Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 70
70 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÉG LAS á dögunum sögu ungrar stúlku sem vér skulum nefna Siggu. Sigga var lítil góð telpa sem gekk vel í skóla, var með hæstu einkunnir í öllum greinum. Kennarar hennar sendu hana á ýmis námskeið, s.s. í eðlisfræði, list og ljósmyndun. Framtíðin björt beið hennar í faðmi hamingjusamrar fjölskyldu. Hún átti ástríkan föður, sem naut virðingar hvar sem hann fór, ekki sízt innan fyrirtækisins, sem hann vann hjá. Þannig lifði fjölskyldan í nokkur ár hamingjusömu lífi, en þegar Sigga var u.þ.b. 12 ára gömul fór áfengisdrykkja föður hennar úr böndunum. Á örskömmum tíma breyttist hann úr ástríkum föður í skelfilegt skrímsli. Hann drakk daga sem nætur og svo byrjaði hann að beita Siggu, bróður hennar og móður ofbeldi. Oft máttu þau tímunum sam- an fela sig inni í skáp. Færi svo að hann fyndi þau sparkaði hann þeim út úr húsinu, jafnvel á sokkaleistun- um einum, þótt snjór væri úti. Þetta ástand varaði árum saman og fyrir Siggu og fjölskyldu hennar varð lífið æ erfiðara. Sigga var ein af þeim sem leituðu á vit áfengis og síðar annarra vímuefna til að deyfa sársaukann hið innra, eða það hélt hún, saga hennar endaði þó vel en hún birti mér sann- indi gömul og ný. Vímuefnin eru um allt, falin undir fögru yfirborði, jafnvel farða menn- ingar. Fleira og fleira ungt fólk kemst í kynni við eiturlyf, fyrst er það áfengið og neyzla þess, þar á eft- ir koma svo önnur eiturlyf. Kostn- aðurinn af stefnuleysinu í áfengis- varnarmálum tekur sinn alvarlega toll. Aukið aðgengi að áfengi eru leiðarljósin í dag og allir vita eða eiga að vita að það eykur neyzluna, það sýnir og sannar reynsla annarra þjóða. Í skýrslum Hagstofunnar má lesa að áfengisneyzla 1999 hafi verið meiri en áður hefur mælzt, eða rúmir 5,9 alkóhóllítrar á hvert mannsbarn 14 ára og eldra eða eins mikið og jafnvel meira en í Svíþjóð og Noregi. Þannig jókst áfengisneyzla um 11% á árinu, og hvorki meira né minna en þriðjungs aukning á bjór. Á Græn- landi minnkar neyzlan úr 21 lítra nið- ur í 9, á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið svipað og áður, aðeins hjá okkur Íslendingum eykst hlutfallið. Eitt er alveg ljóst að eftir að bjórsal- an var leyfð hefur heildarneyzla áfengis aukist verulega, þvert ofan í allar spár bjórsinna. Nú heyrast raddir, einkum frá verzlunarstéttinni, um að leyfa eigi sölu á léttvíni og bjór í matvöruverzl- unum undir yfirskini margumrædds frelsis. Þeir sem á þann veg tala láta sig afleiðingarnar litlu varða. Nei, hvað skyldi þá líka varða um það þótt það auki á drykkjuskap og óham- ingju í kjölfarið. Til er fræg setning í stuðla sett: „Um leið og gullið skellur í skrínu, skreppur sál úr eldsins pínu.“ Máske áfengisauðvaldið trúi á þessa gömlu bábilju? Allavega virð- ist mönnum á þeim bæ standa á sama um hinar hörmulegu afleiðing- ar þessa. Er ekki kominn tími til að stemma á að ósi? BJÖRN G. EIRÍKSSON, sérkennari. Hugleiðing um bindindismál Frá Birni G. Eiríkssyni: HINN 23. desember birtist í Morg- unblaðinu grein sem bar yfirskrift- ina umönnunarstörf, verðmæti og umbun og er frá starfsmönnum í heimaþjónustu í Bólstaðarhlíð. Fram kemur í greininni mis- skilningur sem ekki verður hjá komist að leið- rétta. Vísað er til þess að starfandi sé nefnd á vegum heilbrigðisráðuneytisins um ímynd ellinnar og það að starfa með öldr- uðum. Rétt er að undirrituð á sæti í nefndinni en hlutverk hennar er m.a. að finna leiðir til að gera umönnun- arstörf eftirsóknarverðari og bæta ímynd þeirra í samfélaginu. Fram kemur að greinarhöfundar telja að störf í heimaþjónustu hafi þróast meira yfir í almenn þrif í stað þess að sinna félagslega þættinum. Undir þetta vil ég taka en það getur þó ver- ið mismunur milli hverfa, einnig má rekja þetta til manneklu undanfar- inna ára. Þessu þarf að breyta. Varðandi það að störf mín innan nefndarinnar hafi opnað augu mín fyrir störfum fólks við umönnun vísa ég til starfa minna á undanförnum árum þar sem ég hef unnið að því á ýmsum sviðum að auka virðingu og þekkingu á heimaþjónustu og umönnunarstörfum. Þannig hafa til dæmis verið byggð upp sérstök nám- skeið fyrir heimaþjónustu þar sem markmiðið er m.a. að byggja upp starfsmenn til að takast á við krefj- andi verkefni í starfi. Varðandi launaþáttinn sem tekinn er upp í greininni þar sem rætt er um að starfsmenn hafi ekki fundið fyrir þeim launahækkunum sem ég nefndi í grein minni frá í nóv. sl. þá er verið að fjalla um þá samninga sem gerðir hafa verið við ríkið og hjúkrunarheimilin en ekki um samn- inga við Reykjavíkurborg, enda eru þeir lausir nú um áramótin og verið að vinna við undirbúning þeirra. En laun í heimaþjónustu eru greidd samkvæmt Reykjavíkurborgar- samningi. Að öðru leyti tel ég eðlilegast að við hittumst á fundi og förum yfir málin og það sem kann að vera óút- skýrt fái sína umræðu þar. Með félagskveðju. ÞÓRUNN H. SVEINBJÖRNSDÓTTIR, varaformaður Eflingar. Umönnunarstörf, verðmæti og umbun Frá Þórunni H. Sveinbjörnsdóttur: Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir                                      !      "#$ % !  !   !     & '        !   (   ! !   &   BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.