Frjáls verslun - 01.11.1999, Blaðsíða 9
$ ■>' fz
Ajd)
Koníaksstofan er við hliðina á Betri stofunni.
sjálfsögðu sjónvarp. Á hótelinu er gervihnatta-
sjónvarp í hverju herbergi, míníbar og baðher-
bergi.
Gestir Hótel Selfoss eiga sér margar óskir
og starfsmenn hótelsins leggja sig fram um að
uppfylla þær. Sumir óska eftir að fara í spenn-
andi jeppaferðir upp á jökul eða upp á Ingólfs-
fjall og hafa slíkar ferðir verið skipulagðar í
samvinnu við fyrirtækið lcecool sem fer með
fólk í alls konar ævintýraferðir. Aðrirvilja fara i
útreiðartúra og er þá farið á hestum frá Eldhest-
um. Einnig er hægt að fara í stuttar skoðunar-
ferðir og koma við og skoða skemmtileg söfn í
nágrenninu. Loks má nefna að eftir langar
fundasetur vilja menn gjarnan fara út að ganga.
I þeim tilfellum eru leiðsögumenn, sem þekkja
vel til staðhátta í nágrenninu, fengnir til að
ganga með gestum.
Auk ráðstefna og fundahalda er mikið um
að smærri fyrirtæki á Reykjavfkursvæðinu fari
austur á Selfoss og haldi þar árshátíðir. Sé
dansleikur á hótelinu árshátíðarkvöldið er hægt
að opna inn á hann þegar fólk vill en óski menn
frekar eftir því að vera út af fyrir sig allan tím-
ann eru fengnir skemmtikraftar fyrir gestina og
dans stiginn við hljóma frá diskóteki.
Vaxandi rekstur
Mikil aukning hefur verið í rekstri Hótel Sel-
foss frá því KÁ tók við rekstrinum í febrúarbyrj-
un fyrir tveimur árum. Fjölbreyttur matseðill,
góð þjónusta og notaleg gistiaðstaða auk mark-
aðssetningarog kynningará hótelinu hefurskil-
að verulegum árangri eins og best sést
á því að nýting er langt yfir það sem er
að meðaltali hjá landsbyggðarhótelun-
um. Hún er nú tæp 60% á ársgrundvelli.
í undirbúningi er að stækka hótelið um
60-70 herbergi og ennfremur að taka í
notkun 400 manna fullkominn ráðstefnu-
sal í ófullgerðum kvikmyndasal sem er í
byggingunni. Við það skapast enn frekari
tækifæri til þess að taka á móti fjölmenn-
um ráðstefnum.
KÁ hefur opnað heimasíðu,
www.ka.is, þar sem hægt er að kynna sér
alla ferðaþjónustu sem fyrirtækið býður upp
á: Hótel Selfoss, Hótel Vík í Mýrdal,
Fossnesti, Gesthús, Essóskálann á
Hvolsvelli, Víkurskála, Skaftárskála og
Þóristún. Þar má skoða myndir frá til
dæmis Hótel Selfossi og hægt er að sjá
hvaða kostaboð eru í gildi hverju sinni.
Sem dæmi má nefna „rómatíska helgi" á hótel-
inu sem hefur notið mikilla vinsælda.
„Framtíðin er björt og við reynum að upp-
fylla óskir allra þeirra sem til okkar koma og
segjum aldrei nei," segir Stefán Örn Þórisson
hótelstjóri að lokum.
STÖFAN
<5*
hóPe/
SELFOSS
Eyrarvegi 2 ■ 800 Selfoss ■ Sími: 482 2500 • Fax: 482 2524 ■ E-mail: hotel@ka.is
aestum ífallegum her-
AUGLÝSINGAKYNNING
9