Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 73 DAGBÓK H ö n n u n : G u n n a r S te in þ ó rs so n / F ÍT / 0 1 .2 0 0 1 Safnaðarheimili Háteigskirkju Háteigsvegi • Sími 553 8360 F é l a g í s l e n s k r a l i s t d a n s a r a Allir aldurshópar frá 4 ára Innritun og upplýsingar í síma 553 8360 frá kl.15-18 Kennsla hefst 10. janúar Jákvæð hugsun Meira sjálfsöryggi Upplýsingar í síma 694 5494 Næstu námskeið hefjast 15/1 í Reykjanesbæ og 18/1 í Reykjavík. Með sjálfsdáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur. Námskeið og einkatímar Hjá Svönu Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996. Útsalan hefst á morgun LAUGAVEGI 36 Opnaðu augun 30% verðlækkun á öllum gleraugnaumgjörðum & gleri. ÞEGAR vikið er út af við- tekinni venju í vörn er hug- myndin oft sú að vekja makker til umhugsunar. Það er viðtekin varnarregla að spila „ofan af röð“ og þess vegna ætti makker að kveikja á perunni þegar reglan er brotin: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ D862 ♥ 3 ♦ ÁKG97 ♣ 1054 Vestur Austur ♠ 5 ♠ G10 ♥ KG1042 ♥ Á9876 ♦ D86 ♦ 5432 ♣ Á973 ♣ KD Suður ♠ ÁK9743 ♥ D5 ♦ 10 ♣ G862 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 2 spaðar Pass 4 spaðar Allir pass Vestur spilar út hjarta- gosa og austur tekur fyrsta slaginn með ás og verður augljóslega að skipta yfir í lauf. En hvaða lauf? Eina leiðin til að sannfæra mak- ker um tvíspil í litnum – og þar með nauðsyn þess að yf- irdrepa síðara laufið – er að spila fyrst drottningunni, svo kóngnum. Slíkt brot á grundvallarreglu fær mak- ker til að staldra við og hugsa. Þetta er tiltölulega einfalt dæmi, en staðan gefur tilefni til frekari hugleiðinga. Í hvaða röð ætti austur að spila laufum sínum með KDx eða KDxx? Hin hefð- bundna aðferð er að spila fyrst kóng, síðan drottningu frá upphaflegum þrílit, en fyrst kóng og svo smáu með fjórlit. Sem skiptir oft máli þegar makker þarf upplýs- ingar um lengd sagnhafa í litnum. Fleiri atriði hanga á spýt- unni þegar um hjón blönk er að ræða. Til dæmis er vara- samt að spila út drottning- unni í upphafi frá stökum hjónum, því ef sagnhafi tek- ur fyrsta slaginn með ás, veit makker ekki um kóng- inn hjá útspilaranum. Með ásinn í blindum er ennfrem- ur óráðlegt í mörgum tilfell- um að spila drottningunni inni í miðju spili, því það blekkir makker varðandi kónginn. Það er í rauninni aðeins þegar miklar líkur eru á því að makker sé með ásinn í litnum að rétt er að brjóta regluna og spila drottningunni frá KD. Að því leyti er þessi staða allt önnur en ÁK tvíspil, en þá er iðulega rétt að taka fyrst á kónginn. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake STEINGEIT Afmælisbarn dagsins: Þú ert hlédrægur og skilar því mynd þinni afleitlega til annarra, en í raun ertu bæði raungóður og ráðhollur. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Láttu ekki aðra hrifsa til sín það sem í raun er þinn hlut- ur. Gættu þess að haga væntingum þínum alltaf í samræmi við það sem þú veist mögulegt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Flýttu þér hægt. Sígandi lukka er best og því eru all- ar sviptingar til lítils, þegar upp er staðið. Einhver kem- ur þér verulega á óvart í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Leggðu þitt af mörkum svo samstarfið gangi áfallalaust fyrir sig. Fáðu aðstoð, ef það er það sem þarf til þess að þú getir staðið við þitt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Taumlaus sjálfselska hittir aðeins þann fyrir, sem beitir henni. Þess vegna skaltu söðla um og sýna öðrum til- litssemi og virðingu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nú stefnir í að þú hittir fyr- ir þá sem eru sama sinnis og þú og reiðubúnir til þess að vinna málstað ykkar braut- argengi. Vertu viðbúinn. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það getur reynst mikil kúnst að segja nei, þegar það á við. Hertu upp hug- ann, því endalaus undan- látssemi skilar þér bara örð- ugleikum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Einlægni er það sem þú þarft að hafa í huga, þegar þú talar fyrir þeim málefn- um, sem þú berð fyrir brjósti. Leikaraskapur fell- ur bara um sjálfan sig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu að sýna ögn meiri þolinmæði, því að öðrum kosti áttu á hættu að missa allt út úr höndunum á þér. Þú þarft á öðrum að halda. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Byrjaðu bara með það sem þú hefur við höndina og annað mun berast þér eftir því sem við á, þegar verk- efninu fer að miða eitthvað. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Láttu ekki erfiðar minning- ar úr fortíðinni standa í vegi fyrir þér, þegar þú hefst nú handa á nýrri öld. Horfðu fyrst og fremst fram á veg- inn. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þér tekst einhvern veginn ekki að ná til þeirra, sem þú vilt að kynnist málstað þín- um. Endurskoðaðu áætlun þína og breyttu henni. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er bara rétt að segja öðrum sannleikann um það sem manni finnst. Öll und- anbrögð leiða til misskiln- ings sem þú getur ekki ann- að en tapað á. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. Í gær,2. janúar, varð átt- ræð Guðrún Þorvalsdóttir, Grandavegi 4, Reykjavík. Í tilefni þess tekur hún á móti vinum og vandamönnum nk. laugardag 6. janúar í Vík- ingasal Hótels Loftleiða kl. 15–18. GULLBRÚÐKAUP. Hinn 26. desember sl. áttu 50 ára hjú- skaparafmæli hjónin Guðrún Brynjólfsdóttir og Valtýr Sæ- mundsson, Mávabraut 16, Keflavík. LJÓÐABROT VÍSUR ...Eik veit eg standa í bláfjalli regindigra og ríka að kvistum, hver af vovindum vatzt og knúðist, barðist baðmur, en blöð losnuðu. Kvist leit eg standa í kyrrum dal lágan og lítinn, laufum grænan; hann af byl skæðum barðist hvergi, en geymdi blóm og barr í blálogni... Stefán Ólafsson. Hvítur á leik. Staðan kom upp í A-flokki York skákhátíðarinnar er lauk fyrir stuttu. Enski stór- meistarinn Peter Wells stýrði hvítu mönnunum gegn Alexei Barsov frá Ús- bekistan. 25.Rg5! Rh6? 25...fxg5 hefði veitt mun meira viðnám þar sem eftir t.d. 26. Hxf7 Dxc7 er ekki á hreinu hvernig hvítur held- ur áfram til sigurs. 26.Hxd7! Db6+ 26...Dxd7 27. Dxh6 er unnið á hvítt. 27.Kh1 fxg5 28.Hfxf7! Dg6 29.Hfe7+ Kf8 30.Df3+ Kg8 31.He6 og svartur gafst upp. Skeljungs- mótið var haldið 30. desember sl. Alls voru 7 stórmeistarar með af 20 þátttakendum. Staða efstu manna varð þessi: 1. Hannes Hlífar Stefánsson 16 ½ vinn- ingar af 19 mögulegum 2.-4. Helgi Áss Grétarsson, Helgi Ólafsson og Þröstur Þór- hallsson 14 ½ v. 5. Jóhann Hjartarson 13 v. 6. Margeir Pétursson 12 ½ v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson                                       !!! "#  # $             %         &"        &                 &   &    '                      (  )&"         *          +    &           , "      &  &           -./0 1          2     &    -00 (          & 2.-00 3 -.-/      $     -.0 4 -.-/ 3 -./0 Þetta er í síð- asta skiptið sem hund- urinn sækir blaðið! Minningarkort Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna www.skb.is/framlog/minningarkort.html Sími 588 7555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.