Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 2
28 SÍÐUR Sérblöð í dag www.mb l . i s Lokaundirbúningur hafinn hjá landsliðinu í hand- knattleik fyrir HM/ B4 4 SÍÐUR 4 SÍÐUR FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ GRUNNSKÓLAKENNARAR og launanefnd sveitarfélaganna náðu á gamlársdag samkomu- lagi um alla meginþætti nýs kjarasamnings. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins felur kjara- samningurinn í sér að byrjunarlaun kennara, sem í dag eru um 110 þúsund krónur á mánuði, verði um 160 þúsund krónur. Þetta þýðir að með- allaun kennara verða nálægt 240 þúsund á mán- uði í lok samningstímans, en þau eru 180 þúsund í dag. Samningurinn felur einnig í sér verulegar breytingar á vinnuskipulagi og innra starfi skóla. Samningurinn hefur ekki formlega verið und- irritaður vegna þess að enn hefur ekki náðst sam- komulag milli sveitarfélaganna og skólastjóra, en skólastjórar eiga aðild að samningi kennara. Að forminu til semja kennarar og skólastjórar við sveitarfélögin í einum samningi þótt skólastjórar hafi mikla sérstöðu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er verulegur munur á þeim launakröfum sem skólastjórar hafa sett fram og þeim sem sveitarfélögin hafa talið rúmast innan ramma samningsins. Báðir aðilar stefna þó að því að ljúka samningum um helgina. Takist það verð- ur kjarasamningurinn formlega undirritaður og fer í kynningu hjá kennurum á næstu vikum. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, sagði að samningur grunn- skólakennara og sveitarfélaganna væri mjög merkilegur. Vinnubrögð við gerð samningsins væru ekki síður merkileg og til eftirbreytni. Kennarar og sveitarfélögin hefðu einsett sér að gera samning sem skilaði þeim árangri að bæta skólastarfið og hún sagði að það væri mat sitt að það hefði tekist. Guðrún Ebba sagðist telja fulla ástæðu til að hæla sveitarfélögunum fyrir hvern- ig þau hefðu staðið að þessari samningsgerð. Guðrún Ebba sagði að þegar grunnskólinn var fluttur til sveitarfélaganna árið 1996 hefðu verið höfð uppi stór orð um að nú gæfist tækifæri til að breyta kjörum kennara, skólastarfinu og vinnu- tímanum. Það hefði ekki tekist í kjarasamningn- um 1997 að gera þessar breytingar. Önnur til- raun hefði verið gerð 1999 til að ná samkomulagi um svokallaðan tilraunasamning sem átti að fela í sér verulegar breytingar á skipulagi, vinnutíma og kjörum kennara en það hefði mistekist. Báðir aðilar hefðu verið ósáttir við þá niðurstöðu. Von- brigði beggja aðila 1999 hefðu átt sinn þátt í að kennarar og sveitarfélögin einsettu sér að láta hlutina ganga upp að þessu sinni. Hún sagði að því væri ekki að neita að aðilar hefðu verið sam- mála um að nýta það sem menn töldu vera gott í þessum tilraunasamningi. Enn ósamið við skólastjóra Birgir Björn Sigurjónsson, formaður launa- nefndar sveitarfélaganna, sagðist telja að ef það samkomulag sem nú lægi fyrir yrði vísbending um samningsniðurstöðuna fæli það í sér mikil tímamót. Það ætti hins vegar eftir að ljúka mál- inu gagnvart skólastjórum og vonandi tækist það á allra næstu dögum. Birgir Björn sagði að það sem væri kannski óvenjulegt við þessa samningsgerð væri að launanefndin hefði sett sér margvísleg markmið um hvernig sveitarfélögin vildu bæta grunnskól- ann. Launanefndin teldi að það samkomulag sem nú lægi fyrir væri viðunandi hvað öll þessi meg- inmarkmið varðaði. Hann sagðist telja að þessa niðurstöðu mætti þakka hvernig báðir aðilar stilltu upp markmiðum og unnu sig að lausn. Þetta hefði verið afskaplega árangursríkur við- ræðuferill og til fyrirmyndar varðandi viðræður sem framundan eru fyrir aðra hópa. Samkomulag um öll meginatriði nýs samnings grunnskólakennara Verulegar breytingar verða á grunnkaupi ANNAR piltanna, sem komust lífs af úr flugslysi í Skerjafirði mánudagskvöldið 7. ágúst sl., er látinn. Hann hét Sturla Þór Friðriksson, 17 ára, búsettur í foreldrahúsum í Miðstræti 8a í Reykjavík. Að sögn læknis á Landspítalanum í Fossvogi lést hann að kvöldi nýársdags af völdum afleiðinga áverka sem hann hlaut í slysinu. Flugvélin sem fórst var af gerðinni Cessna 210 og voru fimm farþegar auk flugmanns í henni. Hún lagði af stað frá Vestmannaeyjum laust eftir klukkan 20 en brotlenti í Skerjafirði um hálfri stundu síðar. Flugmaður og tveir far- þegar fórust með vélinni og þriðji farþeginn lést á sjúkra- húsi skömmu eftir slysið. Tveir ungir piltar komust lífs af og sá sem eftir lifir núna hefur verið í endurhæfingu á Grensásdeild. Sturla Þór Friðriksson Annar pilt- anna látinn Það gefst færi til að reyna sig á skautum og sleðum af öllum gerð- um í froststillunum á suðvest- urlandinu. Þessir félagar voru með nýstárlegan sleða á Rauða- vatni sem knúinn er vindorkunni. Á vindsleða á Rauðavatni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Reiknað er með að þessum undir- búningsframkvæmdum verði lokið í mars á þessu ári en í apríl stendur til að bjóða út sjálfa brúarsmíðina. Lægsta tilboð í vinnuplanið kom frá Héraðsverki ehf. á Egilsstöðum, eða upp á 14,9 milljónir króna. Áætlun Vegagerðarinnar var upp á 25,4 millj- ónir þannig að lægsta boð reyndist 41% lægra en áætlunin. Önnur tilboð í verkið voru frá tæpum 19 milljónum til 22,5 milljóna og bárust frá verktök- um af Norður- og Austurlandi. Lægsta tilboð í framleiðslu steyptra undirstöðustaura undir brúna kom frá Sandi og stáli ehf. á Húsavík, eða 12,9 milljónir króna. Það er 13% lægra en áætlun Vegagerð- arinnar, sem var upp á 14,9 milljónir kr. Annað tilboð, upp á 14,1 milljón, var undir áætluninni og kom frá Vild- arverki ehf. frá Árbakka. Síðan voru sex tilboð hærri en áætl- unin, allt frá 16 að 24,6 milljónum kr. Staurarnir, alls 120 að tölu, koma undir 250 metra langa brú og eru 28 metra langir. Brúin verður því tölu- vert mannvirki enda hátt frá gilbarmi niður að sjálfri Jökulsánni við fyrir- hugað brúarstæði. Mörg tilboð í undirbúnings- framkvæmdir FJÖLDI tilboða barst Vegagerðinni í undirbúningsframkvæmdir fyrir vega- og brúargerð í Fljótsdal að stöðvarhúsi fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar. Annars vegar bárust fimm tilboð í vinnuplan við Jökulsá í Fljótsdal, öll undir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar, og hins vegar átta tilboð í framleiðslu nið- urreksstaura undir nýja brú yfir Jökulsá. Brúargerð vegna Fljótsdalsvirkjunar Flugslysið í Skerjafirði SKIPSTJÓRAR hjá Landhelgis- gæslunni hafa vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara. Flugumferðarstjórar vísuðu sinni kjaradeilu við ríkið einnig til sátta- semjara fyrir nokkrum vikum. Fundað hefur verið nokkuð reglu- lega í þeirri deilu að undanförnu. Að sögn sáttasemjara ber enn nokkuð á milli deiluaðila. Skipstjórar hjá Gæslunni til sáttasemjara ALLT tiltækt lið lögreglunnar á Ak- ureyri var kallað út í gærkvöld til þess að smala saman tólf hrossum sem sluppu úr hólfi skammt norðan við bæinn. Hrossin sluppu út á Hörg- árbrautina og fóru eftir henni áleiðis til Akureyrar. Skapaðist töluvert umferðaröngþveiti, að sögn lögreglu, en enginn skaði hlaust af. Eftir nokk- urn eltingarleik tókst lögreglunni, með aðstoð góðra manna, að koma hrossunum saman og snúa þeim við. Er þetta í annað sinn á skömmum tíma sem hross sleppa úr þessu hólfi. Eltu uppi tólf hross vikudagur anúar 2001 Prentsmiðja Morgunblaðsinsblað E aubyggðu æinn ð segir nna 2 Eldhúsoglitir Fyrsta heimilið Breytt og betrumbætt 16 Ingibjörg Sólrún á Bárugötu 30a 15 JÖRÐIN Langárfoss í Borgar- byggð (áður Álftárneshrepppi í Mýrarsýslu) er nú til sölu hjá Fast- eignamiðstöðinni. Um er að ræða landmikla jörð með ágætum bygg- ingum, m. a. góðu íbúðarhúsi. Þessi jörð er þekkt sem ein af mestu laxveiðijörðum landsins, en jörðin á land bæði að Langá og Ur- riðaá. „Við Langá hefur verið byggt glæsilegt veiðihús og hér er um ein- stakt tækifæri að ræða til þess að eignast landmikla jörð í fögru um- hverfi með miklum hlunnindum,“ sagði Magnús Leópoldsson hjá Fasteignamiðstöðinni. Jörðin er um það bil 1170 hekt- arar og á henni er íbúðarhús, sem að sögn Magnúsar Leópoldssonar er í mjög góðu ástandi. Útihúsum er vel við haldið og mjög snyrtilega um þau gengið og sama máli gegnir um tún og girðingar. Veiðitekjur af Langá og Urriðaá eru umtalsverðar, en eignarhlut- deild jarðarinnar í Langá er 19% og 36% í Urriðaá. Ekki er sett fast verð á jörðina en óskað eftir til- boðum. Landnámsjörð Langárfoss (eldra nafn Foss) á sér mikla sögu, en þetta var land- námsjörð. Jarðarinnar er getið í Egilssögu, en þar segir að Skalla- grímur hafi fengið Sæunni dóttur sinni og Þorfinni stranga búsetu þar. Til er kirkjumáldagi á Langár- fossi frá 1181. Að fornu mati var jörðin 50 hundruð. Land jarðarinn- ar skiptist í tún, mýrar og flóa með dreifðum klapparásum. Sunnan og vestan til í landinu, í svokallaðri Fosstungu, er lítils háttar birki- kjarr í ásunum og þar, sem þurr- lendara er. Að austan liggur landið að Langá á móti landi Ánabrekku, en að sunnan og vestan að Urriðaá, gegn landi Leirulækjar, Smiðjuhóls, Ur riðaár og Valshamars, en að norðan eru merki á móti Háholti, þvert yfi tunguna milli Urriðaár og Langár. Langá hefur lengi verið eftirsót sem stangveiðiá. Um 1880 va byggt vandað veiðihús í túninu á Langárfossi. Hús þetta komst síða í eigu skosks herforingja, sem keypti það ásamt veiðirétti í Langá árið 1904. Frá þeim tíma og fram ti ársins 1938 var veiðiréttur í Langá í eigu brezkra manna, en féll þá aft ur til jarðanna við ána. Veiðihúsið stendur enn, en hefu nú verið stækkað verulega með við byggingu. Íbúðarhús jarðarinna stendur skammt austan við Álfta neshreppsveg, stutt fyrir sunnan vegamótin móti Ólafsvíkurvegi, en stóð áður nokkru austar, næ Langá. Langárfoss á Mýrum til sölu Eignarhlutur jarðarinnar í Langá er 19% en 36% í Urriðaá. Ekki er sett fast verð á jörðina en óskað eftir tilboðum. Jörðin er til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni. Stjórnstöðvar fyrir hitakerfi sundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum allsstaðar á landinu                                   ! !"   ! ! #  $ "          &'! ! )!&%*! (! %+!&,%! (! ,,!&,)! (!  ! !                  /$  0  1 233 4 %-- % # ! . # ! 5 # ! %,! #  6 6 6       !  "!!!  #  $ "!!!   $ "!!  2)' 4 %-- $$ (> 8 $  $$  - 23, 23* 235 23) 2-- 1!           ;7 8  9  7 7 : <= netið GPRS GPRS er ný tegund gagnaflutn- ingsleiðar sem er viðbót við GSM- farsímakerfið og er ætlað að brúa bilið að þriðju kynslóð farsíma er kallast UMTS. GPRS verður tekið í almenna notkun hjá fjarskiptafyrir- tækjunum þremur í upphafi árs. Kerfið tryggir sítengingu við Netið og meiri gagnaflutningshraða en áður hefur þekkst. 4 Quake Skotleikurinn Quake hefur notið mikilla vinsælda á Netinu en hundr- uð manna spila leikinn hér á landi með þessum hætti. Einkum er keppt í Quake III og Action Quake en búið er að gefa út fjölmargar breytt- ar útgáfur af leiknum. Spilendur flokka sig eftir hópum og etja kappi hver við annan yfir Netið. 6 Aibo Sony hefur gefið út nýja útgáfu af rafhundinum Aibo sem hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum og Japan en hann seldist upp á fáeinum mín- útum er hann kom fyrst á markað. Hundurinn getur gert ýmsar hunda- kúnstir og tekið upp hljóð og staf- rænar myndir. 5 fl - i l i i i - f í fi l ili i j l f í ll . i í l j fj i f i - j í fi . fi i í i i i i i fl i f . l i i f i i ill i l i - il l i i l i i. i í III i i f fj l - f f l i . il fl i f i j i i fi i . i j f i i f l i í í í j l i i í - i - i i lj f- i . Ómar Ragnarsson flytur fréttir af liðinni öld. Pensúm – þáttur um háskólalífið á Íslandi og Buffy vampírubani snýr aftur. dagskráa TALSVERT BAR Á TÖLVU- ORMUM OG VÍRUSUM UM JÓL OG ÁRAMÓT EN ÞEIR ERU SAGÐIR HAFA VALD- IÐ LITLUM SKEMMDUM HJÁ TÖLVUNOTENDUM. SÁ SKÆÐASTI VAR KRIZ, EN HANN EYDDI SKRÁM Í TÖLVUM. 3 - Í I I - I I . I I , I Í .  Ingbjörg Sólrún segir frá sínu fyrsta heimili  Eldhúsið sam- verustaður fjölskyldunnar  Lit- ið yfir fasteignamarkaðinn á liðnu ári og margt fleira  8 SÍÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.