Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 35
ALDAMÓT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 35 GÓÐIR Íslendingar. Sjálfsagt hefur hvert ykkar haft sína visku ellegar sérvisku um það, hvenær 20. og 21. öldin mættust. Ég geri þá játningu að vera einn þeirra sem verið hefur á seinni skipunum til þessara miklu tímamóta. Sem betur fer er ekki hundrað í hættunni þótt deilan snúist um aldamót. Öruggt er a.m.k. að þá er klukkan glymur í tólfta sinn í kvöld hefur tuttugasta öldin kvatt, í annað sinn verða ein- hverjir fljótir að bæta við. Hverjir voru stærstu atburðir þeirrar aldar? Og var stór atburður frétt eða var hann bara atburður? Á þessu tvennu er mikill munur, segja tíðindamenn, sem hafa að vonum meiri áhuga á fréttum en atburðum. Þeir bentu á að heimastjórn, sem landsmenn öðluðust árið 1904 og lýð- veldisstofnun árið 1944 voru ekki stórar fréttir, vegna þess hve að- dragandinn að atburðunum var langur, svo að allir vissu með góðum fyrirvara hvað verða vildi. Hernám Breta 10. maí 1940 var á hinn bóginn ekki aðeins mikill atburður heldur einnig stórbrotin frétt, þar sem það kom þjóðinni í opna skjöldu. Jafnvel má segja að ekki hafi annar atburður ráðið meiru um örlög Íslendinga á öldinni, því að þjóð, sem svo lengi hafði búið að sínu, við öryggi fjar- lægðar og áhugaleysis annarra var í einu vetfangi hrifin burtu af sínum bæ og varð aldrei söm. Minnir það á önnur örlög og annað stríð sem mað- ur aldarinnar á Íslandi orti um og sagði „og það var allt útaf einni jurt, sem óx í skjóli og var slitin burt.“ Við þekkjum endalok þeirrar ris- miklu sögu, en hin bókin um hið sjálfstæða íslenska fólk, þar sem þú og ég og þeir, sem á undan fóru og á eftir munu koma, skipa hlutverkin, er enn aðeins að litlu leyti skrifuð, þótt viðburðaríkasta öldin af tæpum tólf í sögu þjóðarinnar sé nú liðin. Tvö atriði standa upp úr þegar horft er um öxl til aldarinnar og getur þó hvorugt flokkast undir frétt og ekki heldur atburð. Hið fyrra er sú stað- reynd, að allt þar til tuttugasta öldin gekk í garð hafði íbúafjöldi í landinu aldrei orðið meiri en hann var orðinn þá er eiginlegu landnámi lauk eða því sem næst 70 þúsund manns. Þar virtust endimörk þess, sem landið bar. Ef talað væri um aðrar skepnur en manninn væri sjálf- sagt notað orðið beitar- þol landsins í þessu samhengi. En síðan kom tuttugasta öldin og þá tók allt kipp og Íslendingum fjölgaði úr 70 þúsundum í 283 þús- undir og býr þó drjúgur hópur landans nú er- lendis um lengri eða skemmri tíma og er ekki að sinni talinn með. Hitt atriðið er að í byrjun aldarinnar voru Íslendingar í hópi fátækustu þjóða, svo sem verið hafði flestar aldir þar á undan, en nú við aldarlok eru þeir óumdeilanlega meðal þeirra sem mest bera úr býtum í veraldlegum efnum. Þótt þetta séu að sönnu hvorki fréttir né atburðir, þá hljóta þessar staðreyndir að segja okkur Íslendingum mest um tuttugustu öldina. Tvær heimsstyrjaldir, sem snertu okkur hvor á sinn hátt, frostavetur, eldgos í og utan byggð- ar, óhugnanleg snjóflóð, mannskað- ar á sjó og landi, leiðtogafundir og landhelgisstríð, heimastjórn, full- veldi, lýðveldisstofnun, upphaf Há- skóla, heimsmet í verkföllum, hundabönn, bjórbönn, höft og einok- un og alls konar annar heimabak- aður vandi, hefur drifið á þessa rúm- lega 36.500 daga. Og allt þetta og fjöldamargt annað mætti nefna til sögunnar, sem fréttir og atburði, en eftir stendur að þegar öldin hófst leystust þau álög sem virtust liggja á viðkomu þjóðarinnar og hún reis einnig upp úr öskustónni – og flutti sig yfir í forystusæti meðal þjóða heims. Það er því rík ástæða til að kveðja 20. öldina með virktum og gerir ekk- ert til þótt einhverjum finnist að við séum að gera það í annað sinn. Aldr- ei er góð öld of oft kvödd. Og 21. öld- in er auðvitað aufúsugestur. Móti henni tekur þjóðin sem þroskað, vel- menntað og kappsamt ungviði ráðið í því að nýta þau tækifæri sem gefast og skapa þau tækifæri sem vantar. Ekki dettur okkur í hug að halda að búið sé að fjarlægja alla farar- tálma af farsældarvegi þessarar þjóðar. Síður en svo. Náttúran hefur engan eilífðarsaming gert við landsmenn um óuppsegjanlegan vinnufrið. Þar mun auðvitað á ýmsu ganga og flest ófyrirséð. En skilyrðin til að bregð- ast rétt og skynsam- lega við áföllum eru öll önnur og betri en áður var. Þekking okkar mannanna á eðli allra hluta er og verður brotakennd, en viljanum og getunni til að afla nýrrar þekkingar og bregðast hratt við vandamálum hef- ur fleygt fram. Síðastliðin tíu ár hafa orðið algjör umskipti í efnahagsumhverfi Íslend- inga. Ekki skal þessi hátíðarstund notuð til að gera grein fyrir þeim í smáatriðum, enda þekkjum við öll þær breytingar. Verðbólgan frá upp- hafi til loka þessa árs var um 4%. Það er til marks um hina miklu hug- arfarsbreytingu sem orðið hefur, að þegar nýlega var sett fram nokkuð ógætileg spá um að verðbólga kynni að verða um eða yfir 5,5% á næsta ári varð uppi fótur og fit og ýmsir tóku stórt upp í sig. Það var sem sé hugsanleg hækkun á verðlagi um 1,5% á heilu ári, sem olli þessu upp- námi. Þótt hamagangur af þessu tagi sé ástæðulaus er á hinn bóginn ánægjulegt að stöðugleiki í íslensk- um stjórnmálum sé orðinn slíkur, að þjóð sem fram til upphafs síðasta áratugar aldarinnar bjó að jafnaði við 30–80% verðbólgu skuli taka slíka verðlagsbreytingu svo nærri sér. Sem betur fer eru efnahagshorf- ur í upphafi nýrrar aldar vænlegar. Búast má við að sameiginlegar tekjur okkar vaxi næstu árin og ein- staklingum og fjölskyldum muni gef- ast góð tækifæri til að búa í haginn fyrir sig og sína. Efnahagurinn er mikilvægur fyrir okkur öll, en mun þó aldrei segja alla söguna. „Því hvað er auður og afl og hús ef eingin jurt vex í þinni krús?“ var spurt og við erum flest sammála um viðeig- andi svör. Efnaleg velsæld er aðeins ramminn um þá þjóðfélagsmynd sem við viljum sjá. Ég hef orðið var við að mörgum þykir sem minni þróttur sé nú í stjórnmálalegri umræðu en var á ár- um áður. Menn segja að hugsjóna- og hugmyndabaráttu skorti og stjórnmálamenn séu með marg- brotnar æfingar um útfærslu stefnu- miða, sem lítill ágreiningur sé um, en takist ekki á af hörku, hver með sína útgáfu af réttlætinu á gunnfánanum. Nú beri menn hvorki sverð hug- sjónamannsins né skjöld hinna góðu gilda til varnar. Þessi tilfinning er ekki út í bláinn, en það er ekki með því sagt að rétt sé að harma þessa þróun. Meiri fólskuverk hafa verið framin í nafni hugsjóna sem ekkert hald reyndist í en af nokkru öðru til- efni. Og hávaðinn sem áður barst frá hugsjónabaráttunni er þagnaður, þar sem niðurstaða fékkst í þeim átökum. Hugmyndin sem byggðist á frelsi einstaklingsins hafði fullan sig- ur á þeirri sem gekk út frá forsjár- hyggju algóðs ríkisvalds. Og lífsskil- yrðin bötnuðu hvarvetna fyrir vikið. Sósíalisminn tapaði kalda stríðinu, sem var í raun þriðja heimsstyrjöld- in, þótt hún væri annarar gerðar en þær tvær fyrri. Þeim leik er því að mestu lokið. Það er því ekki að undra að hljóðara sé um hugsjónirnar nú á dögum en þegar hersveitirnar sáu um undirleikinn. En það merkir ekki að öllum sé sama um allt og engum sé lengur mikið niðri fyrir. Öðru nær. En framvegis verður baráttan friðsamari. Á sama tíma og Ísland lifir sinn besta áratug í efnahagslegu tilliti eru forystumenn stjórnmál- anna hægt og örugglega að draga úr eigin valdi og færa það til fólksins í þeirri vissu að þjóðin sjálf kunni bet- ur með það að fara en þeir. Þetta gengur þvert á þróunina á fyrri hluta aldarinnar, þegar hugsjónir þjóðernissósíalista annars vegar og kommúnista hins vegar gengu með mismunandi blæbrigðum út á hið öfl- uga og óskeikula ríkisvald. Sömu þróunar gætir víðast hvar annars staðar í heiminum. Þessi valdatil- færsla frá foringjum til fjöldans hef- ur gengið vel síðustu tíu árin og eyk- ur það líkur á að málum verði vel stjórnað á þeirri öld sem í hönd fer. Því að mestu ófarir á öldinni voru þrátt fyrir allt ekki óvæginni náttúru að kenna, heldur miklu fremur þeim smámennum, sem lyft var á stall of- urmenna, í skjóli „háleitra“ hug- sjóna. Góðir Íslendingar. Við þekkjum það öll að sú ferð er líklegust til að heppnast vel sem vandlega er und- irbúin og þar sem nestið er nægilegt og notadrjúgt. Við göngum vel nest- uð á vit nýrrar aldar og höfum glögga mynd af því sem við viljum. Því mun íslenska þjóðin sameigin- lega yfirstíga þær þrautir sem á veg- inum verða og njóta alls þess yndis og ágætis sem öldin mun hafa upp á að bjóða. Ég þakka samfylgdina á liðnu ári og óska löndum mínum nær og fjær gleðilegs árs og gleðilegrar aldar. Áramótaávarp Davíðs Oddssonar forsætisráðherra Við göngum vel nestuð á vit nýrrar aldar Davíð Oddsson Gleðilegt nýtt ár! Þökkum viðskiptin á liðnu ári Fiskbúðin Vör Höfðabakka 1 sími 587 5070 Hrogn og lifur Glæný línuýsa Fyrstir koma, fyrstir fá Nýbakað rúgbrauð Opnum kl. 8.00 Breska búðin Laugavegi 54, sími 552 2535 Útsalan er hafin 25–70% afsláttur SLIM-LINE dömubuxur frá tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.