Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 16
FRÉTTIR
Myndir úr frægurn vísindaleiðangri viðskiptafrœðinema til Akureyrar árið 1973
voru látnar ganga og vöktu mikla kátínu - enda erfitt að þekkja flesta. Frá
vinstri: Helgi Magnússon, frkvstj. Hörþu, Magnús Hreggviðsson, stjórnarformað-
urFróða, Valtýr Hreiðarsson, frkstj. Verðlagsstofu skiþtaverðs á Akureyri, ogjúl-
íus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja.
FV-myndir: Geir Olafsson.
Gunnlaugur Sigmundsson, forstjóri Kögunar og fyrrv.
alþingismaður, og Gunnar Olafssonjrkvstj. hjá tölvufyr-
irtækinu Króli.
Komu saman eftir 25 ár
0ýlega voru skemmti-
legir endurfundir hjá
viðskiptafræðingum
sem hófu nám í viðskipta-
deild haustið 1970, eða út-
skrifuðust fyrir 25 árum. Einn
úr hópnum, Tryggvi Pálsson,
framkvæmdastjóri hjá Is-
landsbanka, bauð gömlu
skólafélögum sínum í eins
Tryggvi Pálsson, framkvœmdastjóri Is-
landsbanka, bauð gömlu félögunum sín-
um úr viðskiþtadeildinni í vísindaleið-
angur í Islandsbanka og kynnti starfsemi
bankans stuttlega.
konar vísindaleiðangur i ís-
landsbanka í tilefni tímamót-
anna þar sem starfsemi
bankans var kynnt stuttlega.
Eins og gefur að skilja var
glatt á hjalla þegar gamlar
gleðistundir úr viðskipta-
deildinni voru riflaðar upp.
Myndir, sem teknar voru úr
vísindaleiðangri viðskipta-
fræðinema til Akur-
eyrar árið 1973, vöktu
meðal annars mikla
kátínu. Þar héldu þeir
ráðstefnu um sam-
vinnuhreyfinguna og
sátu hana helstu for-
kólfar hennar, eins og
Erlendur Einarsson,
þá forstjóri Sambands-
ins, og Valur Arnþórs-
son, þá kaupfélags-
stjóri KEA. Skipst var
hressilega á skoðun-
um um framtíð sam-
vinnuhreyfingarinnar.
Margir þekktir menn
úr viðskiptalífinu voru
í þessum árgangi. Auk
Tryggva má nefna
menn eins og Guð-
mund Hauksson,
sparisjóðsstjóra
Spron, Þórð Magnús-
son, framkvæmdastjóra hjá
Eimskip, Friðrik Pálsson,
stjórnarformann SÍF, Jón Ás-
bergsson, framkvæmdastjóra
Útflutningsráðs, og auðvitað
svo þá sem við birtum með-
fylgjandi myndir af. 33
Sveinn Hannesson, frkvstj. Samtaka iðnaðarins, Valtýr Hreiðars-
son, frkvstj. Verðalagsstofu skiþtaverðs á Akureyri, og Kristján Aðal-
steinsson, fjármálastjóri Máls og menningar.
16