Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 1
1. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 3. JANÚAR 2001
BILL Clinton Bandaríkjaforseti átti í
gær fund í Hvíta húsinu með Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, til
að ræða málamiðlunartillögur Clin-
tons að friðarsamkomulagi milli Pal-
estínumanna og Ísraela. Fóru við-
ræðurnar fram í skugga
áframhaldandi ofbeldisverka fyrir
botni Miðjarðarhafs og ísraelskir
ráðamenn lýstu efasemdum um að
nokkur von væri á samkomulagi í
nánustu framtíð.
Stóð fundur þeirra Clintons og
Arafats í nærri tvo tíma en hvorugur
þeirra ávarpaði fjölmiðla eftir að hon-
um lauk í gærkvöldi. Sögðu banda-
rískir stjórnarerindrekar að litlar lík-
ur virtust á að samkomulag næðist
áður en Clinton lætur af embætti síð-
ar í þessum mánuði.
Ehud Barak, forsætisráðherra
Ísraels, sagðist í gær ekki lengur hafa
trú á því að mögulegt væri að koma
samkomulagi við Palestínumenn í
höfn áður en Ísraelar ganga til for-
sætisráðherrakosninga hinn 6. febrú-
ar næstkomandi. Hann muni nú ein-
beita sér frekar að því að bæla niður
óeirðir Palestínumanna.
Ísraelskir hermenn skutu í gær til
bana palestínskan bónda á Gaza-
svæðinu eftir að sprengja sprakk í
nærliggjandi landnemaþorpi Ísraela
og særði einn ísraelskan hermann.
Tveir hermenn særðust enn fremur í
götuátökum við Palestínumenn, ann-
ars vegar á sjálfstjórnarsvæði Palest-
ínumanna á Gaza og hins vegar í hinni
skiptu borg Hebron á Vesturbakkan-
um.
Clinton og Arafat ákváðu að hittast
eftir að sá fyrrnefndi átti 45 mínútna
símtöl bæði við Barak og Arafat á ný-
ársdag. Clinton hefur verið að reyna
að þrýsta leiðtogunum tveimur til að
fallast á tillögur sem gætu þjónað
sem grundvöllur að endanlegu sam-
komulagi sem tryggði frið til fram-
búðar í Mið-Austurlöndum og byndi
enda á 52 ára átök Ísraela og Palest-
ínumanna og ófrið sl. þriggja mánaða
sem skilið hefur að minnsta kosti 355
manns eftir í valnum.
Ísraelar hafa í stórum dráttum lýst
sig reiðubúna að gangast inn á sam-
komulag á þeim grundvelli sem til-
lögur Clintons ganga út á en leiðtogar
Palestínumanna hafa ekki tekið þeim
eins vel og viljað fá frekari útlistanir á
ákveðnum atriðum. Clinton sagði fyr-
ir áramótin að hann sæi engan tilgang
í að halda viðræðum áfram ef báðir
aðilar lýstu sig ekki tilbúna til að
samþykkja lykilatriði tillagna sinna.
Barak berorður
Í nokkrum fjölmiðlaviðtölum í gær
lýsti Barak þeirri skoðun sinni, að
hann sæi ekki lengur að mögulegt
væri að koma á rammasamkomulagi
við Palestínumenn fyrir kosningarn-
ar 6. febrúar. Fram að þessu var al-
mennt álitið, að möguleikar Baraks á
að ná endurkjöri stæðu og féllu með
því að honum auðnaðist að undirrita
samkomulag á síðustu stundu fyrir
kosningarnar og fyrir lok forsetatíðar
Clintons 20. janúar. Barak sagði Ara-
fat bera ábyrgð á því að nýjasta mála-
miðlunartilraunin af hálfu Banda-
ríkjamanna virtist ætla að verða
árangurslaus.
Yasser Arafat og Bill Clinton ræddu friðartillögur í Hvíta húsinu
Hverfandi von sögð um
samkomulag í bráð
Washington, Jerúsalem. Reuters, AP.
Reuters
Þungt var yfir Yasser Arafat
Palestínuleiðtoga er hann fór af
fundi Clintons í gærkvöldi.
GEORGE W. Bush,
verðandi forseti
Bandaríkjanna,
reyndi í gær að efna
fyrirheit sitt um að
skipa í ríkisstjórn sína
fulltrúa sem flestra
þjóðfélagshópa þegar
hann tilkynnti þrjú
síðustu ráðherraefni
sín. Eitt þeirra er
demókrati af japansk-
bandarískum uppruna, eitt er kona af
rómansk-amerískum uppruna og eitt
er af arabísk-bandarískum uppruna.
Sem orkumálaráðherra í væntan-
legri ríkisstjórn sinni tilnefndi Bush
Spencer Abraham, öldungadeildar-
þingmann repúblikana sem missti
þingsæti sitt í kosningunum í nóvem-
ber eftir sex ára kjörtímabil en hann
var eini maðurinn af arabískum ætt-
um sem átti sæti í þingdeildinni.
Til þess að fylgja eftir fyrri yfirlýs-
ingum um að vilja starfa bæði með
flokksmönnum sínum og demókröt-
um tilnefndi Bush Norman Mineta,
fráfarandi viðskiptaráðherra í ríkis-
stjórn Clintons og fyrrverandi full-
trúadeildarþingmann demókrata, í
embætti samgönguráðherra.
Linda Chavez, íhaldssamur sér-
fræðingur í innflytjendamálum sem
átti sæti í borgararéttindanefnd rík-
isstjórnar Ronalds Reagan á sínum
tíma, verður atvinnumálaráðherra í
ríkisstjórn Bush yngri sem tekur við
völdum 20. janúar næstkomandi. Öld-
ungadeild Bandaríkjaþings, þar sem
jafnmargir fulltrúar repúblikana og
demókrata sitja, verður að sam-
þykkja ráðherratilnefningarnar.
Bush ánægður
„Ég get ekki ímyndað mér betri
byrjun á nýju ári en að ljúka skipun
nýrrar ríkisstjórnar; stjórnar sem ég
tel að sé ein sú sterkasta liðsheild sem
nokkrum forseta hefur auðnast að ná
saman,“ sagði Bush á blaðamanna-
fundi í Austin í Texas.
Með því að tilnefna Mineta batt
Bush loks enda á vangaveltur í Wash-
ington um það hvort honum tækist að
finna heppilegan demókrata til að
taka sæti í ríkisstjórn sinni.
Þrjú síðustu ráðherraefni Bush
Fyrsti demó-
kratinn
tilnefndur
Austin. Reuters.
Spencer
Abraham
Linda
Chavez
Norman
Mineta
TAÍVÖNSK skólabörn fagna því að
siglingar hafa verið heimilaðar
milli tveggja eyja á Taívan og meg-
inlands Kína í fyrsta sinn í rúma
hálfa öld. Taívanar vonast til þess
að siglingarnar dragi úr spennunni
milli Kína og Taívans og lýsa þeim
sem fyrsta skrefinu í átt að afnámi
banns við beinum flutningum milli
Taívans og meginlandsins.
Reuters
Taívanar
afnema
siglingabann
Taívanar heimila/30
KATHRIN Meth, átján ára sjálf-
boðaliði í þýzka hernum, fær hér
leiðbeiningar hjá höfuðsmanninum
Sören Haack er hún mætti til her-
búða stórskotaliðssveitar í Dülmen
skammt frá Münster í Vestur-
Þýzkalandi í gærmorgun. Í fyrsta
sinn í sögu þýzka hersins hafa raðir
framlínusveita hans verið opnaðar
konum. Alls gengu í gær 244 konur
til liðs við hinar ýmsu deildir hers-
ins, flestar þó í sveitir landhersins.
Harald Kujat, æðsti hershöfðingi
Þýzkalands, sagðist í gær vænta
þess að tilkoma kvennanna í fram-
línusveitirnar muni hafa jákvæð
áhrif. Þýzkir ráðamenn höfðu lengi
staðið gegn því að brugðið yrði út
af þeirri hefð að konum yrði haldið
utan við þjónustu í hersveitum sem
þjálfaðar væru til að taka þátt í bar-
dögum. En fyrir rétt tæpu ári úr-
skurðaði Evrópudómstóllinn þýzk-
um kvenhermanni í vil, sem taldi
sér mismunað með því að vera
meinaður aðgangur að framlínu-
sveitum en þessi dómur knúði yf-
irvöld í Þýzkalandi til að breyta
reglunum.
„Eitt síðasta vígi kynbundinnar
starfsskiptingar er fallið,“ sagði
Rainer Brüderle, talsmaður
frjálsra demókrata (FDP). Hann
lagði áherzlu á að kvenhermenn
yrðu að sæta alveg sömu aðstæðum
í herþjónustu og karlhermenn.
AP
Konur
í herinn
Enn eitt karlavígið fellur