Frjáls verslun - 01.05.2000, Blaðsíða 52
Snorri Ingimarsson geðlæknir: „Kulnun erþjóðfélaginu dýr. Þeirsem brenna út eru oft vel mennt-
aðir einstaklingar með mikla starfsreynslu. Þeir hafa mikið fram að færa en hafa brunnið út í
starfi og því er þarna í raun verið að sóa miklum verðmœtum efekkert er að gert. “
geti ekki leyst úr verkefnum sínum eða
vandamálum, eru kannski komnir í
vítahring og geta verið þar fastir í
nokkur ár eða þar til heilsunni er veru-
leg hætta búin. „Eins og orðið bendir
til er kulnun doði gagnvart sjálfum sér
og umhverfi sínu. Sú kenning er uppi
að þeir sem ekki helga sig starfi sínu
brenni síður út. Þeim sé hættara við
kulnun sem gangi inn í starf sitt af hug-
sjón og nái ekki markmiðum sínum en
hinum sem fari í vinnuna á morgnana
og hafi engar áhyggjur af aíkomu fyrir-
tækisins," segir Snorri Ingimarsson
geðlæknir.
Fara sjaldan í frí Ekki er vitað um al-
gengi kulnunar hér á landi en Snorri
segir að erlendis hafi sjúkdómurinn
verið rannsakaður talsvert, sérstak-
lega meðal starfsfólks í umönnunar-
störfum. Þær rannsóknir hafi sýnt
fram á mismunandi algengi eftir
starfsstéttum, krabbameinslæknar
þjáist til dæmis frekar af kulnun en
augnlæknar. Sænskar rannsóknir hafa
hins vegar sýnt að kulnun verður sí-
fellt algengari í yngri aldurshópum,
ekki síst hjá fólki í hugbúnaðargeiran-
um. Þetta fólk finnur að það hefur
mikla orku og griðarlegan áhuga á
vinnunni. Það hefur ánægju af því að
vinna mikið og tekur sér sjaldan frí. Ef
þetta ástand heldur áfram er talið að á
fimm til fimmtán árum geti komið
íram merki um firringu; að viðkom-
andi sé að brenna út og hafi ef til vill
ofboðið sér með of mikilli vinnu. Við-
Doði oo deyfð í
Kulnun er sjúkdómur sem hrjáir
fólk í atvinnulífinu, sérstaklega
fólk í ábyrgðar- og stjórnunar-
störfum; orkumikla og duglega stjórn-
endur um miðjan aldur og eldri sem
hafa unnið mikið um langan tíma og
sjaldan tekið sér frí. Þessir menn hafa
átt við langvarandi streitu að stríða
sem varðar bæði líkamlegt og geð-
rænt heilbrigði. Þeir eiga erfitt með að
horfast í augu við að ráða ekki lengur
við að afkasta jafn miklu og áður og fá
smám saman á tilfinninguna að þeir
Rætt vib Snorra Ingimarsson
geðlœkni um kulnun í starfi sem
hrjáirjmsa menn i ábyrgöar- og
stjórnunarstörfum sem unnið hafa
mikið um langan tíma og lítið sem
ekkert tekið sér frí. Þeir eiga erfitt
með að horfast í augu við að afkasta
ekki jafn miklu og áður.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur. Myndir: Geir Ólafsson.
komandi einstaklingur er hættur að
afkasta jafn miklu og áður og hann
hefur ekki lengur ánægju af vinnu
sinni. Hann verður því að draga sam-
an seglin og byggja sig upp á ný.
Aður en kulnun greinist hjá ein-
staklingi getur hann verið búinn að
þjást af mismunandi líkamlegum kvill-
um sem síðan hafa hugsanlega þróast
í alvarlega sjúkdóma. Kvillarnir geta
tengst hjarta, maga eða meltingar-
vegi. Ymis óregla getur haft áhrif til
hins verra á líkamlega og andlega
50