahringingu,
og tengingu við heyrnartól
• Símstöðvar sem tryggja samskipti komandi kynslóða,
frá einum stærsta framleiðanda símkerfa í heiminum
N I
MATRA
Lágmúla 8 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2810
www.ormsson.is
COMMUNICATIONS
i
15