Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Allir almennir dansar fyrir
börn, unglinga og fullorðna.
Byrjendur og framhald
Kántrý línudans
Keppnispör, æfingar 2 - 3 svar í viku
Erlendir gestakennarar
Einkatímar
Frábærir kennarar
Skemmtilegt andrúmsloft
Opið hús á
laugardagskvöldum
Innritun og upplýsingar
3ja-16.jan.kl. 10.00-23.00
í síma:
564-1111
og höfum gaman...
VERSLUNIN HÆTTIR
ÓDÝRT – ÓDÝRT – ÓDÝRT
úlpur – buxur – peysur – skór
síðustu dagarnir
Verðsprenging
NÓATÚNI 17 S: 511 47475
Flateyri - Bjartsýni ríkti á eyrinni
þegar Flateyringar brenndu bálköst
og púður í blíðskaparveðri um ára-
mótin. Liðið ár var að mörgu leyti
mjög gott og margt unnið til að
lífga upp á byggðina sem um þessar
mundir telur á þriðja hundrað íbúa.
Þegar litið er um öxl eru tvö at-
riði sérstaklega eftirtektarverð.
Skurkur var gerður í því að end-
urbyggja þau hús og svæði sem
ennþá báru merki snjóflóðsins sem
féll fyrir fimm árum. Og grunnskóli
staðarins kynnti nýja stefnu með
nýjum skólastjóra þar sem rík
áhersla er lögð á að skólastarfið
geisli jákvæðum straumum út í
samfélagið og takist á við vanda-
mál sín með bros á vör.
Ofan úr Eyrarfjalli þaðan sem
myndin var tekin á gamlárskvöld
sér yfir Flateyri og í vinstra horn-
inu er Sólbakki þar sem ráð-
herrabústaðurinn við Tjarnargötu
í Reykjavík stóð forðum en þar er
nú heimili Einars Odds Kristjáns-
sonar 5. þingmanns Vestfjarða-
umdæmis.
Gleðilegt ár á Flateyri
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Mynd tekin ofan úr Eyrarfjalli á gamlárskvöld. Séð yfir Flateyri og í vinstra horninu er Sólbakki þar sem ráð-
herrabústaðurinn við Tjarnargötu í Reykjavík stóð forðum en þar er nú heimili Einars Odds Kristjánssonar 5.
þingmanns Vestfjarðaumdæmis.
Selfossi - Bæjarstjórn Árborgar
samþykkti á fundi sínum, 28. des-
ember 2000, fjárhagsáætlun sveitar-
félagsins fyrir árið 2001 með sex at-
kvæðum meirihlutans. Vinnsla
áætlunarinnar fór fram í samvinnu
allra bæjarfulltrúa og helstu emb-
ættismanna sveitarfélagsins.
Skatttekjur aukast um 15%
Skatttekjur eru áætlaðar 1.205,9
milljónir króna árið 2001 og hækka
úr 1.048,4 milljónum árið 2000 eða
um kr. 157,5 millj. milli ára sem er
15% hækkun. Álagningarhlutfall út-
svars er hækkað úr 12,04% í 12,7%.
Á móti þessari hækkun munu fast-
eignagjöld lækka. Ekki er því um
nettóskattahækkun á hvern íbúa í
sveitarfélaginu að ræða.
Nettóútgjöld við rekstur mála-
flokka án fjármagnsliða nema 1.026,4
milljónum króna árið 2001 og hækka
úr kr. 945,4 millj. árið 2000 eða um
kr. 80,9 millj. Nettóbreytingin er
8,6% hækkun milli ára m.v. endur-
skoðaða áætlun ársins 2000.
Launaútgjöld vega þungt
Samkvæmt fjárhagsáætlun Ár-
borgar fyrir árið 2001 nemur rekstr-
arafgangur án fjármagnsliða kr.
1.179,6 millj. Að teknu tilliti til nettó-
fjármagnsliða að upphæð kr. 43,9
millj. er rekstrarafgangur kr. 135,7
millj. eða 11,2 % af skatttekjum.
Launaútgjöld vega mjög þungt í
rekstri sveitarfélagsins eða rúmlega
70% af nettóútgjöldum málaflokka.
Afgangur eftir rekstur 14%
Í fréttatilkynningu bæjarstjóra
segir: „Bæjarstjórn Árborgar legg-
ur mikla áherslu á að halda rekstr-
arkostnaði sveitarfélagsins í lág-
marki svo viðunandi afgangur verði
af tekjum til framkvæmda. Skv.
áætluninni fyrir árið 2001 mun af-
gangur eftir rekstur málaflokka
verða 14,9% af skatttekjum sem er
jákvæð þróun frá síðustu árum.
Þessi afgangur er áætlaður um 9,8%
árið 2000 og var 8,6% árið 1999. Af
þessu er ljóst að áætlað er að hlut-
fallsleg rekstrarafkoma Árborgar
batni nokkuð milli ára. Nauðsynlegt
er að styðja við þessa þróun og því
er ekki orðið við ýmsum óskum um
aukningu rekstrarútgjalda sem
fram hafa komið við áætlunargerð-
ina, s.s. um fjölgun starfsmanna, um
aukið rekstrarumfang ýmissa stofn-
ana og fleiri óska sem leiða myndu
til aukinna útgjalda ef þær væru
samþykktar. Allra leiða er leitað til
að halda niðri rekstrarkostnaði.“
Heildarfjárfesting
317,8 milljónir
Samkvæmt áætluninni er heildar-
fjárfesting áætluð að upphæð kr.
317,8 millj. Fjárfestingartekjur
nema 68,6 milljónum. Fjárveiting til
gatna- og fráveituframkvæmda
nemur samtals 129,4 milljónum
króna. Hafin verður framkvæmd við
nýjan leikskóla og undirbúin verður
bygging nýs grunnskóla. Til F.Su.
verður varið 22,4 millj. Nettóskuldir
munu aukast um 97,4 milljónir.
Í bókun bæjarstjórnar með áætl-
uninni kemur m.a. fram að mikil
uppbygging eigi sér nú stað innan
Árborgar. Bæjarstjórn telji því að
ekki verði hjá því komist að ráðast í
framkvæmdir sem kalla á lántökur
og tímabundna skuldaaukningu til
að geta haldið uppi nauðsynlegri og
lögbundinni þjónustu fyrir íbúana,
s.s. vegna grunnskóla og leikskóla,
auk framkvæmda við fráveitu og
gatnagerð.
Á heimasíðu Árborgar, www.ar-
borg.is, er að finna nánari upplýs-
ingar um áætlunina í greinargerð
bæjarstjóra með henni.
Fjárhagsáætlun Árborgar samþykkt
Mikil uppbygging
þrýstir á um fram-
kvæmdir og lántökur
Reyðarfirði - Sparisjóður Norð-
fjarðar keypti sl. sumar húseign
Pósts og síma á Reyðarfirði Á
neðri hæð hússins hafa verið
gerðar miklar endurbætur og
flutti sparisjóðurinn starfsemi
sína þangað 1. desember sl.
Sparisjóðurinn tók að sér póst-
afgreiðsluna af Íslandspósti og
sameinaði afgreiðslur pósts og
banka. Efri hæð hússins verður
einnig endurbætt og þar verða
skrifstofur.
Opið er 9.15 til 16 alla virka
daga. Afgreiðslustjóri er Ing-
unn Indriðadóttir.
Kaupþing er einnig til húsa
þar, en forstöðumaður þess er
Jónas Rafnar Ingason.
Póstafgreiðslan
í sparisjóðinn
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Starfsfólk Sparisjóðsins: Hjördís
Káradóttir, Birna Guðmundsdóttir
og Ingunn Indriðadóttir.