Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 30
ERLENT 30 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ TVÖ taívönsk farþegaskip lögðust að bryggju í Fujian-héraði í Kína í gær eftir sögulega siglingu frá tveimur eyjum á Taívan, Quemoy og Matsu. Er þetta í fyrsta sinn í rúma hálfa öld sem skip sigla milli Taívans og Kína með löglegum hætti án þess að hafa viðkomu í Hong Kong eða á öðrum stöðum. Taívanar bönnuðu bein viðskipti, ferðir og póstflutninga milli Taívans og Kína árið 1949 en hafa nú heim- ilað takmörkuð viðskipti og siglingar milli eyjanna tveggja og Fujian-hér- aðs. Aðeins íbúum Quemoy og Matsu er heimilt að ferðast beint til Fujian og aðrir Taívanar þurfa enn að fara fyrst til Hong Kong eða annarra staða til að ferðast til meginlands Kína. Taívanar vona að beinar siglingar og takmörkuð viðskiptatengsl dragi úr spennunni milli Kína og Taívans og sigling skipanna tveggja varð til þess að gengi hlutabréfa í taívönsk- um fyrirtækjum hækkaði um 4% í gær. Vilja að bannið verði afnumið algerlega Kínversk stjórnvöld samþykktu siglingarnar með semingi og gagn- rýndu Taívana fyrir að afnema ekki ferða- og viðskiptabannið algerlega. Fjölmiðlar í Hong Kong segja að Kínverjar óttist að Taívanar noti takmarkað afnám bannsins sem af- sökun til að slá samningaviðræðum um sameiningu Kína og Taívans á frest. Taívanska farþegaskipið Taima kom til Fuzhou, höfuðstaðar Fujian, með um 498 ferðamenn og 16 frétta- menn. Skömmu síðar lagðist annað farþegaskip, Dawu, að bryggju í Xiamen með 192 manna sendinefnd frá Quemoy, sem hefur einnig verið nefnd Kinmen. Kínverjar gerðu harðar sprengjuárásir á eyjuna í ágúst 1958 og héldu þeim áfram öðru hvoru til ársins 1979. „Þetta er eins og að koma aftur til föðurlandsins,“ sagði Chen Shui-ts- ai, héraðsstjóri Quemoy, sem var á meðal farþega Dawu. „Aðeins 6.000 metrar skilja Quemoy og Xiamen að en ferðin tók 52 ár.“ Sigling skipanna tveggja hefur einkum táknræna þýðingu því flutn- ingaskip hafa siglt á milli taívönsku eyjanna tveggja og Fujian í tæpan áratug. Taívönsk stjórnvöld hafa lýst þessum flutningum sem smygli en hafa nú heimilað þá. Taívanar heimila sigl- ingar til Kína Xiamen. Reuters, AP. AP Taívanskir íbúar Xiamen í Kína bjóða taívanska ferðamenn velkomna eftir að skip þeirra lagðist að bryggju í gær. Er þetta í fyrsta sinn í rúm 50 ár sem skipum hefur verið heimilað að sigla frá Taívan til Fujian- héraðs í Kína án þess að hafa viðkomu í Hong Kong eða öðrum stöðum. TALA látinna í einu mesta fer- juslysi í Bangladesh var komin í 176 í gær og var þá meira en 70 manns saknað. Varð slysið síðastliðinn föstudag þegar tvær ferjur rákust á í dimmri þoku á Meghna-fljóti. Slapp önnur án nokkurs skaða en hin, sem var með tvö þilför og um 400 manns um borð, klofnaði í tvennt og sökk. Ferjuslys eru mjög tíð í Bangladesh en þar hvolfdi þeim að minnsta kosti sjö á síðasta ári. Stór vatns- orkuver úrelt TÍMI stórra vatnsaflsvirkjana í Noregi er liðinn. Kom þetta fram í nýársræðu Jens Stolten- bergs, forsætisráðherra Nor- egs, en hann tilkynnti jafn- framt, að ríkisstjórnin hefði hætt við fyrirhugaða stækkun vatnsaflsvirkjananna í Bjøll- åga, Melfjord og Beiarn í Norð- landi. Kvaðst hann vita, að ekki væru allir sammála þeirri ákvörðun en hagurinn af stækkun væri ekki nógu mikill til að unnt væri að réttlæta þann skaða sem náttúran yrði fyrir vegna framkvæmdanna. Sagði Stoltenberg, að verðmæti óspilltrar náttúru ykist stöð- ugt. Neita ábyrgð á sprengingum TALSMAÐUR einnar skæru- liðahreyfingar múslima á Fil- ippseyjum neitaði í gær, að hreyfingin bæri ábyrgð á fimm sprengingum í Manila, höfuð- borg landsins, síðastliðinn laug- ardag. Urðu þær á ýmsum stöðum og urðu 16 manns að bana og slösuðu meira en 100. Abu Cantada, talsmaður Abu Sayyaf-skæruliðahreyfingar- innar, sagði, að þeir, sem raun- verulega bæru ábyrgð á hryðjuverkunum, notuðu músl- ímsku skæruliðana sem skálka- skjól. Rafmagns- leysi í Svíþjóð UM 30.000 heimili voru enn þá rafmagnslaus í Svíþjóð í gær, nokkrum dögum eftir mikla snjókomu sem sligaði raf- magnslínur. Um 25.000 heimili í suðvesturhluta landsins hafa verið án rafmagns frá því á laugardag og um 5.000 heimili í Vestur-Svíþjóð. Samgöngur gengu einnig að miklu leyti úr skorðum vegna snjókomunnar. N-Indland rafmagns- laust ALLUR norðurhluti Indlands var rafmagnslaus í gær en þá hrundi allt kerfið á þessum slóðum. Byrjaði það með því, að bilun kom upp í einni stöð í Utt- ar Pradesh og það olli aftur bil- unum í næstu ríkjum og höf- uðborginni, Nýju-Delhi. Hefur verið fyrirskipuð opinber rann- sókn á uppákomunni. STUTT Ferjuslys í Bangla- desh KAFARAR og björgunarflokkar tyrknesku strandgæslunnar leituðu í gær að 40 til 50 manns, sem sakn- að er eftir að flutningaskip skráð í Georgíu sökk skammt frá hafnar- bænum Antalya á Miðjarðarhafs- strönd Tyrklands sl. mánudag. Fannst einn maður á lífi í sjónum í gær en þeir, sem saknað er, er fólk, sem ætlaði að komast ólöglega til Grikklands. Í áhöfn skipsins, sem heitir Pati, voru aðeins 10 menn en talið er, að um borð hafi verið 80 manns að auki, ólöglegir innflytjendur frá Indlandi, Pakistan, Íran, Afganist- an, Marokkó og Bangladesh. Kom skipið við í Antalya í Tyrklandi en skömmu eftir brottför þaðan bilaði vélin í mjög slæmu veðri. Rak skipið þar til það tók niðri á skeri við ströndina þar sem það brotnaði í tvennt. Varð aftari hlutinn eftir á skerinu en framskipið allt, þar á meðal lestarrýmið þar sem ólöglegu innflytjendurnir voru faldir, sökk í sæ. Á mánudag tókst að bjarga 32 mönnum af aftari skipshlutanum og þá fundust lík sjö manna í sjónum. Tyrkneska lögreglan hefur kyrr- sett grískan skipstjóra skipsins og hafið rannsókn á slysinu. Skipið fór frá Ashdod í Ísrael 27. desember sl. og ætlaði að taka sement í Antalya. Mikil snjóþyngsl í Tyrklandi og frí- dagar vegna loka föstumánaðarins komu þó í veg fyrir það og skip- stjórinn ákvað þá að sigla skipinu til Piraeus í Grikklandi. Tyrkneskir björgunarmenn komu auga á einn mann á sundi í sjónum skammt frá skipinu í gær og gekk greiðlega að ná honum upp. Var um að ræða 27 ára gamlan mann frá Bangladesh. Litlar vonir eru um, að aðrir finnist lifandi. Haft var eftir manninum, sem bjargaðist í gær, að fólkið, ólöglegu innflytjendurnir, hefði farið um borð í Pati rétt við Antalya. AP Helmingur skipsins sat eftir á skeri eða klettum við ströndina. Óttast er, að allt að 50 ólöglegir innflytjendur hafi farist. Flutningaskip brotnaði á skeri við Tyrkland Ankara, Antalya. AFP, AP, Reuters. 40 til 50 ólöglegir innflytjendur taldir af eftir sjóslys TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, losnaði úr heldur óþægi- legri stöðu í gær þegar breski út- gefandinn Paul Hamlyn, lávarður og stuðningsmaður Verkamanna- flokksins til margra ára, tilkynnti að hann væri hinn nafnlausi styrkt- araðili Verkamannaflokksins sem deilt hefur verið um undanfarna daga í Bretlandi. Breska blaðið The Sunday Tele- graph upplýsti nú um helgina að flokknum hefði borist tveggja millj- óna punda framlag í kosningasjóð eða um 252 milljónir ísl. króna. Blair var strax hvattur til að upp- lýsa hver stæði að baki því. Stjórn- arandstaðan og sumir háttsettir einstaklingar úr Verkamanna- flokknum voru meðal þeirra sem harðast gengu fram í því að krefj- ast þess að málið yrði upplýst. Hátt framlag gæti dregið úr trausti kjósenda Þeir síðarnefndu óttuðust mjög að svona hátt framlag myndi vekja grunsemdir meðal kjósenda um að ríkisstjórnin hefði hagsmuni auð- kýfinga að leiðarljósi í stað lands- manna allra. Samkvæmt núgildandi lögum ber Verkamannaflokknum ekki að upplýsa um hverjir leggja fram fé í kosningasjóði hans en ný lög um þetta taka gildi í febrúar. Hamlyn sagði í yfirlýsingu sinni að hann hefði tekið þá ákvörðun eftir að hafa fylgst með umræðunni í breskum fjölmiðlum að gefa sig fram. Charlie Falconer, ráðherra í rík- isstjórninni og náinn sam- verkamaður Blair, var greinilega létt þegar hann ræddi um nafn- greininguna í sjónvarpsviðtali í gær. Hann sagði ósanngjarnt að gagnrýna Hamlyn fyrir að hafa ekki komið fram í sviðsljósið fyrr, en Hamlyn er bæði með parkinson- veiki og krabbamein. Blair getur verið ánægður með að betur rættist úr þessu máli en síðasta rifrildi í kringum fjármál flokksins sem tengdist háu fram- lagi skipuleggjanda Formúlu eitt kappakstursins. Verkamannaflokkurinn komst til valda á sínum tíma m.a. vegna hneykslismála í Íhaldsflokknum og er flokknum mikið í mun að flækj- ast ekki í hneykslisvef sem gæti haft sigur í komandi kosningum af honum. Blair slepp- ur með skrekkinn London. AFP. ÍRSKA stjórnin lagði á ráðin um það 1970 að ráðast inn í Norður- Írland í því skyni að vernda kaþ- ólskt fólk þar og búa það vopnum til að það gæti varist sjálft. Kemur þetta fram í stjórnarskjölum, sem nú hafa verið gerð opinber. Sagnfræðingar telja sig hafa vitað það lengi, að áætlanir af þessu tagi hafi verið gerðar, en það hefur ekki verið staðfest opinberlega fyrr en nú. Á þessum tíma var mikil ókyrrð á N-Írlandi. Í Belfast höfðu mótmæl- endur ráðist á heimili kaþólskra manna og breska stjórnin sendi her- lið til héraðsins til að reyna að kveða niður óöldina. Jack Lynch, forsætis- ráðherra Írlands, sagði í ávarpi 13. ágúst 1969, að írska stjórnin gæti ekki horft aðgerðalaus upp á, að saklausu fólki væri misþyrmt eða leikið enn verr, en opinberlega gekk hann þó aldrei lengra en að hvetja til, að Sameinuðu þjóðirnar sendu gæslulið til héraðsins. Það var síðan 6. febrúar 1970, að Lynch skipaði yfirmanni írska her- ráðsins að þjálfa herinn með innrás í Norður-Írland fyrir augum. Þá skyldi séð til þess, að kaþólskt fólk á N-Írlandi fengi vopn í hendur til að verja sig með. Í júní þetta sama ár tilkynnti yf- irmaður herráðsins, Sean McKeown hershöfðingi, að herinn gæti aðeins sent 800 manns inn í Newry á N- Írlandi í sólarhring og yrði þó að gera ráð fyrir allmiklu mannfalli. Þessum áætlunum var aldrei hrint í framkvæmd en síðar voru þeir Charles Haughey fjármálaráð- herra og Neil Blaney landbúnaðar- ráðherra reknir úr stjórninni og sakaðir um að hafa ætlað að senda IRA, Írska lýðveldishernum á N- Írlandi, vopn. Voru þeir báðir sýkn- aðir af því og Haughey varð for- sætisráðherra 1979. Blaney hafði hins vegar lagt til í stjórninni, að írski herinn reyndi að leggja undir sig Londonderry á N-Írlandi, en þar voru mikil átök milli kaþólskra manna og mótmælenda. Áætlun um innrás í N-Írland Dyflinni. AP. Þrjátíu ára gömul írsk stjórnarskjöl gerð opinber
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.