Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2000, Page 39

Frjáls verslun - 01.05.2000, Page 39
í\nsun retursáotur, jorsioouniaöur rjarstyrmgar hja Kaupþtngt, asamt börnum sínum, Sonju Jónsdóttur, átta ára, og Sindra Jónssyni fjögurra ara. „Markaðunnn er að taka orum breytmgum sem mér finnst gaman að taka þátt í og mérgengur vel að samrœma þetta Íölskyldulífi " Starfið er mjög lifandi Þegar ég hafði lokið námi vann ég við afleiðuviðskipti hjá Statoil í Noregi. Eftir að ég flutti heim var hér mjög takmarkaður markaður með afleiður. Eg vann við verðbréfamiðlun hjá VIB til að byrja með en færði mig svo yfir í gjaldeyr- is- og afleiðuviðskipti. Afleiðuvið- skipti ná til allra þátta fjármálamark- aðarins, eins og t.d. verðbréfa, gjald- eyris og vaxta, og má segja að mesta þróunin og nýjungarnar á þessum markaði séu í afleiðuviðskiptum. --------- Fjármálafræðin hefur alla tíð heillað mig og því finnst mér mjög spennandi að starfa við afleiðuviðskipti og taka þátt í þeirri þróun sem er að eiga sér stað. Starfið er mjög lifandi og ekki vantar ögrunina," segir Kristín Pétursdóttir, forstöðu- maður Fjárstýringar hjá Kaupþingi. Störf í Fjárstýringu hafa verið eftirsótt af körlum en þær eru fáar konurnar sem hafa starfað í slíkum viðskiptum og fáar sækja um störf í afleiðu- og gjaldeyrisviðskiptum. Þannig eru sjö starfsmenn í Fjárstýringunni hjá Kaupþingi, þar af eru tvær konur. Kristín segist ekki velta því mikið fyr- ir sér hversu fáar konur séu á viðskiplagólfinu. „Það skiptir mig mestu máli að vinna með faglega hæfu fólki og fólki sem hefur metnað til að standa sig vel og þá skiptir ekki máli hvort viðkomandi er karl eða kona, en vissulega væri ekki Starf í afleiðudeild jjármálafyrirtækis er tvímœlalaust karlastarfí reynd og þær erufáarkonurnarsem starfa við eða sækja um slíktstarf Kristín Pétursdóttir lét þetta þó ekki hafa nein áhrifá sigþeg- ar hún ákvað að sérhæfa sig í afleiðuvið- skiþtum í MBA námi. Hún er núfor- stöðumaður Fjárstýringar hjá Kaupþingi. verra að hafa fleiri konur í þessum geira,“ segir hún. Bjartsýn á markaðinn Mikil gróska er í afleiðuviðskiptum, markaðurinn verður stöðugt dýpri og afurðirnar stöðugt þróaðri. Kristín lítur björtum augum á markaðinn og telur að þessi hluti eigi eftir að vaxa ört á næstu árum. „Hvað kynjaskiptinguna varðar eru þónokkrar konur komnar inn á þessa línu í háskóla en þær skila sér þó fáar út á markaðinn. Karlmenn eru í miklum meirihluta þeirra sem óska eftir störfum í þessum geira. Eg rekst því miður varla á umsókn frá konu um störf sem tengjast afleiðu- og gjaldeyrisviðskiptum. Ég veit ekki al- veg hvað veldur, kannski er þetta spurning um kjark því störf í framlínu ljármálafyrirtækja hafa hingað til verið hefðbundin karlastörf þó að konur geti sinnt þessum störfum jafn vel.“ - Hvaða augum lítur þú þína framtíð; verðurðu í þessu tíl fram- tíðar? „Ég á fjölskyldu, tvö lítil börn - átta og fjögurra ára - og er búin að vera í þessu í fimm ár. Ég ætla að halda því áfram. Mér finnst þetta mjög spennandi svið. Markaðurinn er að taka örum breytingum sem mér finnst gaman að taka þátt í og mér gengur vel að samræma þetta fjölskyldulífi." [£] 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.