Frjáls verslun - 01.11.1999, Blaðsíða 72
NETIÐ
kostur væri. Þetta er ein leið til að auka
gagnvirkni hans. Annað markmið er að
slytta þann tírna sem fer í það hjá við-
skiptavinum að velja sér vörur, svo sem
bíla. Þess vegna er söluskrá notaðra bíla
endurskoðuð 12 sinnum á sólarhring og
leitarvélin á þeim vef er mjög einföld í
notkun. Með notkun hennar getur við-
skiptavinurinn valið sér notaðan bíl á
vefnum og síðan heimsótt íyrirtækið til
þess að skoða hann nánar og eða ganga
frá kaupum."
Utlit vefsins skiptir miklu máli, að
mati Sigfúsar. „Utlit, nota- og skemmt-
anagildi þarf að haldast í hendur og bið-
tími eftir síðum má ekki vera of langur.
Það þarf helst eitthvað að gerast á síð-
unni á meðan hún er að hlaðast upp.
Þess vegna notum við meðal annars
flash-tæknina jafn mikið og raun ber
Notaðu
lofthœðina
með
hillukerfi
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SUNDABORG 1 SÍMI: 568 3300
I www.straumur.is I
Að opna vef
l
1. Markmið og tilgangur.
2. Hvað á að vera á vefnum?
3. Skipulag.
4. Útlit.
5. Fé til að halda vefnum við.
vitni og „Bjölluveíurinn" sem við létum
hanna fyrir okkur er dæmi um þessa
tækni.“
Hann telur erfítt að segja til um
hversu miklu máli vefurinn skipti fyrir-
tæki í dag. Hann eigi hins vegar eftir að
skipta mjög miklu máli í rekstrinum.
Vefurinn sé í stöðugri þróun vegna þess
hve öll tækni breytist hratt. Viðskipti í
gegnum vefsíður hafi stóraukist, eink-
um með vörur þar sem kaupferli sé ein-
falt. „Þetta vitum við í Heklu og tökum
mið af því í framtíðarþróun heimasíðu
okkar.“
Markaðs- og samningatækl Bóksala
stúdenta hefur verið á Netinu í um það
bil fimm ár. Sigurður Pálsson rekstrar-
stjóri segir að í upphafi hafi vefurinn að
mestu leyti verið smíðaður innanhúss og
það hafi gengið ágætlega en kröfurnar
hafi aukist smám saman og í framhald-
inu hafi verið ákveðið að ganga til sam-
starfs við fyrirtækið Gæðamiðlun sem
sérhæfir sig í vefsíðugerð.
„Það eru til margir góðir upplýsinga-
vefir um allan bæ en það er meira en að
Olís-vefurinn er fallegur og fljótur að koma
upp á skjánum. Skemmtilegur vefur að heim-
sækja. Veffang: www.olis.is
segja það að búa til verslunarvef þar sem
fólk getur lokið sínum viðskiptum. Hug-
myndin hjá okkur var að reyna að búa til
vef með áherslu á auðvelt aðgengi, ein-
faldleika, sjálfvirkni og gagnvirkni," seg-
ir Sigurður og bendir á að í gagnvirkni
skipti samskipti við háskólakennara
miklu máli.
„Við munum senda upplýsingar til
þeirra, til dæmis um það hvernig bóka-
staðan er og hvaða bækur eru notaðar,
og reyna að fá þá til að svara okkur.“
Hvaða máli skiptir útiit vefsins? „Graf-
íkin sem slík skiptir ekki miklu máli. Vef-
urinn er bara einfaldur. Sumir hafa sagt
að það vanti meiri dýpt í hann, ég veit
það ekki - það er ágreiningur um það. En
hann má ekki vera of þungur. En eitt er
það sem við höfum sem enginn annar
býður upp á og það er „on line-lager-
staða“. Maður veit nákvæmlega hvort
bókin er til eða ekki. Ef hún er uppseld
þá hefur það gerst á nokkrum klukku-
tímum. Þetta er atriði sem enginn annar
hefur getað leyst,“ svarar Sigurður.
Hann bendir á að vefurinn virki eins
og útstillingargluggi og verðlisti því að
verðlisti og öll tilboð séu að sjálfsögðu
á vefnum. „Eg fæ tvenns konar svörun,
annars vegar beina sölu, sem ég get
mælt mjög auðveldlega í kerfinu, og
hins vegar óbeina sölu sem ég get ekki
mælt. Það má segja að vefurinn sé orð-
inn markaðstæki og jafnframt samn-
ingatæki. Útgefendur þurfa að gera
meira fyrir bækur sem eru á forsíðu
hjá mér í dag. Eg er með borðann
minn inni á forsíðu Morgunblaðsins og
veit nákvæmlega hve margar heim-
sóknir ég fæ. Viðbrögðin hafa verið
mjög góð.“ HS
Vefur Mjólkursamsölunnar. Fjörlegur vefur-
inn hjá Mjólkursamsölunni laðar að mörg
börnin. Veffang: www.ms.is
72