Frjáls verslun - 01.11.1999, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGAR
Surnar auglýsingar vekja meiri athygli en aðrar -
og sum andlit í auglýsingum eru minnisstœðari en
/
önnur. A árinu brá mörgum eftirminnilegum and-
litumfyrir í auglýsingum. Við birtum hér nokkur
þeirra til að rijja upp auglýsingaárið 1999.
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
En eiga andlit að vera þekkt eða ekki? Þac
skoðanir um það hvort þekkt fólk er til góð
um eða ekki. Sumir hönnuðir telja alls ek
nota andlit sem allir þekkja, það orsaki einfak
muni eftir viðkomandi persónu en ekki því sen
auglýsa. Til eru þeir sem verða frægir af því
leika í auglýsingum og sjálfsagt er eitt besta
dæmið um það dönsku bjórgæjarnir, Soren og
Ties sem Gott fólk gerði fræga með Thule
auglýsingunum.
Máttur fjöldans Oftast er um að ræða einn
þekktan aðila í hverri auglýsingu en stundum
eru mörg andlit notuð og þá helst í kynningar-
eða styrktarskyni við eitt eða annað. Ein
þekktasta auglýsing seinni tíma af því taginu er
vafalítið auglýsing Mjólkursamsölunnar, ís-
lenska er okkar mál, sem Hvíta húsið hannaði
árið 1997. Þar komu fram hvorki fleiri né færri en 600 andlit
þekktra persóna sem látin voru mynda andlit Jóns Sigurðs-
sonar, manns árþúsundsins, hugsanlega er það heimsmet, að
minnsta kosti ef miðað er við höfðatölu. Þess má geta til gam-
ans að nöfn allra þáttakenda eru á bakhlið plakatsins sem
gert var og þegar þetta var unnið, þá var það gert handvirkt,
þ.e. andlitunum var raðað eftir auganu því ekki var til forrit
Þetta andlit
merkir aðeins eitt; Rúbín kaffi-
og Ties eru óþekktir í Danmörku, en „heimsfrœgir“ á íslandi.
sem gerði það sjálfvirkt eins
og nú er komið.
Önnur þekkt auglýsing var
unnin af Auk fyrir Tóbaks-
varnarnefnd og þar koma
fram þekktir einstaklingar
sem segja sína skoðun á
reykingum eða öllu heldur á
móti reykingum. Undir
sama merki, X reyklaus, hét önnur auglýsing
í sömu herferð en hún var gerð í miðri kosningabaráttunni í
vor og þar komu fram andstæðingar í pólitík sem sýndu að
þeir gætu verið sammála um eitt mál; reykleysi.
flftur til tortíðar Einnig þekkist að nota gamla kunningja,
fólk sem frægt hefur orðið fyrir eitthvað eða gert garðinn
frægan á árum áður. Gleðibankinn, auglýsing sem gerð var af
Hvíta húsinu, byggir á þeirri hugmynd. Þar er Gleðibankans
minnst, lagsins sem frægt varð 1986 og tók þátt í
Söngvakeppni Evrópusjónvarpsstöðva en bankinn er nú raun-
verulegur banki. Gleðibankinn er notaður sem bakgrunnur
fyrir skilaboð um hátæknibanka dagsins í dag, netbanka
íslandsbanka. Þau höfðu öll húmor fyrir þessu létta gríni.
Pálmi Gunnarson, Helga Möller og Eiríkur Hauksson tóku
fullan þátt í atriðinu, Gleðibankanum, og sami leikstjóri stýrði
þessum þætti og upptökunni 1986, Egill Eðvarðsson.
En hver eru andlit ársins 1999? Eftir samtöl við auglýsinga-
stofurnar innan SÍA kom í ljós að óvenjulega lítið var notað af
þekktum andlitum á þessu ári og sumar stofurnar höfðu not-
að afar fá andlit. Sjálfsagt er það einber tilviljun en þó má sjá
nokkur þekkt andlit á myndunum og kannski tengja þau á
einn eða annan veg við vörurnar eða þjónustuna sem auglýst
er. Að minnsta kosti er erfitt að hugsa um Tal án þess að sjá
þá Tvíhöfða menn fyrir sér eða Stein Ármann Magnússon
þegar SS-pylsur ber á góma. 33
30