Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN
Sigur forsætisráðherra
Sala ríkisins á 51% hlut í FBA til 26 flárfesta fyrir um 9,7
milljarða króna eru stórtíðindi á íslenskum flármála-
markaði. FBA-málið og upphlaup forsætisráðherra í
garð Kaupþings og Orcu-hópsins hefiir þvælst svo fyrir
mönnum að ljárfestar á verðbréfamarkaðnum anda
núna stórum léttar. Flestir eru á því að salan á FBA hafi
fengið farsælar lyktir miðað við það sem á undan var
gengið þótt sparisjóðirnir hljóti að vera vonsviknir. Full-
yrða má að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi haft
fullnaðarsigur í málinu þótt sá sigur hafi staðið tæpt þvi
lengi vel leit út fyrir að útboðið mistækist; að enginn
tæki þátt í því. Það er ekki orðum aukið að halda því
fram að forsætisráðherra hafi selt bankann. Hann var mjög upplýstur
um málið allan tímann og gaf grænt ljós á myndun kaupendahópsins.
Þátttökutilkynning Orcu-hópsins, en á honum var kaupendalisti, var
sendur inn föstudaginn 22. október og tók miklum breytingum á þeirri
viku sem menn höfðu til „lagfæringa" á hópnum, eða til fóstudagsins 29.
október. Þannig liggur fyrir að kaup Iifeyrissjóðs verslunarmanna og
Ufeyrissjóðs Framsýnar á yfir 2 milljarða hlut þeirra í bankanum voru
ekki samþykkt fyrr en á allra síðustu stundu, eða um viku eftir að Orcu-
listinn var fyrst sendur inn. I Framsýn voru nokkur átök um málið og
innan lifeyrissjóðs verslunarmanna var áður búið að hafna kaupunum,
m.a. vegna þess að gengi bréfanna, 2,80, þótti of hátt Engu að síður voru
kaupin keyrð í gegn af hálfu þeirra Víglundar Þorsteinssonar, formanns
Lifeyrissjóðs verslunarmanna, Þorgeirs Eyjólfssonar, framkvæmda-
stjóra sjóðsins, og Guðmundar H. Garðarssonar stjórnarmanns. Það var
mikill þrýstingur í málinu, eins og það hefur verið orðað.
JÓn tekinn í Sátt Það vekur athygli að forsætisráðherra samþykkir
kaupendahópinn með Orcu-menn innanborðs, en þar er Jón Olafsson í
Skífunni einn fjögurra forystusauða. Davið virðist þvi hafa tekið Jón
Olafsson í sátt Það kemur á óvart miðað við öll þau stóru orð sem hann
lét falla í garð sparisjóðanna og Kaupþings fyrir að hafa selt Orcu-hópn-
um 26,5% hlut í FBA og gert leynisamning í leiðinni um að sameina
Kaupþing og FBA Hamfarir forsætisráðherra gegn Kaupþingi vegna
einfaldra hlutabréfaviðskipta á ftjálsum markaði eru al-
gert einsdæmi. Eflaust klóra Kaupþingsmenn sér núna
í kollinum og spyija hvers vegna það sé í lagi að Davíð
selji Orcu-mönnum hlut í FBA en ekki þeir!? En sigur
forsætisráðherra í sölu bankans er svo afgerandi að
honum hefur meira að segja tekist að leysa Orcu-hóp-
inn upp í frumeindir sínar. Hópurinn, sem samanstóð af
fylkingum Jóns Olafssonar, Eyjólfs Sveinssonar, Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og Þorsteins Más Baldvinsson-
ar, átti orðið um 28% í bankanum, en kemur framvegis
ekki fram sem ein heild. A móti má spyija hvernig hægt
verði að spyrna við samvinnu hluthafa á hluthafafund-
um í eitt skipti fyrir öll. Þá vekur það athygli að fjórir af æðstu stjórn-
endum FBA, með Bjarna Ármannsson, forstjóra FBA, í fararbroddi,
eru á kaupendalistanum. Bjarni seldi bróðurpartinn af hlut sínum í
FBA þegar Orcu-málið reis sem hæst, ásamt öðrum helstu stjórnend-
um bankans. Ljóst er að Bjarni og Orcu-menn hafa sæst - og raunar
mun það vera einn af vendipunktunum við myndun kaupendahópsins
og að lífeyrissjóðirnir fengust inn í hann á lokaspretti.
Kaupir FBA Kaupþing? Innan kaupendahópsins er núna haft á orði
að FBA hyggist kaupa Kaupþing. Það þarf ekki að vera svo ótrúverð-
ugt, þótt auðvitað þurfi tvo til við kaup og sölu. Sparisjóðirnir hafa ver-
ið að tvístrast örlítið. Þannig hefur Sparisjóður Hafharfiarðar opnað
glæsilega verðbréfastofu á þremur hæðum í Kringlunni. Þá er Spron
með eigin verðbréfastofu og Sparisjóður vélstjóra með eigin
verðbréfamiðlun. Til hvers þá að eiga Kaupþing saman? Fróðlegt verð-
ur að sjá hveijir setjast í stjórn FBA, þ.e. stýra bankanum, eftir sölu rík-
isins á honum. Ymsir telja að stjórnarmenn komi ekki úr nýja hluthafa-
hópnum heldur verði einhveijir „valinkunnir heiðursmenn" í viðskipta-
lifinu fengnir til að taka þar sæti.
FBA-farsinn hefur fengið farsælar fyktir. Hann þvælist ekki lengur
fyrir. Með útboðinu bauð Davíð upp í dans - og náði óvæntum snúningi
í málinu.
Jón G. Hauksson
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskiþta-, efnahags- og atvinnumál - 61. ár
Sjöfh Geir Ólafsson Kristín Hallgrímur
Sigurgeirsdóttir Ijósmyndari Bogadóttir Egilsson
auglýsingastjóri Ijósmyndari útlitsteiknari
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson
LJÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir
UMBROT: Ágústa Ragnarsdóttir
ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf.
ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-11. tbl. -10% lægra áskriftarverð ef greitt er með
kredilkorti
LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,-
DREIFING: Talnakönnun, hf., sími 561 7575
FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf.
LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 561 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@talnakonnun.is ISSN 1017-3544
6