Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 59
ið frá einum tíma til annars þótt nú beri meira
á því að ungir menn í viðskiptalífinu hugi
meira að öðrum tískustraumum. Arkitektar
geta leyft sér að blanda saman litum og sleppa
bindi, klæðast fallegum bolum og skyrtum. Fé-
lagsráðgjafar nýta sér gjarnan hnepptar jakka-
peysur við stakar buxur. Flestir háskólapró-
fessorar ganga í flauelsbuxum, bolum og stök-
um jökkum - nema í viðskiptadeildinni, þar
ganga þeir í jakkafötum. Verðbréfasalar klæð-
ast venjulega dökkum buxum og blárri skyrtu
og stundum rauðum axlaböndum. Kennarar
eru lausir við einhverja sérstaka ímynd og
klæða sig mjög misjafnlega.
Jakkafatalínan lögð til hliðar Anna F. Gunn-
arsdóttir útlitssérfræðingur segir að nýir tísku-
straumar stuðli að því að ungir menn í við-
skiptalífinu séu smám saman að verða kæru-
lausari í klæðnaði og meiri töffarar í útliti en
áður. „Þeir eru æ meira að leggja hina klass-
ísku jakkafatalínu til hliðar og brydda upp á nýjungum, kaupa ný
snið í jakkafötum og fýlgjast með ímynd sinni og útliti - eða
hreinlega að vanrækja það.“ Hún segir að bindi sé ekki lengur
nauðsynlegt í viðskiptalífinu enda sé það hálf hjákátlegt við jakka
með kínakraga. Núna vilja ungir menn í viðskiptalífinu klæðast
samlitum fötum; svörtum, gráum eða dökkbláum. „Einfalt og
klikkar varla,“ segir
Anna.
En hvernig met-
ur Anna hinn ófor-
stjóralega klæða-
burð ijórmenning-
anna á blaðamanna-
fundinum í Lækjar-
brekku þar sem
þeir greindu frá
einhverjum mestu
einstöku hluta-
bréfaviðskiptum á
Islandi og hverjir
stæðu að Orcunni.
Hún telur raunar að með klæðaburði sínum hafi þeir verið að til-
kynna vald sitt og ríkidæmi. „Með útlití sínu og klæðaburði gáfu
þeir í skyn að þeir væru sjálfstæðir, hvergi smeykir og gerðu það
sem þeim sýndist."
JÓn Asgeir „Forstjóri Baugs er mjög nýtískulegur og fylgist
vel með. Það er fremur strákaleg sportlína sem hann fylgir. Gler-
augun eru góð og fara honum vel. Hann virkar töff. Það er ekki
venja í viðskiptum að klæðast leðurjakka því að honum fylgir
alltaf ákveðið kæruleysi og ógnun. Með útliti sínu er Jón Ásgeir
eiginlega að sýna að honum sé nákvæmlega sama um það hvað
tast?
Scandinavian Holding í
útlitssérfrædingur rýnir
í vidskiptalífinu!
Anna F. Gunnarsdóttir rekur ráðgjöfina Anna og útlitið og ráðleggur starfsmönnum fyr-
irtækja um útlit og framkomu. Hún rýnir hér í klœðaburð fiórmenninganna í Orcunni á
blaðamannafúndinum sem þeir héldufyrr í haust. Þetta var enginn venjulegurfundur. Til
umræðu voru einhver mestu einstöku hlutabréfaviðskipti í íslensku viðskiptalífi til þessa.
aðrir segja. Hann fýlgist með tískunni, er til dæmis í öllu dökku.
En hann klárar ekki dæmið og nær ekki að vera nógu stílhreinn.
Hann mætti vera fágaðri í klæðaburði. Það hefði verið skemmti-
legra að sjá hann í gráum tónum á móti svarta leðurjakkanum.
Þá hefði verið örlítið léttara yfirbragð yfir honum. Svo fmnst mér
að hann hefði mátt raka sig og hárlínan hefði mátt vera stíl-
hreinni.“
Þorsteinn iviár „Blátt er tákn heiðarleikans. Það vantar meiri
tísku í útlit hans. Hann hefði mátt raka sig og svo ber óhneppt
efsta tala á skyrtu alltaf vott um kæruleysi. Klippingin á Þorsteini
Má er allt í lagi en það mætti alveg útfæra hana betur og fá meiri
stíl í hana.“
JÓn ÚlafSSOn ,Jón fylgist greinilega vel með. Hann er í dökkum
fötum og sniðið á jakkanum er nýtt. Jakkinn er klassískur og finn.
Eins og hjá Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má endurspeglar klæðaburð-
ur hans visst kæruleysi. Gleraugun eru í lagi og fylgja vel auga-
brúnunum en það mættí gera hann reffilegri með öðru lagi á gler-
augunum. Það er í sjálfu sér í góðu lagi að velja skyrtu sem ekki
krefst bindis en bæði Þorsteinn Már og Jón eru í skyrtum sem
kalla á bindi. Jón er sá eini í hópnum sem ekki er órakaður.“
Eyjólfur „Bindið fer vel með skyrtunni og jakkanum. Gleraug-
un eru góð og ganga alveg upp. Mér sýnist að hann ættí að velja
steingrátt eða dökkblátt ffekar en svart. Svart gerir hann svolít-
ið þreytulegan. Hann mætti raka sig. Hárið á honum fylgir ágæt-
lega nýju læknalínunni í Bráðavaktinni, þetta er þessi Clooney-
greiðsla. Eins og sést á hneppingunni er nýtt snið á jakkanum.
Það er alltaf gott að vera í jakka þegar maður fer á blaðamanna-
íund. Því meira sem maður byggir upp öxlina þeim mun meira
vald hefur maður.“ m
Flestir háskólaprófessorar ganga í flauelsbuxum, bolum og stökum jökkum
nema I viðskiptadeildinni, þar er meira um að þeir gangi í jakkafötum.
Fálagsráðgjafar nýta sér gjarnan hnepptar jakkapeysur við stakar buxur.
59