Frjáls verslun - 01.05.2000, Blaðsíða 53
„Þegar að þunglyndi er komið má segja að því alvarlega stigi séð náð að viðkomandi þjáist afkulnun. Venjulega er einstaklingurinn þá uþþgef-
inn á líkama og sál. “ FV-myndir: Geir Olafsson
heilsu, til dæmis reykingar og áfengisdrykkja, lyfjanotkun og
lítill og óreglulegur svefn, jafnvel svo að hægt sé að tala um
svefnörðugleika. Einnig geta ýmis einkenni um streitu brotíst
út, svo sem mikill sviti, tilfinningar um að viðkomandi hafi ekki
lengur stjórn á lífi sínu og kringumstæðum, verulegar skap-
truflanir og geðsveiflur sem geta komið niður á öðru fólki.
Sjúklingar greinast jafnvel með kvíða og þunglyndi. Þegar að
þunglyndi er komið má segja að því alvarlega stígi séð náð að
viðkomandi þjáist af kulnun. Venjulega er einstaklingurinn þá
uppgefinn á líkama og sál. Hann er uppfullur af doða og deyfð,
er hættur að geta sinnt starfi sínu, fjölskyldu og einkalífi og get-
ur ekki lengur svarað þeim kröfum sem til hans eru gerðar.
Hálfgerður svefngengíll „Það sem orsakar kulnun er streita
„Þetta er þjóðfélaginu dýrt ástand því að þeir sem brenna
út eru oft vel menntað fólk með mikla starfsreynslu. Þetta
fólk hefúr mikið til brunns að bera og fram að færa en það
hefur kulnað í starfi og því er þarna í raun verið að sóa mikl-
um verðmætum.“
- Hversu hættuleg er kulnun ef hún er ekki meðhöndluð; get-
ur hún ef til vill leitt menn til dauða?
„Kulnun er sennilega einhvers konar varnarkerfi sálar og
líkama. Manninum líður stöðugt illa, hann er stöðugt þreyttur
og undir álagi. Smám saman dofnar hann undir þessu og haml-
ast til hugsana og framkvæmda. Hann ris ekki lengur undir
álagi og kröfúm sjálfs sín og umhverfisins og verður hálfgerð-
ur svefngengill."
starfi stiórnenda
og streita er alvarlegur sjúkdómsvaldur. Ef við horfum á or-
sakakerfið streita-langvarandi streita við ákveðnar aðstæður,
sem lítið sem ekkert breytast í áranna rás, þá kemur að því
að maður sem þjáist af streitu örmagnast líkamlega og and-
lega. Yfirmenn eiga erfiðara með að losna frá þessu streituá-
standi því að þeir skipta ekki jafn auðveldlega um starfsvett-
vang og undirmenn - þeir síðarnefndu geta fremur skipt um
starf eða látið flytja sig tíl í starfi þannig að það má ímynda
sér að meiri hætta sé á kulnun meðal stjórnenda þar sem
færri úrræði eru til að létta streituálagi af viðkomandi. Sama
lögmál gildir um heilbrigðisstéttir þar sem starfsmenn geta
ekki varist gríðarlegu vinnuálagi enda þörfin brýn fyrir hjálp.
Snorri og telur áhugavert að rannsaka kulnun á Islandi.
Hvað er til ráða þegar einstaklingur er illa haldinn af kuln-
un? Snorri segir að það sé grundvallaratriði að við áttum
okkur á hvað kulnun í starfi sé og séum betur vakandi fyrir
þessu fyrirbæri. Stjórnendur rekstrar átti sig á því að eitt-
hvað sé að hjá viðkomandi starfsmanni og leitað sé leiða til
að koma starfsmanninum til hjálpar. Stundum getur verið
nauðsynlegt að starfsmaðurinn breyti lífsmynstri sínu, hætti
að reykja og drekka, ef hann gerir það, bæti mataræði og
hugi að svefni, minnki vinnuna og auki frítímann og sinni
Ijölskyldu og vinum í auknum mæli. Sinni heilsurækt í víð-
tækasta skilningi þess hugtaks. í sumum tilvikum getur ver-
ið nauðsynlegt að fara í veikindafrí um lengri eða skemmri
tíma.BIj
51