Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Chrome Mate frá
Áhrifarík megrun
Apótekin
Reykholtsdal - Verslunarhúsnæði
Hraðbúðar Esso í Reykholtsdal í
Borgarfirði lætur ekki mikið yfir
sér þegar komið er að því, en ferða-
menn rekur oft í rogastans yfir
vöruúrvalinu þegar inn er komið.
Til að geta haldið úti miklu vöruúr-
vali samfara aukinni þjónustu hefur
þessa dagana sérstöku lagerhús-
næði verið bætt við verslunina. En
búast má við að hægt verði að
kaupa þar heitar pylsur, samlokur
o.fl. með vorinu.
Hjónin Kristinn Hannesson og
Ingunn Sveinsdóttir keyptu versl-
unina, sem áður hét Bitinn, um ára-
mót í fyrra og reka bensínafgreiðsl-
una sem umboðsaðilar Esso. Þau
komu austan frá Neskaupstað í
Borgarnes fyrir fjórum árum og
tóku fljótlega stefnuna á sveitir
Borgarfjarðar og hafa einnig keypt
íbúðarhús undir fjölskylduna stein-
snar frá versluninni. Þau segjast
kunna mjög vel við sig, viðtökur
fólks hafi verið góðar í alla staði og
velta verslunarinnar standi fyllilega
undir væntingum þeirra.
Í anda Esso-nestis
Kristinn er bakarameistari að
mennt og stefnir einnig á að vera
með eigin brauðbakstur í verslun-
inni. „Þetta er í anda Esso-nestis-
stöðvanna,“ segir hann, „sem opn-
aðar hafa verið á nokkrum stöðum á
Reykjavíkursvæðinu, en þar er boð-
ið upp á nýbakað brauð og bakk-
elsi.“ Með reynslu sína af bakarís-
rekstri í farteskinu fullyrðir
Kristinn, að virk þjónusta sé undir-
staðan í allri verslun.
„Við lengdum afgreiðslutímann
fram til kl. 20 alla daga vikunnar,
sem gerir þetta að fullu starfi fyrir
okkur bæði, auk þess sem við erum
með sumarstarfsfólk.“
Kristinn segir það vera í bígerð
hjá Esso að gera umbætur á plan-
inu umhverfis bensínsöluna og hann
sé sjálfur að velta fyrir sér ýmsum
fleiri möguleikum í ferðaþjónustu-
málum. Með Reykholt í næsta ná-
grenni séu vaxtarmöguleikar
nokkrir og því bjóði staðurinn upp á
mikla möguleika.
„Aðalundirstaða verslunarinnar
er auðvitað heimafólkið,“ segir
hann, „en almennir ferðamenn eru
bónus. Við höfum auðvitað einungis
eins árs reynslu, en verslun hefur
verið rekin hér vel á annan áratug.
Með bættum samgöngum um Hval-
fjarðargöng og Borgarfjarðarbraut,
sem er smám saman að verða greið-
færari, virðist umferðin um svæðið
vera að aukast. Mikið er um að fólk
komi í sumarbústaðina yfir vetrar-
tímann, en þó alltaf sé fært stjórn-
ast þetta mikið af veðrinu. Megin-
umferðin í fyrra má segja að hafi
byrjað um páska,“ segir Kristinn.
Hjónin Kristinn Hannesson og Ingunn Sveinsdóttir framan við versl-
unina. Nýja lagerhúsnæðið er til vinstri.
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Vöruúrvalið í þessu litla húsi kemur ferðamönnum oft á óvart.
Ilmur af
brauðbakstri
væntanlegur í
Reykholtsdal
Hraðbúð Esso stækkar við sig
Bolungarvík - Bæjarstjórn Bol-
ungarvíkur bauð öllum íbúum Bol-
ungarvíkur sem eru á atvinnuleys-
isskrá til skötuveislu í samkomu-
húsinu Víkurbæ á Þorláksmessu.
Sem kunnugt er misstu um 90
manns atvinnu sína er Rækjuverk-
smiðja Nasco varð gjaldþrota í
byrjun desember.
„Við höfum átt prýðilega stund
hér og borðað saman sérlega góða
skötu eins og hún best gerist“,
sagði Ólafur Kristjánsson bæj-
arstjóri ogsagði það að koma sam-
an til skötuveislu að þessu sinni
fyrst og fremst gert í þeim til-
gangi eiga saman stund með þessu
góðu fólki á óvissutíma, en staða
atvinnumála í Bolungarvík væri
bæjarbúum mikið áhyggjuefni.
Allir vonast samt til að úr rætist
fyrr en síðar, en þangað til er
nauðsynlegt að halda haus og
horfa bjartsýnn fram á veginn.
Ólafur sagði að borist hefðu
góðar kveðjur frá Páli Péturssyni
félagsmálaráðherra sem hefði lýst
áhuga sínum á að heimsækja íbúa
Bolungarvíkur fljótlega á nýju ári.
Svæðisráð svæðismiðlunar Vest-
fjarða hefur sent frá sér ályktun
þar sem ráðið lýsir ánægju sinni
með viðbrögð bæjaryfirvalda í
Bolungarvík sem ásamt skötu-
veislunni gáfu öllum atvinnuleit-
endum frí aðgangskort í Sundlaug
Bolungarvíkur sem gilda til loka
janúar 2001, og Samkaup/Spar-
kaupsverslananna sem létu sig
það varða að fólk í Bolungarvík
og annarstaðar á norðanverðum
Vestfjörðum missti atvinnu sína
og gáfu fólkinu nú fyrir jólin 10%
afslátt af þremur úttektum í versl-
unum sínum.
Þá er til þess tekið hversu vel
og ákveðið Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Bolungarvíkur brást
við og studdi sitt fólk er gjaldþrot
Nasco dundi yfir.
Boðið til skötuveislu
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Bæjarstjórn Bolungarvíkur bauð öllum íbúum Bolungarvíkur sem
eru á atvinnuleysisskrá til skötuveislu í samkomuhúsinu Víkurbæ á
Þorláksmessu.
Hellnum - Jólin voru hvít í hluta
af sunnanverðum Snæfellsbæ
þetta árið. Aðfaranótt aðfanga-
dags snjóaði á litlu svæði frá
Hamraendum í Breiðuvík og
vestur að Malarrifi og nutu því
byggðakjarnarnir á Hellnum og
Arnarstapa þess að hafa hvít
jól. Miklar stillur voru bæði á
aðfangadag og jóladag og vetr-
arsólin baðaði landið geislum
sínum yfir jólahátíðina.
Skreytingar og ljós prýddu
hús á Hellnum og Arnarstapa
og leiði í Hellnakirkjugarði.
Ekki var haldin guðsþjónusta í
Hellnakirkju um jólin en boðið
var upp á sameiginlega guðs-
þjónustu með Staðastaðar-
prestakalli í Búðakirkju á ann-
an dag jóla. Margir nýttu sér
góða veðrið til gönguferða yfir
hátíðina og heimsóttu m.a.
Maríulindina á Hellnum. Stytt-
an af guðsmóðurinni var skrýdd
snjókraga þar sem hún vakti
þögul yfir lindinni, en yfirborð
hennar var frosið þótt greina
mætti að affallið frá henni sytr-
aði áfram í litlum þröngum far-
vegi. Smáfuglar sóttu heim til
húsa um leið og fór að snjóa og
fengu að sjálfsögðu jólaglaðn-
inginn sinn, en frostið fór mest í
6,5 gráður yfir hátíðisdagana.
Hvít jól
undir Jökli
Grindavík - Kvenfélag Grinda-
víkur kom færandi hendi í
Grunnskóla Grindavíkur nú á
dögunum. Þær gáfu sjónvarp og
myndbandstæki en þetta er
ekki það eina því á dögunum
gáfu þær þvottaspjöld og
þvottaleiðbeiningar í heimilis-
fræðina. Þá gáfu þær samskon-
ar gjöf í Grindavíkurkirkju nú
fyrir stuttu.
„Já, við erum alltaf að reyna
að láta gott af okkur leiða. Okk-
ur er eiginlega ekkert óviðkom-
andi en til þessa höfum við mik-
ið verið að styðja skólann,
heilsugæsluna, kirkjuna og
félagsaðstöðuna í Víðihlíð. Fjár-
aflanir hafa verið aðallega þrjár,
þ.e. sjómannadagskaffið, jóla-
kort og jóla- og páskabingó. Nú,
við höfum líka stutt fjárhags-
lega fjölskyldur um jólin. Það
sem okkur vantar helst er að fá
fleiri ungar konur til að starfa
með okkur,“ sagði Birna Óla-
dóttir, formaður kvenfélagsins.
Ekkert
óviðkom-
andi
Kvenfélagskonur
komu færandi hendi
Vestmannaeyjum - Árleg úthlutun úr
Styrktar- og menningarsjóði Spari-
sjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður
var fyrir 13 árum til minningar um
Þorstein Þ. Víglundsson, fór fram á
Þorláksmessu. Að þessu sinni voru
þrír styrkir veittir til einstaklings og
félagasamtaka.
Blátindur VE 21, áhugamanna-
félag fékk styrk vegna endurbygging-
ar vélbátsins Blátinds VE 21 og koma
honum í sýningar- og sjóhæft ástand.
Mb. Blátindur var byggður í Vest-
mannaeyjum árið 1947 úr eik og furu
og er hann 45 smálestir. Blátindur var
samfellt í útgerð til ársins 1992, en
hefur síðan staðið uppi í slipp í Vest-
mannaeyjum. Blátindur er óbreyttur
frá því hann var smíðaður og er t.d.
með upprunalegt stýrishús. Skipa-
smíðameistari hans var Gunnar Mar-
el Jónsson. Við úthlutun styrksins var
tekið mið af því að hér er á ferðinni
mikið menningarsögulegt mál fyrir
framtíðina og ókomnar kynslóðir, að
hafa aðgang að bát sem forfeður okk-
ar sóttu á sjóinn á öldinni sem leið.
Bára Grímsdóttir hlaut styrk úr
Styrktar- og menningarsjóði SPV, en
hún er tónmenntakennari og hefur
verið búsett í Vestmannaeyjum um
árabil og sett mikinn og sterkan svip á
allt tónlistarlíf í bænum. Bára hefur
verið stjórnandi Samkórs Vest-
mannaeyja þar sem hún hefur skilað
miklu starfi. Á þessu ári hefur Bára
víða komið við, m.a. var frumflutt eftir
hana tónverk í Skálholtskirkju í sum-
ar. Bára hefur starfað með þjóðlaga-
hópnum Emblu sem hefur kvatt sér
hljóðs á erlendri grundu. Bára hlaut
einnig starfslaun listamanna frá Al-
þingi sl. ár.
Mannfræðistofnun Háskóla Ís-
lands hlaut styrk úr Styrktar- og
minningarsjóði SPV á síðasta ári
vegna vinnu við undirbúning að gerð
sérstaks Eyjavefjar sem tengist Vest-
mannaeyjum og þá aðallega byggð-
arsafninu og Rannsóknarsetri Há-
skólans í Vestmannaeyjum með
margvíslegum hætti. Vefurinn var
opnaður fyrr á þessu ári, en seinni
hluti styrksins kom til greiðslu á
þessu ári. Gísli Pálsson, prófessor og
forstöðumaður Mannfræðistofnunar
Háskóla Íslands, hefur umsjón með
verkefninu.
Við afhendinga á styrkjunum flutti
Þór Í. Vilhjálmsson, stjórnarformað-
ur Sparisjóðs Vestmannaeyja, stutta
ræðu áður en hann afhenti fulltrúum
styrkþega styrkina. Styrkur Spari-
sjóðs Vestmannaeyja er gott innlegg í
menningar- og þjóðþrifamál í Vest-
mannaeyjum þar sem ávallt skortir fé
til rekstrar eða framkvæmda. Spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja
er Ólafur Elísson, fv. bæjarstjóri og
löggiltur endurskoðandi.
Sparisjóður Vest-
mannaeyja styrkir
menninguna
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Styrkþegar ásamt Ólafi Elíssyni sparisjóðsstjóra og Þór Í. Vilhjálmssyni
stjórnarformanni SPV.