Frjáls verslun - 01.11.1999, Blaðsíða 41
S24, eitt þriggja nýrra sviða SPH, er til húsa í Kringlunni. Á hœðinni fyrir ofan sölustaðinn er Netkaffi S24 þar sem fólk getur sinnt bankavið-
skiþtum sínum á Netinu.
rekstrarþætti. Áhættustýring ber ábyrgö á peningalegum eignum Spari-
sjóðsins, annast rekstur og uppgjör fullnustueigna og stjórnar samsetn-
ingu eigna og skulda. Þriðja stuðningssviðið, Þróun, ber ábyrgð á starfs-
mannastjórn, menntun og þjálfun starfsfólks, gæðamálum og þróunar-
starfi tengdu nýjungum í markaðsmálum.
Alhliða fjármálafyrirtækí
„Við teljum að með þessu skipulagi og hinum nýju sviðum sé Spari-
sjóðurinn orðinn alhliða fjármálafyrirtæki sem býr yfir mikilli þekkingu
og býður upp á alla þá fjármálaþjónustu sem almennt er í boði á mark-
aðnum; einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og stofnanafjárfestum.
Það er ekki aðeins vaxtamunur og hlutfallsleg almenn tekjulækkun hjá
fjármálastofnunum sem hefur valdið því að Sparisjóðurinn ákvað að
breyta starfsemi sinni á þennan hátt. Aðrir þættir koma einnig til.
Þannig má nefna að hefðbundin innlán hafa vaxið hægt hjá sparisjóð-
um og bönkum á síðustu árum en sparnaður í formi verðbréfaeignar hef-
ur vaxið ört. í Ijósi þess að fjárfestingar færast jafnt og þétt yfir í hluta-
bréf og skuldabréf, innlend sem erlend, urðum við að breyta skipulagi
og starfsemi í þessa veru."
Að sögn sparisjóðsstjóranna hefur efnahagsreikningur Sparisjóðs
Hafnarfjarðar stækkað frá þvf ákvörðun um breytingar var tekin fyrir
tveimur árum. Um leið hefur starfsmönnum fjölgað sem stafar að sjálf-
sögðu af auknum umsvifum og nýjum starfssviðum. Starfsmenn voru
fyrir rúmum tveimur árum um 70 talsins en eru nú rúmlega eitt hundrað.
Frá árslokum 1997 og fram til miðs árs 1999 hefur efnahagsreikning-
urinn nær tvöfaldast, farið úr tæpum 10 milljörðum í 18 milljarða um
mitt árið 1999. „Aukningin á rætur að rekja til aukinna útlána og þess
að við höfum aukið hlut okkar f markaðsskuldabréfum og hlutabréfum,
bæði innlendum og erlendum," segir Jónas Reynisson sparisjóðsstjóri.
,nnum SPH í Stóra turni Kringlunnar. Þar eru SPH Fyrir-
AUGLÝSINGAKYNNING
41