Morgunblaðið - 03.01.2001, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Landsmenn kvöddu gamla árið og fögnuðu
nýju með hefðbundnum hætti. Ekki skal
fullyrt hve margir fögnuðu um leið nýrri
öld en ef tekið er mið af magni þeirra flug-
elda sem upp var skotið voru þeir þó ófáir.
Á höfuðborgarsvæðinu viðraði vel til
flugeldasýninga og nýttu Kópavogsbúar
sér það óspart. Þeir lýstu upp næturhim-
ininn með alls kyns skoteldum.
Flugeldar ofar
Digraneskirkju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÁTTA ára gamall drengur slasaðist þegar skot-
eldur sprakk í andlit hans á nýársnótt. Þyrla
Landhelgisgæslunnar flutti drenginn á Land-
spítalann við Hringbraut. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lækni á spítalanum reyndust meiðsli
hans mun minni en talið var í fyrstu. Hann
hlaut 1. stigs bruna á kinn en mun ekki bera
varanlega áverka eftir atvikið. Neyðarlínu var
tilkynnt um slysið nokkuð fyrir kl. 3 á nýárs-
nótt og kölluðu starfsmenn hennar til sjúkra-
bifreið og lækni. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Patreksfirði fann drengurinn
ósprunginn skoteld og bar eld að honum með
stjörnuljósi með þeim afleiðingum að skoteld-
urinn sprakk í andlit hans. Drengurinn var
fluttur á Heilbrigðisstofnunina á Patreksfirði.
Ákveðið var að flytja hann til Reykjavíkur og
var þyrla Landhelgisgæslunnar því kölluð til.
Þyrlan kom til Reykjavíkur um kl. 6.30 og var
pilturinn þá fluttur á Landspítalann við Hring-
braut.
Átta ára drengur slasaðist á Patreksfirði á nýársnótt
Betur fór en á horfðist
SLYS af völdum skotelda voru með minnsta móti
um áramótin en þeim mun meira um hvers kyns
eignarspjöll og íkveikjur. Algengt var að skoteldar
væru notaðir til skemmdarverka. Lögreglunni í
Reykjavík var tilkynnt um 57 skemmdarverk af
völdum flugelda um áramótin. Annríki var óvenju
mikið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á
gamlárskvöld og nýársnótt. Frá klukkan 19.30 um
kvöldið til klukkan 7.30 á nýársmorgun sinnti
slökkviliðið 38 útköllum. Sextán þeirra voru vegna
elds sem borinn var að ruslatunnum og blaðagám-
um. Þá var talsvert um að vindur bæri flugelda af
leið sem höfnuðu innandyra, ýmist hjá þeim sem
skutu þeim upp eða nágrönnum þeirra. Nokkrar
skemmdir urðu af þessum völdum. Þá skemmdist
veggur á húsi í Bessastaðahreppi af völdum kassa
undan skotköku. Kassinn hafði verið skilinn eftir
við vegginn en glóð leyndist enn í honum.
Skemmdir unnar á skólum
Skólahúsnæði á höfuðborgarsvæðinu var vin-
sælt skotmark skemmdarvarga. Slökkviliðið var
kvatt að Garðaskóla í Garðabæ snemma á nýárs-
morgun. Þar hafði verið kveiktur eldur á nokkrum
stöðum í smíðastofunni. Sá eða þeir sem þar var á
ferð fóru víðar um skólann, m.a. var brotist inn á
skrifstofu í skólanum. Þar fannst brúsi með eld-
fimum vökva en ekki hafði verið borinn eldur að.
Nokkru áður hafði verið kveikt í áttaruslatunn-
um við húsvegg Hlíðaskóla í Reykjavík. Þær
brunnu en ekki urðu aðrar skemmdir. Talsvert var
um að flugeldar væru notaðir til skemmdarverka á
gamlárskvöld og nýársnótt. Flugeldur fór í gegn-
um gler í aðaldyrum Digranesskóla í Kópavogi og
púðurkerlingu var kastað inn um opinn glugga í
Ölduselsskóla í Reykjavík. Í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi var brotin rúða og púðurkerlingu
kastað inn. Þá var kveikt í rusli fyrir utan Öldu-
túnsskóla í Hafnarfirði. Um kl. 2 á nýársnótt var
slökkviliðið kvatt að Listaháskólanum en þar hafði
flugeldur farið undir þakklæðningu. Erfiðlega
gekk að slökkva eldinn og tók slökkvistarf um tvo
klukkutíma.
Á nýársdag var kveikt í litlum skúr við Álfta-
mýrarskóla í Reykjavík. Um kvöldið fór flugeldur
inn um rúðu á kennslustofu í Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi. Þar mun hafa verið um óviljaverk að
ræða. Eldur komst í gluggatjöld og í hluti á
gluggakistu. Eldurinn breiddist hins vegar ekki út
en talsverðar skemmdir urðu í kennslustofunni af
völdum sóts og reyks.
Maður slasaðist í Reykjavík þegar flugeldur
sprakk í hendi hans. Þá var karlmaður fluttur á
slysadeild eftir að hafa fallið fjóra metra niður af
svölum húss í Breiðholti á mánudagsmorgun.
Hinn slasaði var fluttur á slysadeild til aðhlynn-
ingar.
Fjölmargar íkveikjur og
skemmdarverk á nýársnótt
Morgunblaðið/Júlíus
Reykur barst um Valhúsaskóla en eldurinn
breiddist ekki út. Slökkvistarf gekk vel og að
því loknu var skólinn reykræstur.
ÍBÚUM fjölgaði hlutfallslega mest
í Biskupstungnahreppi á Suður-
landi í fyrra, eða um 8,06% sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu
Íslands um mannfjöldaþróun ein-
stakra sveitarfélaga. Ragnar Sær
Ragnarsson, sveitarstjóri
Biskupstungnahrepps, sagði að
þetta væri mjög ánægjuleg þróun,
en í sveitarfélaginu búa nú um 550
manns, þar af flestir í byggðar-
kjörnunum í Reykholti og Laug-
arási. „Við erum í útjaðri höfuð-
borgarinnar og fólk er farið að
sækja í að búa fyrir utan hana,“
sagði Ragnar Sær. „Fólk vill kom-
ast í öðruvísi umhverfi og kynnast
einhverju nýju og við eigum því líka
von á verulegri fjölgun á þessu ári,
en hér eru í byggingu um 14 hús
sem ekki hefur verið flutt í.“
Ragnar Sær sagði að kynningar-
starf sveitarfélagsins á þjónustu,
nýjum lóðum og atvinnumöguleik-
um hefði augsýnilega skilað góðum
árangri. Til marks um það hefði
nýtt hverfi sem skipulagt hefði ver-
ið í Reykholti, svokallað Norður-
brúnarhverfi, vakið mikla athygli
hjá fólki utan svæðisins, sem og já-
kvæðar fréttir af skólastarfinu á
staðnum. Að sögn Ragnars Sævar
koma margir til þess að vinna við
garðyrkju, iðnað og ferðaþjónustu.
Hann sagði að iðnaðarmennirnir
ynnu aðallega við byggingu sumar-
húsa, en í Biskupstungum eru
byggð um 50 slík á ári hverju og
samtals 150 á svæðinu öllu. Hann
sagði að mikil uppbygging hefði
orðið í ferðaþjónustunni á staðnum
og starf ferðamálafulltrúa sveitar-
félaganna í uppsveitum Árnessýslu,
Ásborgar Arnþórsdóttur, hefði skil-
að sér mjög vel á síðustu misserum,
en hún hóf störf fyrir fimm árum.
„Á síðasta ári var reist um 1.000
fermetra safna- og þjónustuhús upp
við Geysi og hótel uppi á Brattholti í
námunda við Gullfoss. Þá eru í dag
um 3.500 sumarhús hér á svæðinu
og fólkið þar kaupir þjónustu í
sveitarfélaginu af fyrirtækjum og
stofnunum og það hefur einnig ýtt
undir vöxtinn. Ég á ekki von á öðru
en að þessi uppbygging haldi
áfram.“
Mesta fækkunin
í Vesturbyggð
Samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Hagstofu Íslands um mann-
fjöldaþróun einstakra sveitarfélaga
varð næstmesta hlutfallslega fjölg-
unin í Bessastaðahreppi en þar
fjölgaði íbúum um 7,45% á árinu og
voru þeir 1.543 talsins 1. desember
síðastliðinn. Hlutfallslega mesta
fækkunin varð í Vesturbyggð á
Vestfjörðum, en þar fækkaði íbúum
um 5,52% á árinu og í lok þess voru
þeir 1.164. Næstmesta fækkunin
varð á Seyðisfirði þar sem íbúum
fækkaði um 3,87% og eru þeir nú
795.
Íbúum í Biskupstungnahreppi fjölgaði hlutfallslega mest á nýliðnu ári
Kynningarstarfið
hefur skilað árangri
SKÖMMU fyrir miðnætti á gamlárs-
kvöld varð rúmlega tvítugur karl-
maður fyrir lögreglubíl á Miklu-
braut. Var hann fluttur alvarlega
slasaður á slysadeild Landspítala í
Fossvogi en hann hlaut beinbrot og
áverka á höfði. Samkvæmt upplýs-
ingum frá sjúkrahúsinu er líðan
mannsins eftir atvikum góð.
Lögreglubílnum var ekið af
Snorrabraut og austur Miklubraut.
Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir að sjónarvottur
sem ók svo til samhliða lögreglubíln-
um hafi lýst atburðinum þannig að
maðurinn hafi stokkið yfir girðingu
milli akgreina Miklubrautar. Lög-
reglubíllinn lenti þá á manninum
sem skall á vélarhlíf og framrúðu
bílsins og þaðan í götuna. Sjónar-
votturinn segir lögreglubílnum hafa
verið ekið á um 50-60 km/klst.
Karl Steinar segir lögreglumann-
inn hafa verið einan í bílnum. Lög-
reglumaðurinn mun ekki hafa séð
vegfarandann fyrr en hann skall á
bílnum. Lögreglumaðurinn fingur-
brotnaði við áreksturinn.
Vegfarandi
varð fyrir
lögreglubíl