Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 18
Matvörukaupmenn ánægðir með jólaverslunina
MATVÖRUKAUPMENN á Akur-
eyri eru sammála um að verslun
hafi verið mikil og góð fyrir hátíð-
irnar. Tvær nýjar matvöruversl-
anir voru opnaðar fyrir jólin á Ak-
ureyri, Nettó opnaði nýja verslun
og sömuleiðis Bónus.
Sigmundur Sigurðsson, verslun-
arstjóri Nettó á Akureyri, segir að
verslunin yfir hátíðirnar hafi geng-
ið mjög vel. „Salan hjá okkur er
fyllilega sambærileg miðað við árið
í fyrra. Við vorum að selja fyrir
sömu krónutölu og í fyrra og erum
mjög sáttir með það. Það var mikið
af utanbæjarfólki sem kom og
verslaði hjá okkur og þökkum við
það bæði færðinni sem og hinni
nýju verslunarmiðstöð, Glerár-
torgi.
Raunsöluaukning
á svæðinu
Sigmundur segir að hann hafi
lítillega orðið var við opnun Bón-
usversluninnar en það hafi ekkert
verið neitt meira en það. „Vitan-
lega hefur einhver verslun farið
þangað en það var það mikið að
gera hér að við urðum ekki mikið
varið við það. Ég tel þó að heild-
arneyslan sé mun meiri en í fyrra,
þar sem búið erað bæta við einni
stórri verslun í bæinn og raun-
söluaukning á svæðinu milli ára sé
mjög mikil.
Ánægðir með móttökurnar
„Jólaverslunin gekk mjög vel hjá
okkur og erum við mjög ánægðir
með móttökurnar,“ segir Óðinn
Svan Geirsson, verslunarstjóri
Bónuss á Akureyri. „Þetta hefur
farið mjög vel af stað og allar áætl-
anir staðist og vel það. Við ætlum
að vera hér til frambúðar og mun-
um á næstunni að gera búðina enn
betri til að mæta kröfum neytenda
sem best. Það er svolítið öðruvísi
tíðarandi hér en í Reykjavík og því
hafa hlutir sem ganga vel þar
gengið misvel hér en við ætlum
okkur að gera enn betur.
Mikið verslað
Þórhalla Þórhallsdóttir, verslun-
arstjóri Hagkaups á Akureyri, seg-
ir að verslunin hafi gengið mjög
vel yfir hátíðirnar. „Það var mjög
mikið verslað og tel ég að versl-
unin hafi verið mjög álíka og í
fyrra. Það var áberandi mikið af
utanbæjarfólki sem var að versla
fyrir þessi jól enda færðin með
eindæmum góð fyrir jól sem ég tel
að hafi hjálpað öllum verslunum í
bænum.
Þórhalla segir að hún hafi orðið
vör við lítils háttar lægð í kjölfar
opnunar tveggja nýrra verslana.
„Þegar ný verslun opnar vill fólk
skoða og átta sig á nýjum hlutum
en svo virðist sem það komi aftur
og hefur verslunin því verið mjög
góð.
Mikið verslað fyrir
hátíðarnar
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTA barn ársins á Akureyri,
myndarstúlka, kom í heiminn á fæð-
ingardeild FSA skömmu eftir kl. 19
á nýársdag. Stúlkan var 16,5 merk-
ur og 52 cm við fæðingu en foreldrar
hennar eru Erla Elísabet Sigurð-
ardóttir og Steingrímur Hannesson.
Að sögn móðurinnar var fæðingin
erfið og tók nokkuð langan tíma en
þeim mæðgum heilsast vel. Í gær-
morgun komu þrjár stúlkur til við-
bótar í heiminn á fæðingardeild FSA
og ef fram heldur sem horfir verða
stúlkurnar fleiri en drengirnir þetta
árið á fæðingardeildinni.
Á síðasta ári voru fæðingar á FSA
441, þar af voru sex tvíburafæðingar
og börnin sem þar fæddust því 447
talsins, 213 stúlkur og 234 drengir.
Árið áður voru 397 fæðingar á fæð-
ingardeild FSA.
Morgunblaðið/Kristján
Stoltir foreldrar með barnið sitt. Erla Elísabet Sigurðardóttir og Stein-
grímur Hannesson með dótturina sem fæddist á nýársdag.
Stúlka
fyrsta barn
ársins
TÖLUVERÐUM snjó hefur kyngt
niður á Akureyri síðustu daga og
því hófu margir bæjarstarfsmenn
vinnu sína á nýju ári í gærmorgun
á snjómokstri. Til verksins eru not-
uð öflug tæki en þar sem ekki er
hægt að koma þeim við er notast
við handaflið, eins og sést á mynd-
inni. Þrátt fyrir snjóinn gekk um-
ferðin vel, enda flestir ökumenn á
vel útbúnum bílum og því viðbúnir
hálku og snjósköflum á stöku stað.
Morgunblaðið/Kristján
Snjómokstur með vélum og höndum
AKUREYRINGAR kvöddu gamla
árið og fögnuðu því nýja með nokk-
uð hefðbundnum hætti. Aðeins var
ein áramótabrenna í bænum að
þessu sinni, við Réttarhvamm, og
þangað kom fjöldi fólks í þó frekar
leiðinlegu veðri, norðanátt og snjó-
komu. Á brennunni var boðið upp á
glæsilega flugeldasýningu og
yngsta mannfólkið hafði stjörnuljós
meðferðis. Um miðnættið var svo
að vanda haldin glæsileg flugelda-
sýning þar sem flestir bæjarbúar
tóku þátt.
Að sögn lögreglu var töluverð
ölvun í bænum á nýársnótt og erill
en flestir voru þó í þokkalegu skapi
og létu veðrið ekkert fara í taug-
arnar á sér. Aðeins tveir gistu
fangageymslur þá nótt. Þá var
einnig rólegt hjá slökkviliðsmönn-
um, eða eins og Tómas Búi Böð-
varsson slökkviliðsstjóri orðaði það,
„við fórum ekki út á rauða bílnum“.
Morgunblaðið/Kristján
Akureyringar fjölmenntu á áramótabrennuna við Réttarhvamm þrátt
fyrir frekar leiðinlegt veður.
Rólegt um ára-
mót á Akureyri
NÝVERIÐ var undirritaður samn-
ingur um verklok á innleiðingu
Navision Financials upplýsinga-
kerfisins hjá Sæplasti á Dalvík.
Verkið var unnið af starfsmönnum
Tölvumynda á Akureyri og var
kerfið sett upp hjá móðurfélaginu
Sæplasti hf. á Dalvík auk dóttur-
félaganna Sæplast Dalvík ehf. og
Atlantic Island ehf. Hið nýja upp-
lýsingakerfi Sæplasts byggist á
grunni Navisions kerfisins ásamt
ýmsum sérlausnum sem Tölvu-
myndir hafa þróað.
Rúnar Sigurpálsson, fjármála-
stjóri Sæplasts, segir að með hinu
nýja upplýsingakerfi sé Sæplast
komið með öflugt stjórntæki sem
geri þeim kleift að mæta þeim fjöl-
mörgu verkefnum sem framundan
eru.
„Við höfum löngum átt gott sam-
starf við Tölvumyndir og er þetta
enn einn liðurinn í því góða sam-
starfi. Auk þess eru Tölvumyndir
með starfsstöðvar í nágrenni við
okkur erlendis og það er kostur
sem við stefnum á að nýta okkur í
framtíðinni.“
Hafþór Ingi Heimisson, fram-
kvæmdastjóri Tölvumynda á Ak-
ureyri, segir að Navision Financi-
als sé alhliða viðskipta- og
upplýsingakerfi með einföldu og
hnitmiðuðu notendaviðmóti. „Mjög
hentugt er að aðlaga kerfið að
hvers kyns viðskiptum og hentar
það því fyrirtækjum af flestum
stærðum og gerðum. Innleiðing
kerfisins á Dalvík gekk mjög vel og
er það ekki síst vegna góðs sam-
starfs við starfsfólk Sæplasts sem
á hrós skilið fyrir frammistöðuna,“
segir Hafþór.
Verklokasamningur
Sæplasts og Tölvumynda
Sæplast tekur
nýtt upplýsinga-
kerfi í notkun
Morgunblaðið/Kristján
Hafþór Ingi Heimisson og Rúnar Sigurpálsson.