Frjáls verslun - 01.11.1999, Side 70
NETIÐ
inn. Hann vill að menn velti íyrir sér
spurningum á borð við: Ætlum við að
selja vöru á vefnum og þá hvaða vöru?
Ætlum við að spara í öðrum rekstri með
vefhum? A hvaða sviðum og hvernig
náum við því markmiði? A vefurinn íyrst
og fremst að vera aukin þjónusta við við-
skiptavini eða ætlum við að sinna þeim
sem það vilja frá A til Ö með vefnum?
„Það getur verið dýrt að skipta um skoð-
un á miðri leið.“
2 Innihald vefsins. Hvað á að vera á vefn-
um? „Þetta má ekki ákveða á síðustu
stundu,“ segir Gunnar og mælir með
því að gerður sé einfaldur listi yfir það
sem eigi að vera á vef fyrirtækja. „Látið
listann ganga á milli manna og klípið
frekar af honum á skipulagsstiginu. Til
þess að hægt sé að skipuleggja vefinn af
viti þá verður innihaldslistinn fyrst að
liggja fyrir.“
3 Skipulag vefsins: Skipulagið á alltaf
að miðast við viðskiptavininn, þ.e. þann
sem fer inn á vefinn til að leita sér upp-
lýsinga, en ekki við fýrirtækið sem um
ræðir og innra starf og skipulag þess,
að sögn Gunnars. „Þetta er lykilatriði.
Ef vefurinn er illa skipulagður þá finnur
enginn það sem hann er að leita að og
þá hættir fólk að leita þar upplýsinga. Ef
vefurinn er vel skipulagður þá notar
fólk hann mikið í stað þess að hringja
eða koma og fá upplýsingarnar,“ segir
Gunnar. „Því stærri sem vefur fyrir-
tækja er þeim mun erfiðara er oftast að
skipuleggja hann. Það getur verið mán-
aða vinna að skipuleggja stóran vef svo
vel sé.“
« f
j
Vefur Listahátíðar í Reykjavík. Einfaldur og
sérlega fallegur. Með því að ýta á fuglana
kemst gesturinn inn í vefinn og getur kynnt
sér allar upplýsingar sem fyrir liggja um
Listahátíð í Reykjavík næsta sumar. Veffang-
ið er: www.artfest.is
Lykilatriði
„Ef vefurinn er illa skipulagður þá finnur
enginn það sem hann er að leita að og
þá hættir fólk að leita þar upplýsinga. Ef
vefurinn er vel skipulagður þá notar fólk
hann mikið í stað þess að hringja eða
koma og fá upplýsingarnar.“
4 Útlit vefsins: Útlitshönnunin er það
sem fyrst og fremst þyngir vefi og því
skiptir mestu máli að útlitið sé létt og
styðji skipulag vefsins, þ.e. að það hjálpi
fólki að átta sig á uppbyggingu vefsins
og að finna upplýsingarnar sem það er
að leita að. „Minna merkir meira á þessu
sviði, það má ekki vera of flúruð grafi'k
þar sem hlutirnir renna saman því þá er
erfitt að sjá hvað er hvað. Betra er að
hafa útlitið hlutlaust, stílhreint og einfalt
og leyfa skipulaginu að stýra því heldur
en laga skipulagið að útlitshugmynd-
um,“ segir Gunnar. „Besta leiðin er að
láta þetta haldast í hendur og vinna sam-
an að markmiðum vefsins."
Sá sem hannar útlit vefsins verður að
þekkja miðilinn og vita hvað hann má
og má ekki gera. „Ef hann ætlar að búa
til léttan vef þá er ýmislegt sem hann
má helst ekki gera, til dæmis að nota
skugga, því það þyngir vefinn mjög mik-
ið og hann verður líka að vita hversu
mikið pláss vefurinn má taka á skján-
um. Síðan eru augljósir hlutir eins og að
setja ekki hvítan texta á ljósgulan flöt,
menn gera stundum þau mistök. Ef út-
litshönnuðurinn þekkir þessar örfáu
reglur og vinnur innan þeirra þá getur
hann vandræðalaust búið til mjög fal-
legan og léttan vef.“
Listahátíðarvefurinn opnaður. Eins og sjá
má er heildaryfirbragðið það sama.
5 Fjármagn til að halda vefnum við:
„Það er ekki nóg að henda peningum í að
búa til vef. Það má ekki gleymast að end-
urnýja og uppfæra upplýsingarnar þannig
að þær séu alltaf réttar. Það er algjört lág-
mark að ekki séu úreltar upplýsingar inni
á vefnum. Ef fyrirtæki hafa væntingar um
miklar gestakomur á vefinn þá er best að
ráða ritstjóra sem skrifar inn nýtt efni,
helst daglega. „Astæðan fyrir því að frétta-
vefirnir eru svo vinsælir er að þar er nýtt
efni daglega," segir Gunnar og bætír við
að nýjar upplýsingar, sem snúi að starf-
semi fyrirtækisins, gefi fólki ástæðu tíl að
koma aftur og aftur inn á vefinn.
Setja upp fréttasíður Hann bendir á
hugmynd sem hann kallar „óunna námu“
því að fyrirtæki hafa lítíð nýtt sér hana
hér heima - en það er að setja upp frétta-
síður um það sem tengist starfsemi fyrir-
tækisins. „Sérvörufýrirtæki geta tíl dæm-
is sett upp siðu með daglegum fréttum af
sínu sérsviði hérlendis og erlendis, sem
dregur að heimsóknir þeirra sem áhuga
hafa, markhóps fyrirtækisins, sem geta
þá fundið allar upplýsingar um sviðið á
einum stað. Þessu þurfa síðan að fýlgja
góðir tenglar um viðkomandi svið.“
Gunnar segir einnig sniðugt að fá vef-
gestí til að skilja eftir netfangið sitt hjá
fýrirtækinu þannig að það geti sent
áhugasömum viðskiptavinum tílboð eða
upplýsingar í tölvupósti um starfsemi
fýrirtækisins. „Fólk sem hefur áhuga á
þjónustu fýrirtækisins vill gjarnan fá að
vita þegar nýjungar eiga sér stað, frekar
en að þurfa að fýlgjast með sjálft. Þarna
er áhuginn á samskiptum gagnkvæmur
og sjálfsagt að nýta sér það.“
Vefur Flugleiða. Flugleiðir bjóða viðskiþta-
vinum og öðrum áhugasömum að skilja net-
fangið sitt eftir og senda svo reglulega út upþ-
lýsingar um tilboð. Þetta hefur virkað mjög
vel. Veffang: www.icelandair.is
70