Frjáls verslun - 01.11.1999, Blaðsíða 45
„Ef um vœri að rœða stórgróðafyrirtæki með mikinn hagnað afrekstri þá gæti ég skilið að samkeþpnisyfirvöld hefðu áhyggjur, en þessi rekstur
hefur alltaf verið erfiður. “
undir. Við reiknum með því að á næsta
ári verði reksturinn kominn með
hagnað.
Það er fullt af sóknarfærum á þessum
markaði. Hagur okkar hefur vaxið á er-
lendum ferðamannamarkaði. Þar eru
kannski mestu vaxtarmöguleikarnir.
Ferðamönnum hefur fjölgað mikið síð-
ustu tíu ár en hlutdeild innanlandsflugs-
ins í þeirri fjölgun hefur verið mjög litíL
Við erum með frábæran hóp starfs-
manna, andinn er góður og það ríkir
þjartsýni um íramtíðina."
Af framansögðu má ráða að haldið
hafi verið af krafti utan um stjórnar-
taumana í Flugfélagi Islands þetta árið.
Jón Karl segir að vandamál fyrirtækisins
hafi alltaf verið vandamál með „stóru
vaffi“ þar sem menn hafi alltaf reynt að
skera niður kostnað, hagræða í rekstri
og fleira slíkt. „En við skilgreindum
vanda fyrirtækisins upp á nýtt. Við litum
fyrst og fremst á vandamál fyrirtækisins
sem tekjuvandamál. Allir starfsmenn fyr-
irtækisins eru mjög meðvitaðir um þetta
og við tökum öll þátt i því að auka tekj-
urnar og það gengur mjög vel.“
Tap af rekstrinum!
„í fyrra var tap af rekstrinum sem
nam tæpum 300 milljónum króna. Við
verðum með helmingi betri rekstur í
ár þó að við rekum fyrirtækið enn með
tapi. Við erum alls staðar að bæta
við, fjölga farþegum og hagræða í
rekstri; reka fyrirtækið með meiri hag-
kvæmni, til dæmis með því að fara
yfir í færri flugvélategundir."
Hvernig spáirðu að framtíðin
verði almennt í innanlandsflugi?
„Samkeppnin heldur áfram. Hér
verða nokkur flugfélög og við verðum
eitt þeirra. Þessi markaður er vaxandi
og öflugur samkeppnismarkaður og ég
hef trú á því að hann vaxi áfram. Það er
ekkert sem segir annað en að við get-
um búist við fimm til tíu prósenta vexti
á ári til næstu 10 ára, jafnvel meira. Það
er ljóst að við verðum að snúa við
rekstrinum þannig að hann fari að
skapa fé, skila þriggja til fimm prósenta
arði.“
Hvenær verður Flugfélag Islands
komið á verðbréfamarkað? „Árið 2001
verður rekstur fyrirtækisins vonandi
orðinn þannig að það sé hægt að fara að
hugsa um að koma fyrirtækinu á verð-
bréfamarkað." S3
45
YDDA/SÍA