Morgunblaðið - 03.01.2001, Qupperneq 35
ALDAMÓT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 35
GÓÐIR Íslendingar.
Sjálfsagt hefur hvert ykkar haft
sína visku ellegar sérvisku um það,
hvenær 20. og 21. öldin mættust. Ég
geri þá játningu að vera einn þeirra
sem verið hefur á seinni skipunum til
þessara miklu tímamóta. Sem betur
fer er ekki hundrað í hættunni þótt
deilan snúist um aldamót. Öruggt er
a.m.k. að þá er klukkan glymur í
tólfta sinn í kvöld hefur tuttugasta
öldin kvatt, í annað sinn verða ein-
hverjir fljótir að bæta við.
Hverjir voru stærstu atburðir
þeirrar aldar? Og var stór atburður
frétt eða var hann bara atburður? Á
þessu tvennu er mikill munur, segja
tíðindamenn, sem hafa að vonum
meiri áhuga á fréttum en atburðum.
Þeir bentu á að heimastjórn, sem
landsmenn öðluðust árið 1904 og lýð-
veldisstofnun árið 1944 voru ekki
stórar fréttir, vegna þess hve að-
dragandinn að atburðunum var
langur, svo að allir vissu með góðum
fyrirvara hvað verða vildi. Hernám
Breta 10. maí 1940 var á hinn bóginn
ekki aðeins mikill atburður heldur
einnig stórbrotin frétt, þar sem það
kom þjóðinni í opna skjöldu. Jafnvel
má segja að ekki hafi annar atburður
ráðið meiru um örlög Íslendinga á
öldinni, því að þjóð, sem svo lengi
hafði búið að sínu, við öryggi fjar-
lægðar og áhugaleysis annarra var í
einu vetfangi hrifin burtu af sínum
bæ og varð aldrei söm. Minnir það á
önnur örlög og annað stríð sem mað-
ur aldarinnar á Íslandi orti um og
sagði „og það var allt útaf einni jurt,
sem óx í skjóli og var slitin burt.“
Við þekkjum endalok þeirrar ris-
miklu sögu, en hin bókin um hið
sjálfstæða íslenska fólk, þar sem þú
og ég og þeir, sem á undan fóru og á
eftir munu koma, skipa hlutverkin,
er enn aðeins að litlu leyti skrifuð,
þótt viðburðaríkasta öldin af tæpum
tólf í sögu þjóðarinnar sé nú liðin.
Tvö atriði standa upp úr þegar horft
er um öxl til aldarinnar og getur þó
hvorugt flokkast undir frétt og ekki
heldur atburð. Hið fyrra er sú stað-
reynd, að allt þar til tuttugasta öldin
gekk í garð hafði íbúafjöldi í landinu
aldrei orðið meiri en hann var orðinn
þá er eiginlegu landnámi lauk eða
því sem næst 70 þúsund manns. Þar
virtust endimörk þess,
sem landið bar. Ef talað
væri um aðrar skepnur
en manninn væri sjálf-
sagt notað orðið beitar-
þol landsins í þessu
samhengi. En síðan
kom tuttugasta öldin
og þá tók allt kipp og
Íslendingum fjölgaði úr
70 þúsundum í 283 þús-
undir og býr þó drjúgur
hópur landans nú er-
lendis um lengri eða
skemmri tíma og er
ekki að sinni talinn
með.
Hitt atriðið er að í
byrjun aldarinnar voru
Íslendingar í hópi fátækustu þjóða,
svo sem verið hafði flestar aldir þar
á undan, en nú við aldarlok eru þeir
óumdeilanlega meðal þeirra sem
mest bera úr býtum í veraldlegum
efnum. Þótt þetta séu að sönnu
hvorki fréttir né atburðir, þá hljóta
þessar staðreyndir að segja okkur
Íslendingum mest um tuttugustu
öldina. Tvær heimsstyrjaldir, sem
snertu okkur hvor á sinn hátt,
frostavetur, eldgos í og utan byggð-
ar, óhugnanleg snjóflóð, mannskað-
ar á sjó og landi, leiðtogafundir og
landhelgisstríð, heimastjórn, full-
veldi, lýðveldisstofnun, upphaf Há-
skóla, heimsmet í verkföllum,
hundabönn, bjórbönn, höft og einok-
un og alls konar annar heimabak-
aður vandi, hefur drifið á þessa rúm-
lega 36.500 daga. Og allt þetta og
fjöldamargt annað mætti nefna til
sögunnar, sem fréttir og atburði, en
eftir stendur að þegar öldin hófst
leystust þau álög sem virtust liggja á
viðkomu þjóðarinnar og hún reis
einnig upp úr öskustónni – og flutti
sig yfir í forystusæti meðal þjóða
heims.
Það er því rík ástæða til að kveðja
20. öldina með virktum og gerir ekk-
ert til þótt einhverjum finnist að við
séum að gera það í annað sinn. Aldr-
ei er góð öld of oft kvödd. Og 21. öld-
in er auðvitað aufúsugestur. Móti
henni tekur þjóðin sem þroskað, vel-
menntað og kappsamt ungviði ráðið í
því að nýta þau tækifæri sem gefast
og skapa þau tækifæri sem vantar.
Ekki dettur okkur í
hug að halda að búið sé
að fjarlægja alla farar-
tálma af farsældarvegi
þessarar þjóðar. Síður
en svo. Náttúran hefur
engan eilífðarsaming
gert við landsmenn um
óuppsegjanlegan
vinnufrið. Þar mun
auðvitað á ýmsu ganga
og flest ófyrirséð. En
skilyrðin til að bregð-
ast rétt og skynsam-
lega við áföllum eru öll
önnur og betri en áður
var. Þekking okkar
mannanna á eðli allra
hluta er og verður
brotakennd, en viljanum og getunni
til að afla nýrrar þekkingar og
bregðast hratt við vandamálum hef-
ur fleygt fram.
Síðastliðin tíu ár hafa orðið algjör
umskipti í efnahagsumhverfi Íslend-
inga. Ekki skal þessi hátíðarstund
notuð til að gera grein fyrir þeim í
smáatriðum, enda þekkjum við öll
þær breytingar. Verðbólgan frá upp-
hafi til loka þessa árs var um 4%.
Það er til marks um hina miklu hug-
arfarsbreytingu sem orðið hefur, að
þegar nýlega var sett fram nokkuð
ógætileg spá um að verðbólga kynni
að verða um eða yfir 5,5% á næsta
ári varð uppi fótur og fit og ýmsir
tóku stórt upp í sig. Það var sem sé
hugsanleg hækkun á verðlagi um
1,5% á heilu ári, sem olli þessu upp-
námi. Þótt hamagangur af þessu tagi
sé ástæðulaus er á hinn bóginn
ánægjulegt að stöðugleiki í íslensk-
um stjórnmálum sé orðinn slíkur, að
þjóð sem fram til upphafs síðasta
áratugar aldarinnar bjó að jafnaði
við 30–80% verðbólgu skuli taka
slíka verðlagsbreytingu svo nærri
sér. Sem betur fer eru efnahagshorf-
ur í upphafi nýrrar aldar vænlegar.
Búast má við að sameiginlegar
tekjur okkar vaxi næstu árin og ein-
staklingum og fjölskyldum muni gef-
ast góð tækifæri til að búa í haginn
fyrir sig og sína. Efnahagurinn er
mikilvægur fyrir okkur öll, en mun
þó aldrei segja alla söguna. „Því
hvað er auður og afl og hús ef eingin
jurt vex í þinni krús?“ var spurt og
við erum flest sammála um viðeig-
andi svör. Efnaleg velsæld er aðeins
ramminn um þá þjóðfélagsmynd
sem við viljum sjá.
Ég hef orðið var við að mörgum
þykir sem minni þróttur sé nú í
stjórnmálalegri umræðu en var á ár-
um áður. Menn segja að hugsjóna-
og hugmyndabaráttu skorti og
stjórnmálamenn séu með marg-
brotnar æfingar um útfærslu stefnu-
miða, sem lítill ágreiningur sé um, en
takist ekki á af hörku, hver með sína
útgáfu af réttlætinu á gunnfánanum.
Nú beri menn hvorki sverð hug-
sjónamannsins né skjöld hinna góðu
gilda til varnar. Þessi tilfinning er
ekki út í bláinn, en það er ekki með
því sagt að rétt sé að harma þessa
þróun. Meiri fólskuverk hafa verið
framin í nafni hugsjóna sem ekkert
hald reyndist í en af nokkru öðru til-
efni. Og hávaðinn sem áður barst frá
hugsjónabaráttunni er þagnaður,
þar sem niðurstaða fékkst í þeim
átökum. Hugmyndin sem byggðist á
frelsi einstaklingsins hafði fullan sig-
ur á þeirri sem gekk út frá forsjár-
hyggju algóðs ríkisvalds. Og lífsskil-
yrðin bötnuðu hvarvetna fyrir vikið.
Sósíalisminn tapaði kalda stríðinu,
sem var í raun þriðja heimsstyrjöld-
in, þótt hún væri annarar gerðar en
þær tvær fyrri. Þeim leik er því að
mestu lokið. Það er því ekki að undra
að hljóðara sé um hugsjónirnar nú á
dögum en þegar hersveitirnar sáu
um undirleikinn. En það merkir ekki
að öllum sé sama um allt og engum
sé lengur mikið niðri fyrir. Öðru
nær. En framvegis verður baráttan
friðsamari. Á sama tíma og Ísland
lifir sinn besta áratug í efnahagslegu
tilliti eru forystumenn stjórnmál-
anna hægt og örugglega að draga úr
eigin valdi og færa það til fólksins í
þeirri vissu að þjóðin sjálf kunni bet-
ur með það að fara en þeir. Þetta
gengur þvert á þróunina á fyrri
hluta aldarinnar, þegar hugsjónir
þjóðernissósíalista annars vegar og
kommúnista hins vegar gengu með
mismunandi blæbrigðum út á hið öfl-
uga og óskeikula ríkisvald. Sömu
þróunar gætir víðast hvar annars
staðar í heiminum. Þessi valdatil-
færsla frá foringjum til fjöldans hef-
ur gengið vel síðustu tíu árin og eyk-
ur það líkur á að málum verði vel
stjórnað á þeirri öld sem í hönd fer.
Því að mestu ófarir á öldinni voru
þrátt fyrir allt ekki óvæginni náttúru
að kenna, heldur miklu fremur þeim
smámennum, sem lyft var á stall of-
urmenna, í skjóli „háleitra“ hug-
sjóna.
Góðir Íslendingar. Við þekkjum
það öll að sú ferð er líklegust til að
heppnast vel sem vandlega er und-
irbúin og þar sem nestið er nægilegt
og notadrjúgt. Við göngum vel nest-
uð á vit nýrrar aldar og höfum
glögga mynd af því sem við viljum.
Því mun íslenska þjóðin sameigin-
lega yfirstíga þær þrautir sem á veg-
inum verða og njóta alls þess yndis
og ágætis sem öldin mun hafa upp á
að bjóða.
Ég þakka samfylgdina á liðnu ári
og óska löndum mínum nær og fjær
gleðilegs árs og gleðilegrar aldar.
Áramótaávarp Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
Við göngum vel nestuð
á vit nýrrar aldar
Davíð
Oddsson
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum viðskiptin á liðnu ári
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
Hrogn og lifur
Glæný
línuýsa
Fyrstir koma, fyrstir fá
Nýbakað
rúgbrauð
Opnum
kl. 8.00 Breska búðin
Laugavegi 54, sími 552 2535
Útsalan er hafin
25–70% afsláttur
SLIM-LINE
dömubuxur frá
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680