Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 24
VIÐSKIPTI
24 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Frönsku-
námskeið
verða haldin
15. jan.-11. apríl 2001
Innritun 2.-12. janúar. Í boði eru námskeið fyrir
byrjendur og lengra komna, taltímar, námskeið
fyrir börn og eldri borgara og einkatímar.
Tökum að okkur kennslu í fyrirtækjum.
Upplýsingar í síma 552 3870 frá
kl. 11-18.
Hringbraut 121, 107 Reykjavík.
Fax 562 3820.
✆
Veffang: http://af.ismennt.is
Netfang: af@ismennt.is
Vilt þú líta vel út?
NÝTT Á
ÍSLANDI!NÝTT
Á ÍSLANDI!
Fitness Line umboðið kynnir íþróttafatnað fyrir
þá sem vilja laga línurnar.
HÁRSTOFAN GRAND HOTEL
SIGTÚNI 38, SÍMI 588 3660.
Er appelsínuhúð og vökvasöfnun vandamál? l í l
UNDIRRITUÐ hefur verið viljayfir-
lýsing milli Kaupþings og eigenda yfir
70% hlutafjár í Frjálsa fjárfestingar-
bankanum um að þeir selji Kaupþingi
hluti sína. Seljendurnir eru Vátrygg-
ingafélag Íslands hf., Traustfang ehf.,
Olíufélagið hf., Isoport, Hafliði Þórs-
son og Samvinnulífeyrissjóðurinn, en
samkvæmt viljayfirlýsingunni stefnir
Kaupþing að því að kaupa að minnsta
kosti 2⁄3 hluta Frjálsa fjárfestingar-
bankans. Samkvæmt frétt frá Kaup-
þingi verður gengið frá samningum á
næstu vikum að lokinni kostgæfnisat-
hugun.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að stuttur aðdragandi hefði
verið að kaupunum og að viðræðurn-
ar hefðu farið fram milli jóla og nýárs.
Gengið í viðskiptunum verður 3,80,
en síðasta viðskiptagengi var 2,90.
Miðað við þetta er um rúmlega 30%
yfirverð að ræða. Spurður um verðið
sagði Sigurður að hann teldi það
sanngjarnt. Hann sagði fyrirtækin
vera töluvert í sömu starfsemi og að
með aukinni stærð á þeim sviðum
næðist hagræðing. Ekki væri hins
vegar ákveðið hvað yrði um þá starf-
semi sem Frjálsi fjárfestingarbank-
inn hefur stundað en Kaupþing ekki
og eins væri of snemmt að segja til
um hvort einhver fækkun starfsfólks
yrði hjá samanlögðum félögunum. Nú
eru um 60 stöðugildi hjá Frjálsa fjár-
festingarbankanum og 260 hjá Kaup-
þingi.
Öðrum hluthöfum
býðst sama verð
Sigurður sagðist gera ráð fyrir að
samkvæmt reglum Verðbréfaþings
Íslands hf. um yfirtökutilboð þyrfti
Kaupþing að bjóða öðrum hluthöfum
Frjálsa fjárfestingarbankans sama
verð og það býður eigendum meiri-
hluta hlutafjárins.
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.
varð til síðast liðið sumar við samein-
ingu Samvinnusjóðs Íslands hf. og
Fjárvangs hf. Eigið fé bankans um
mitt ár var 2,3 milljarðar króna og
CAD-eiginfjárhlutfall rúm 20%.
Samvinnusjóður Íslands var stofn-
aður árið 1982 og starfaði fyrstu árin
sem fjárfestingarsjóður. Árið 1993
varð hann fjárfestingarbanki og tók
þá að starfa sem lánastofnun.
Fjárvangur hét áður Fjárfesting-
arfélagið Skandia, en nafninu var
breytt eftir að Vátryggingafélag Ís-
lands keypti félagið árið 1996. Fjár-
festingarfélagið Skandia hafði orðið
til þegar norræna tryggingafélagið
Skandia keypti Verðbréfamarkað
Fjárfestingarfélagsins hf. árið 1992.
Verðbréfamarkaður Fjárfestingar-
félagsins var dótturfélag Fjárfesting-
arfélagsins, en aðaleigendur þess
voru Íslandsbanki, Burðarás og Líf-
eyrissjóður verslunarmanna.
Óbreytt starfsemi
fyrst um sinn
Verðbréfamarkaður Fjárfestingar-
félagsins rak á sínum tíma Frjálsa líf-
eyrissjóðinn og Frjálsi fjárfestingar-
bankinn rekur hann nú. Sigurður
Einarsson sagði að bankinn hefði
einnig verið með umtalsverða fjár-
muni í eignastýringu, eða um 20 millj-
arða króna. Kaupþing væri með um
200 milljarða króna að öllu með töldu.
Í frétt frá Kaupþingi segir að
Frjálsi fjárfestingarbankinn muni
halda áfram starfsemi í óbreyttri
mynd fyrst um sinn þar til annað
verður ákveðið. Örn Gústafsson, for-
stjóri Frjálsa fjárfestingarbankans,
sagði að kaupin hefðu verið kynnt á
starfsmannafundi í gær. Hann sagðist
ekki geta sagt neitt til um framhaldið
fyrir starfsmenn bankans, það væri
enn óljóst.
Kaupir Frjálsa fjár-
festingarbankann
Morgunblaðið/ Ásdís
Kaupþing eykur umsvifin á fjármálamarkaðnum
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Al-
þýðubankinn, EFA, keypti á gaml-
ársdag fjórðungshlut í fasteigna-
félaginu Landsafli hf., dótturfélagi
Íslenskra aðalverktaka hf., ÍAV,
en sama dag var gengið frá kaup-
um ÍAV á rúmlega 5% hlut í EFA.
Auk þess, þó óskylt viðskiptunum
við ÍAV, seldi EFA bréf fyrir 40
milljónir króna að nafnverði af
eignarhlut sínum í Samskipum hf.
Á síðasta degi nýliðins árs eign-
aðist Eignarhaldsfélagið Alþýðu-
bankinn 25,5% hlut í fasteigna-
félaginu Landsafli hf., dótturfélagi
Íslenskra aðalverktaka hf. Jafn-
framt jók meðeigandi ÍAV í félag-
inu, Landsbankinn-Fjárfesting hf.,
hlut sinn í félaginu í 25,5%. Eign-
arhlutar í Landsafli eftir þessi við-
skipti eru þannig, að ÍAV, sem áð-
ur átti 80% hlut, á nú 49%,
Landsbankinn-Fjárfesting hf. átti
áður 20% hlut en á nú 25,5% og
EFA á 25,5%.
Í fréttatilkynningu um viðskipt-
in segir að þau séu þáttur í stefnu
fyrri eigenda Landsafls, að fá til
liðs við félagið öfluga fjárfesta til
að taka þátt í auknum umsvifum
félagsins og vinna að stækkun
þess. Jafnframt verði unnið að því
að búa Landsafl hf. til skráningar
á Verðbréfaþingi Íslands og er
gert ráð fyrir að það verði í lok
ársins 2001 eða byrjun árs 2002.
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri EFA, segir að Landsafl hafi
á undanförnu ári verið að undirbúa
innkomu á fasteignamarkaðinn og
félagið sé að verða tiltölulega
þekkt á þeim markaði. „Verktak-
arnir sýndu áhuga á því fyrir
helgina að fá okkur til samstarfs
við þá og Landsbankann í þessu
félagi. Við höfum séð fyrir okkur
gott tækifæri í því að byggja upp
öflugt fasteignafélag og þegar
þetta tækifæri bauðst kusum við
að fara þessa leið fremur en að
fara sjálfir af stað með félag.“
ÍAV kaupa
5,1% hlut í EFA
Sama dag og viðskiptin með
Landsafl fóru fram keypti ÍAV
hlutabréf í EFA að nafnvirði 65
milljónir eða sem nemur 5,1% hlut,
sem áður var í eigu félagsins
sjálfs. Bréfin voru keypt á genginu
3,30 og nema viðskiptin því 214,5
milljónum króna. Gylfi segir að
samhliða viðræðum um Landsafl
hafi ÍAV sýnt áhuga á að gerast
hluthafar í EFA.
„Í raun er um óskylda þætti að
ræða en í viðræðum eins og EFA
og ÍAV áttu í eiga hlutirnir það til
að taka óvænta stefnu. Það er ljóst
að EFA er með fjárfestingum sín-
um að vinna að langtímauppbygg-
ingu á atvinnulífinu og það hefur
vakið áhuga verktakanna. Þeir
töldu það í sjálfu sér eðlilegt að Ís-
lenskir aðalverktakar tækju þátt
með þessum hætti í þeirri nýsköp-
unarfjármögnun sem við höfum
sérhæft okkur í.“ Gylfi segir
áhugavert að fá ÍAV inn í hlut-
hafahóp EFA enda sé þarna um
tiltölulega stóran eignarhlut að
ræða og að þeir komi til með að
skipa hóp tíu stærstu hluthafa
félagsins.
EFA selur hlut í
Samskipum
Ótengd viðskiptunum við ÍAV er
sala EFA á hlutabréfum í Sam-
skipum hf. að nafnverði 40 millj-
ónir króna. Ekki fæst uppgefið
hver kaupandi þess hlutar var eða
verð bréfanna. Fyrir söluna átti
EFA tæplega 62 milljónir króna
en við söluna fór hlutur félagsins
niður í um 2% af heildarhlutafé
Samskipa. EFA mun þó, sam-
kvæmt tilkynningu sem félagið
sendi til Verðbréfaþings, eiga end-
urkauparétt á þessum hlutabréfum
sem það getur nýtt sér á næstu
mánuðum.
Ennfremur segir að með þessum
viðskiptum leysi félagið til sín
töluverðan söluhagnað á árinu. Þó
muni þær sveiflur sem verið hafi á
fjármálamörkuðum undanfarið
hafa talsverð áhrif á rekstraraf-
komu félagsins og því sé ljóst að
rekstrarniðurstaða ársins verði
talsvert undir væntingum stjórn-
enda. Þróun þeirra óskráðu félaga
sem EFA hefur fjárfest í hafi aft-
ur á móti verið jákvæð.
EFA fjárfestir í fast-
eignafélaginu Landsafli
Seldi eigin bréf og bréf í Samskipum
MENNINGARMÁL