Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 31

Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 31
Vörumerki SIF er Islandia, merkisem erfyrirtækinu afarmikils virði á erlendum mörkuðum. Það táknar gæði oggóðan fisk frá Islandi. Geir H. Haarde fjármálaráðherra afhjúpaði nýtt merki Félags við- skiptafrœðinga og hagfræðinga á dögunum. Hvers virði erpað merki? öllu til skila voru gerðar heilmiklar breytingar á útliti. Helsta breyt- ingin fólst í samræmingu. Nú kemur bankinn fram sem ein stór heild og allir þjónustuþættír eru kynntír undir sama hatti - en þó með ólíkum áherslum eftir þjónustuþáttum og markhópum. Ein- sktaklingsþjónustan er nú sett fram á mun persónlulegri hátt en t.d. þjónusta við fyrirtæki þótt stefnan þar sé engu að síður á mann- legu nótunum. Utlitið er lýsandi fyrir stórfyrirtæki en efnið í aug- lýsingunum telst aftur á móti lýsandi fyrir persónulega reynslu og viðmið. I einblöðungum og bæklingum höfum við notað myndir úr hversdagslífi fólks og viljum þannig segja fólki að með því að láta bankann sem mest um íjármálin hafi það meiri tími fyrir lífið sjálft.“ Flugleiðir breyta um svip Nýlega var merki Flugleiða breytt, það gert nútímalegra og mýkra. Fleiri breytingar hafa átt sér stað og miða þær að því að styrkja ímynd fyrirtækisins og skapa því sérstöðu. Vegna breyttra áherslna í starfsemi og rekstri Flugleiða var talið nauðsynlegt að byggja upp sterkari ímynd meðal við- skiptavina, ekki síst á alþjóðamarkaði, og einn þáttur í þvi var að breyta útlitinu. Flugleiðir leituðu til Interbrand Newell & Sorreil í Amsterdam og Islensku Auglýsingastofunnar eftir tillögum, en sérstök deild innan fyrirtækisins hefiir séð um vinnuna innan- húss. „Þessar breytingar eru aðeins einn hluti af mun umfangsmeiri vinnu þar sem unnið er í takt við kjarnagildi okkar - sem voru ákveðin eftir markaðsrannsóknir á meðal viðskiptavina og vinnu með starfsmönnum félags- ins,“ segir Helgi Björnsson, forstöðumaður vöru- merkjastjórnunar Flugleiða. „Tilgangurinn var að komast að því hvað fyrirtæk- ið vildi og ætti að standa fyrir - og hvernig það gæti skapað sér sérstöðu. I kjölfarið hefur verið unnið að breytingum á þjónustu og vinnuferli og viljum við þannig styrkja ímynd okkar, sérstaklega á alþjóða- markaði og gera okkur þekktari meðal væntanlegra viðskiptavina. Utlitsbreytingar koma þessu á fram- færi út á við en skapa líka sameiningartákn fyrir starfsmenn. Að endingu er tilgangur þessara breyt- inga, sem og annarra aðgerða okkar, að auka tekjurn- ar og hagnaðinn.“ Gylltir vængir En hvaða áhætta fylgir þvi að breyta svo rótgrónu og þekktu merki? „Hún er ekki svo mikil þar sem nýja merkið er þróað út frá eldra merkinu og heldur nauðsynlegri tengingu við það. Nýja merkið byggist upp á þremur þáttum: Nafninu sjálfu, gylltum vængjum og litum þeim sem notaðir eru. Stafagerð hefur verið gerð nútímalegri og áhersla er lögð á grunnliti fyrirtækisins. Djúp- blái liturinn táknar gæði og hefur sterka norræna vísun en gyllti liturinn minnir á roðagyllt íslenskt sólarlag. Vængjunum hefur nú verið breytt til að gefa betur til kynna hreyfingu og kraft.“ Kostur merkisins „Vörumerki er gott og mikils virði ef það sér- kennir fyrirtækið, styrkir ímynd þess og eykur tekjur. Sérstaklega er mikilvægt að merkið sé þekkt, tákni ákveðna, eftirsóknarverða þætti og auki virði fyrirtækisins og þjónustu þess í augum við- skiptavina. Sterkt merki er sá þáttur sem hvað sterkast sérkennir fyrirtæki og erfiðast er að líkja eftir,“ segir Helgi. 33 Kostir vörumerkja „Vörumerki er gott og mikils virði ef það sérkennir fyrirtæk- ið, styrkir ímynd þess og eykur tekjur. Sérstaklega er mikil- vægt að merkið sé þekkt, tákni ákveðna, eftirsóknarverða þætti og auki virði fyrirtækisins og þjónustu þess í augum viðskiptavina. Sterkt merki er sá þáttur sem hvað sterkast sérkennir fyrirtæki og erfiðast er að líkja eftir.“ - Helgi Björnsson, forstöðumaður vörumerkjastjórnunar Flugleiða. Þar getur þú reiknað út kostnað út frá þínum eigin forsendum. Upplýsingar í síma 580 1090. PÓSTURINN www.postur.is/fjolpostur 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.