Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 35
fyrirkomulagi," segir
Jón. „Benda má á aö
hefði verið notað
hefðbundið kerfi þar
sem brettarekkarnir
sitja á gólfi hefði ein-
ungis skapast rými
fyrir um 290 bretti.
Nýting geymslurým-
isins tvöfaldaðist því
við það að setja upp
brettakerfið frá Ofna-
smiðjunni. En fyrir-
tækinu hefur ekki að-
eins tekist að upp-
fylla kröfur MSB
heldur margra ann-
arra viðskiptavina
hérlendis með að-
stoð og f samvinnu
við Constructor
Group. Meðal fyrir-
tækja sem hafa notfært sér hillulausnir Ofnasmiðjunnar má nefna
Brimborg, P.Samúelsson, Frigg og Málningu."
Varahlutir í rekkum frá Ofnasmibjunni hjá
jýrirtækinu P. Samúelssyni.
Hillurnar nýtast
ekki
eingöngu undir
hefðbundnar lagervörur, heldur bækur og
möþpur eins og hér sést hja fynrtœkin
Genealogia Islandorum.
Hefðbundnir brettarekkar.
Paternoster - lausnin fyrir
smávöruna
Vandamál skapast ekki ein-
göngu vegna geymslu á fyrir-
ferðamiklum vörum á brettum
heldur einnig vegna smávöru á
borð við bolta, rær eða ýmiss konar smávarahluti. Ofnasmiðjan
býður plastskúffur frá hinu þekkta sænska fyrirtæki Perstorp, og
að sjálfsögðu hillukerfi frá Constructor Group, sem í sameiningu
geta leyst slík vandamál. Nýjasta dæmið um geymslulausn, sem
Ofnasmiðjan kom með hugmynd að í samstarfi við kaupanda, er
hjá hinu framsækna fyrirtæki Dælur. Þar þurfti að finna hagan-
lega lausn á því hvernig best væri að geyma varahlutalagar fyrirtæk-
isins.
Ofnasmiðjan bauð upp á sjálfvirkt hillukerfi, Paternoster, sem sér
um að koma vörunni til starfsmannsins sem þarf að sækja hana. f
fáum orðum má segja að Paternoster-lausnin hjá Dælum sé eins kon-
ar færiband sem vinnur lóðrétt en ekki lárétt en á færibandið eru
hengdar hillur eða skúffur. Færibandið er byggt inn í 4,7 metra háan
turn sem hýsir 108,3 hillumetra. Gólfflöturinn.sem turninn sjálfur
stendur á, er ekki nema 7,5 fermetrar. Kerfið er tölvustýrt og ekki þarf
að kunna mikið fyrir
sér varðandi tölvur
til þess að geta
stjórnað því. Starfs-
maðurinn slær ein-
ungis inn á Pa-
ternoster-stjórnborð-
ið númer hillunnar þar
sem varan er geymd
og fyrr en varir er hún
komin á áfangastað.
Jón Rafn segir að
þetta kerfi spari gífur-
legan tlma og fyrirhöfn
og henti alls staðar þar
sem mikið sé af smá-
vörum sem ná þurfi til
með skjótum hætti. Paternoster frá Constructor Group er einnig í notk-
un í Bílanaust, svo dæmi sé tekið. Þar er kerfið notað til að halda utan
um fjöldann allan af smávarahlutum sem verður að vera hægt að ná
fljótt og örugglega.
Öll tilboðsvinna og sala á hillukerfum og lagerlausnum styðst við
hinn norræna INSTA staðal fyrir hillukerfi en það er sá staðall sem far-
ið er eftir hérlendis. Staðallinn er mjög strangur og Constructor Group
leggur áherslu á að uppfylla allar kröfur sem hann gerir og gott
betur. Einnig eru hillukerfin og lagerlausnirnar í samræmi við
annan þekktan staðal, „German Standard" eða GS.
„Óhætt er að fullyrða að Paternoster hillukerfið og „Mobile
rack" brettakerfið, sem Hf. Ofnasmiðjan býður viðskiptavinum
sínum, eykur ekki aðeins nýtingu geymslurýmis heldur eru þetta
lausnir sem spara mönnum sporin og flýta fyrir allri afgreiðslu og
tilfærslu á vörum nú þegar tíminn skiptir miklu máli í öllum við-
skiptum," segir Jón Rafn Valdi-
marsson, deildarstjóri innrétt-
ingadeildar Hf. Ofnasmiðjunn-
ar í Reykjavík. 53
... og um leið jjölda bretta í birgðageymslu
með brettarekkum á vögnum.
®?0fnasmiðjan
Háteigsvegi 7- 105 Reykjavík
Sími 511 1100 - Fax 511 1110
m
35