Frjáls verslun - 01.05.2000, Page 65
Örn stefnir aö því aö velta
beggja staöanna, Brass-
erie Borgar og Kaffi
Reykjavíkur, veröi um
hálfur milljarður á næsta
ári. Hann greiðir núna um
170 manns laun á mánuöi,
flestir eru að vísu í hluta-
störtum. Eiginkona Arnar
og meðeigandi er Iris
Björk Guðjónsdóttir.
urn uaróarsson nefur rekið Brasserie Borg í rúm fjögurár. Borgin er vinsæll veitingastaður í há-
deginu ogá kvöldin. Sumir kalla veitingastaðinn bestgeymda leyndarmálið í miðbœnum.
Um það hvort faðir
hans, Garðar, komi
eitthvað að rekstr-
inum með honum
segir hann það alls
ekki vera og raun-
\ ar fjarri lagi. „Ég er
einn í þessu ásamt
^ ^ ' konunni minni."
Örn leigir aðstöð-
una á Borginni - og er leigan tengd veltu staðarins - en
Kaffi Reykjavik er hans eigið eftir að hann keypti staðinn af þeim
Þórarni Ragnarssyni, Gunnari Hjaltalín og Þórði Sigurðssyni í
febrúar sl. „Ég tók yfir miklar skuldir og átti eitthvern sjóð fyrir,“
segir hann um kaupin en vill að öðru leyti ekki tjá sig frekar sig
um hvernig hann hafi getað greitt 170 milljónir fyrir staðinn. Það
var raunar fyrirtæki hans, Brasserie Borg, sem keypti Kaffi
Reykjavík. Því má bæta við að Örn fékk kauptilboð í Kaffi Reykja-
vík nýlega og var það nokkru hærra en það sem hann keypti stað-
inn á. Hann hafnaði því tilboði.
Af litlum neista Þótt Örn reki nú tvo af þekktustu veitinga- og
skemmtistöðum landsins og setji sér markmið og stefnu í
rekstrinum segir hann að það hafi verið fyrir hreina tilviljun að
hann fór í veitingarekstur. Hann lærði matreiðslu í Brauðbæ en
Gísli matreiðslumaður var meistari hans, hann vann á Grillinu á
Hótel Sögu um tíma, var í átta mánuði í Frakklandi - og aðeins
22 ára var hann orðinn yfirmatreiðslumaður á Lækjarbrekku en
þar starfaði hann í tjögur ár. Þegar staðurinn varð gjaldþrota náði
hann ekki samkomulagi við nýjan eiganda og hætti. Hann segist
hafa tapað verulegum launum í þessu gjaldþroti og lent í milli-
bilsástandi. Úr varð að hann hóf störf í kjötborðinu hjá Stór-
markaði Suðurnesja í Keflavík og í vinnu þar heyrði hann af því
að Sparisjóðurinn í Keflavík vildi auglýsa veitingastaðinn Glóð-
ina. „Ég sló til og leigði rekstur og húsnæði Glóðarinnar af Spari-
sjóðnum. Þar með var ég kominn út í veitingarekstur, nokkuð
sem ég hafði ekki stefnt að sérstaklega, enda leit ég fyrst og
fremst á mig sem matreiðslumann." Það var svo 2. janúar 1996
sem hann tók við rekstri veitinga á Borginni. Fljótlega eftir það
hætti hann með Glóðina í Keflavík, það reyndist lýjandi að þeys-
ast á milli Keflavíkur og Reykjavikur.
Sagan á bak Við kaupin Sagan á bak við kaupin á Kaffi Reykja-
vík er athyglisverð og mikilli tilviljun háð líkt og þegar Örn tók
við Glóðinni í Keflavík á sínum tima og sömuleiðis þegar Tómas
lomasson, einn eigenda Hótels Borgar, sló þvi óvænt fram við
hann hvort hann vildi ekki leigja veitingareksturinn á Borginni
sem endaði tveimur vikum síðar með því sem allir þekkja. En
sagan á bak við kaupin á Kaffi Reykjavík er þessi: „Við Grétar
Örvarsson tónlistarmaður sátum saman á Borginni skömmu fyr-
affi Reykjavík
63