Frjáls verslun - 01.05.2000, Blaðsíða 99
22?
;i|® 11 j 1 u % 'I ú y ! n ■ I&jgí H mm §íl£Balg?i
byl S lliitimj i-' 1 1
I 1 K
Birna E. Óskarsdóttir er deildarstjóri innflutningsdeildar hjá Ellingsen. Hún hefur starfað hjá fyrirtœkinu í um sextán ár. Olís keyþti Ellingsen
fyrir um ári. FV-mynd: Geir Ólafsson.
Birna E. Óskarsdóttir,
Ellingsen
Eftir ísak Örn Siaurðsson
Birna E. Oskarsdóttir er
deildarstjóri innflutn-
ingsdeildar hjá Elling-
sen og sér hún um alla papp-
írs- og tollskjalavinnu fyrir-
tækisins. „Ég kom til starfa
árið 1984 og hef því verið hjá
Ellingsen í 16 ár samfleytt.
Ellingsen fyrirtækið er bæði
heildsala og smásala og
margt af þeirri vöru sem Ell-
ingsen verslar með er selt til
heildsala. Ellingsen íyrirtæk-
ið sjálft var stofnað árið 1916
og hefur því nánast alla tíð
verið fjölskyldufyrirtæki,"
segir Birna.
„Störf mín hjá Ellingsen
hafa að mestu snúið að inn-
flutningi fyrirtækisins, toll-
skýrslugerð, verðútreikning-
um, færslu á bókhaldi, yfir-
ferð reikninga og umsjón
gjaldeyrisumsókna. Ég hef
einnig sinnt störfum gjald-
kera hjá dótturfyrirtæki Ell-
ingsen, Ingvari & Ara ehf.
Olís keypti Ellingsen fyrir ári
og hurfu þá fyrri eigendur al-
gerlega frá fyrirtækinu. Eftir
kaup Olís á fyrirtækinu má
segja að meira samstarf sé
um sölu einstakra vöru-
flokka. Engar grundvallar-
breytingar hafa samt verið
gerðar á rekstri Ellingsen á
þessu ári sem liðið er frá
kaupunum."
Birna E. Oskarsdóttir er
fædd í Reykjavík árið 1955 en
uppalin fyrstu fimm ár ævi
sinnar í Vestmannaeyjum.
„Ég flutti á sjötta ári aftur til
Reykjavíkur og hef búið þar
síðan. Ég lauk gagnfræða-
prófi úr Verslunardeild Ár-
múlaskólans og var eitt ár í
Verslunarskóla íslands, vet-
urinn 1972-73. Ég vann við
sumarafleysingar hjá Kaup-
mannasamtökum íslands og
heildverslun Ólafs Þorsteins-
sonar og Co. Þar bauðst mér
áframhaldandi starf og ég
var þar næstu 10 árin. Ég hóf
störf hjá Ellingsen ehf vorið
1984 og hef verið þar síðan.“
Birna flutti sig um set yfir
á Seltjarnarnesið þegar hún
byrjaði að búa. „Ég kynntist
eiginmanni mínum árið 1972,
þá nýkomin frá sumarvinnu í
Vestmannaeyjum. Eiginmað-
ur minn er Þór Sigurðsson
húsasmiður en hann starfar
sem neyðarsímavörður hjá
Neyðarlínunni. Ég komst
ekki að því fyrr en síðar að
Þór á ættir sínar að rekja til
Vestmannaeyja, en faðir hans
var uppalinn í Eyjum. Við Þór
gengum í hjónaband árið
1974 og eigum eina dóttur,
Árnýju Helgu, verslunar-
stjóra í Sparsport, en hún er
25 ára gömul.
Við hjónin erum mjög
dugleg að fara í útilegur inn-
anlands og þegar við förum í
sumarfrí eru tjaldið og svefn-
pokinn sett í bílinn og keyrt
af stað. Ég hef reyndar mjög
gaman af því einnig að skoða
heiminn en hef samt ekki
lagt jafn rika áherslu á ferða-
lög í útlöndum og hér heima.
Ég hef sungið í kór frá unga
aldri og er nú í Selkórnum á
Seltjarnarnesi. Ég er einnig
meðlimur í kvenfélaginu Sel-
tjörn á Setljarnarnesi. Ég hef
farið í ferðir til útlanda á
þeirra vegum; hef meðal ann-
ars sótt tvær kvennaráðstefn-
ur, í Noregi og Finnlandi, og
farið í ferðir með kórnum til
Norðurlandanna, Ungverja-
lands og Ítalíu." S9
97