Frjáls verslun - 01.09.2000, Blaðsíða 72
Sími og fjarshipti
Símar forstjóranna
Hann er lítill og sætur,
Ericsson R380 síminn
sem Eyþór Arnalds, for-
stjóri Islandssíma, gengur
með þessa dagana.
Tveggja banda farsími
sem gefur möguleika á
WAP og tölvupósti og EyþórArnalds.
hefðbundnum símtölum
en inniheldur einnig heimilisfangaskrá, dagbók, minnisbók
og ýmislegt fleira. „Þægilegur sími,“ segir Eyþór um leið og
hann útskýrir hversu auðvelt er að nota símann nánast sem
tölvu - en þó ekki alveg. Á honum er ótrúlega stór skjár, mið-
að við stærð, og hann er með snertiskjá. Góður fýrir þá sem
eru alltaf á ferðinni og þurfa að geta punktað hjá sér eitt og
annað, munað eftir fundum og öðrum merkisatburðum og
kíkt á Netið. [2
Skemmtilegur að utan
en frábær að innan,“ er
lýsingin á Nokia 3210 sem
Arnþór Þórðarson, for-
stjóri Títans, á. Hann, eins
og aðrir Nokia símar, hef-
ur möguleika á ótrúlegum
Arnþór Þórðarson.
fjölda hringinga, getur sent myndir í SMS skilaboðum og í
honum eru innbyggðir leikir. Kannski ekki það sem forstjóri
þarf mest á að halda en hins vegar dugar rafhlaðan í allt að 11
daga og er tveggja banda - 900 og 1800, líkt og flestir af nýrri
símunum.BH
Forstjóri Tals, Þórólfur Árnason, notar Motorola W3688
sem hann segir léttan og einstaklega þægilegan í vasa.
Hann er aðeins rúmlega 100 g að þyngd og hefur innbyggða
símaskrá, titrarahringingu, dagbók, vasareikni, klukku með
vekjara og allt að
þriggja mínútna
upptökuminni.
Einnig innrauðan
geisla og innbyggt
módem svo hægt sé
að nota hann á net-
inu.[2
Þórólfur Arnason.
Þórarinn V. Þórarins-
son, forstjóri Lands-
símans, er með sams
konar síma og Eyþór
Arnalds. WAP-ið og
möguleikinn á að nota
hann sem upptökutæki
hlýtur að koma sér vel
íýrir hann eins og aðra;
það er þægilegt að geta
sett inn minnispunkta
án þess að þurfa að
skrifa þá. S3
Harald Grytten.
Harald Grytten er með Benefon tveggja banda, 900/1800,
og hefur tök á að nota tvö símkort sem auðvelt er að
stilla á milli án þess að fjarlægja annað. Það gerir að verkum
að símann má nota hvar sem er í heiminum. Hann vegur að-
eins 105 g og fer vel í hendi. I símanum er flýtival íyrir texta
og innbyggð orðabók á nokkrum tungumálum, dagbók,
minnisblokk, reiknivél og vekjari. Einnig er innbyggt 14.4
kbps módem fyrir gagnasendingar. B3
72