Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 53

Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 53 ✝ Ragnar Karlsson,Smárahlíð 2d, Akureyri, fæddist á Hálsi í Kjós 24. maí 1953. Hann lést af slysförum 19. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Karl Andrésson, f. 19.6. 1914, d.17.9. 1991, og Hulda Sig- urjónsdóttir, f. 1.11. 1927. Systkini hans eru Gestur Ólafur, Sigurjón, Gróa, Andrés, Sólveig og Ævar. Ragnar kvæntist Freyju Sig- urðardóttur. Börn þeirra eru Birna Sólveig, f. 18.6. 1972, og Hulda Rut, f. 13.5. 1973. Þau skildu. Ragnar kvæntist Maríu Bjarnadóttur. Barn þeirra er Guðrún Kristjana, f. 5.8. 1984. Þau skildu. Eftirlifandi eigin- kona Ragnars er Ell- en Jónasdóttir, f. 1.7. 1949. Börn hennar eru Unnar Þór, Jón- as Elvar og Eyrún Soffía. Síðustu ár starfaði Ragnar hjá Höldi hf. á Akureyri við flutn- ing á Morgunblaðinu frá Reykjavík til Akureyrar. Útför Ragnars fer fram frá Glerárkirkju á Akureyri í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Kæri vinur, komið er að kveðju- stund og aldrei hafði ég leitt hugann að því að svona slys gæti hent þig, sem raun bar. Mig langar í nokkrum línum til þess að reyna að koma frá mér smá- þakklæti til þín fyrir traustið og vin- áttuna sem þú sýndir mér alltaf frá því leiðir okkar fyrst lágu saman. Vináttu sem með hverju ári varð traustari og sem við félagarnir síðan bundum saman með tveimur ógleymanlegum veiðiferðum á liðnu sumri, þegar við fórum til mikils vin- ar þíns á Syðra-Fjalli í Aðaldal sem líkt og ég skilur alls ekki að þetta hafi komið fyrir né tilgang almætt- isins með þessu. Moggos minn, það er alveg öruggt, þín er sárt saknað af okkur vinnufélögunum, hvort heldur það eru strákarnir á Bílaleiguverkstæð- inu eða þeir sem eru í kringum mig á skrifstofunni. Að heyra engin hóstaköst lengur er nokkuð sem ég hef enn ekki áttað mig á. Aldrei átti ég von á að ég saknaði þeirra en önnur er raunin, þótt skrítið sé. Ekki ætla ég mér að skrifa um þig lofræðu, það væri ekki í þínum anda, en ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér og vera vinur þinn þótt það hefði mátt vara í lengri tíma. Raggi minn, ég kveð þig að sinni í þeirri vissu að leiðir okkar liggi sam- an aftur. Ellen mín, megi minningin um góðan eiginmann, traustan vin og félaga hjálpa þér til að takast á við þessa miklu raun. Móður, börnum og systkinum votta ég mína dýpstu samúð. Kristinn Tómasson. Kveðja frá Höldi Kæri vinur. Hún var hörmuleg fréttin sem hann Kiddi færði mér þegar hann snemma morguns hringdi í mig út til Noregs, þar sem ég er í fríi, og sagði mér að það hefði orðið hræðilegt slys fyrr um morg- uninn og að þú værir dáinn. Ég neit- aði í fyrstu að trúa því að þú værir farinn, þú varst mér svo miklu meira en bara samstarfsmaður eins og svo margir aðrir hjá Höldi, það gæti bara ekki verið að ég ætti ekki eftir að heyra í þér framar. En slysin gera ekki boð á undan sér og nú ertu farinn þangað sem við öll förum að lokum, þú fórst bara allt of snemma, kæri vinur. Þú komst til starfa hjá Höldi fyrir rúmum fjórum árum, fyrst starfaðir þú við bensínafgreiðslu en mjög fljótlega tókstu svo við því starfi sem þú sinntir upp frá því sem var að keyra Morgunblaðið frá Reykjavík til Akureyrar. Þetta var brautryðj- andastarf, erfitt og erilsamt en alla tíð sinntir þú því af þvílíkri kost- gæfni að betri mann en þig var bara ekki hægt að hugsa sér, enda varstu fljótlega kominn með viðurnefnið „Moggos“. Þú féllst strax svo vel inn í hópinn hjá okkur, alveg eins og þú hefðir bara verið þarna frá upphafi, alltaf tilbúinn í hvað sem er og stutt í grínið jafnframt því sem þú hefðir vaðið eld og brennistein fyrir Höld og Moggann. Hversu oft höfum við Kiddi og þú ekki strítt hver öðrum eða reynt einn eða annan hrekkinn og enginn var í rónni fyrr en hann hafði náð að klekkja aðeins á hinum. Alltaf var þetta í góðu og það var einmitt svo sterkt við þig, þú varst svo heill og beinn. Hversu oft komstu ekki upp á skrifstofu til mín til að ræða eitt og annað varðandi aksturinn sem var þér svo mikilvæg- ur. Því miður hafði ég ekki alltaf tíma til að spjalla við þig þegar þú komst en aldrei tókstu því illa. Hversu oft sá ég ekki símanúmerið þitt á gemsanum mínum og svaraði með hraði: „Ég hringi í þig eftir hálfa.“ Og svo hringdi ég kannski ekki fyrr en seint um kvöldið og það eina sem þú sagðir var kannski: „Er það þetta sem þú kallar hálfa?“ Og svo spjölluðum við saman og þú varst ekki sár yfir þessari „hálfu“. Hversu oft höfum við ekki spjallað saman á nóttinni þegar færið var erfitt eða bara annar hvor þurfti að spjalla við hinn og við höfðum báðir tíma. Mikið á ég eftir að sakna þess að heyra ekki frá þér snemma á morgnana skammast yfir þessu eða hinu án þess að vera virkilega reiður, ég held reyndar að þú hafir ekki kunnað að vera reiður, þú varst alltof góð sál til þess, svona eins og stór og góður bangsi, enda fékkstu alltaf þínu framgengt með þínum hætti. Kæri vinur, nú er komið að leið- arlokum og þú ert farinn í þína hinstu ferð. Við sem eftir stöndum erum harmi slegin. Samstarfsfólk þitt og vinir hjá Höldi kveðja góðan félaga og frábæran starfsmann, missir okkar allra er mikill en missir eiginkonu þinnar hennar, Ellenar, og barna þinna er mestur. Ég bið góðan Guð að styrkja þau á þessari sorgarstundu. Vertu sæll, vinur. F.h. Hölds, Steingrímur Birgisson. „Vegir liggja til allra átta, á þeim verða skil.“ Nú hafa orðið skil á vegi Ragnars Karlssonar bílstjóra sem í hartnær sex ár hafði þann starfa að aka með Morgunblaðið frá Reykja- vík til Akureyrar. Þriðjudagurinn 19. desember rann upp, gott veður og Raggi búinn að tilkynna á símsvaranum að hann mundi verða á Akureyri rétt fyrir klukkan 7. Þegar fyrsti starfsmaður mætti til vinnu klukkan 8 og engin blöð komin á skrifstofuna var aug- ljóst að eitthvað hafði hent. Fregnin um að bíllinn hefði farið út af veginum og að bílstjórinn væri látinn kom eins og reiðarslag. Ragnar var öllum hnútum kunn- ugur á þjóðvegi 1, Akureyri-Reykja- vík-Akureyri, og þær eru ófáar ferð- irnar sem hann hefur ekið á milli með Morgunblaðið að næturlagi. Þetta var hans heimavöllur. Hann þekkti hvern hól, hverja hæð og beygju og vissi hvað bæri að varast. Marga hildina hefur hann á þessum tíma háð í vályndum veðrum á heið- um. Stundum kom hann nokkuð hrakinn eftir slíkt volk, en ávallt skilaði hann sér með blaðið. Oftar en ekki mun fyrr en við var að búast miðað við aðstæður. Hann var bráðflinkur bílstjóri og naut virðingar í starfi. Metnaðarfull- ur var hann og lagði sig fram um að leysa verkefni sín vel af hendi, hratt en örugglega. Ráma röddin hans Ragga var það fyrsta sem við heyrðum á morgnana er við mættum til vinnu. Hann var líka duglegur að koma við hjá okkur og þiggja kaffi og spjalla. Sagði hann oft sögur af næturlífinu á þjóðvegi 1. Ragnar ávann sér mikið traust og nefna má að hann gaf lögreglu og Vegagerð upplýsingar um ástand vega og færð á þessari fjölförnu leið. Góður drengur hefur nú lagt upp í sína síðustu ferð. Hans er sárt sakn- að. Mestur er harmur eiginkonu hans, móður, barna og barnabarna. Þeim viljum við senda okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Vegir liggja til allra átta, en nú er þess að bíða að birti á ný og bleikur morgunn rísi. Starfsfólk Morgunblaðsins á Akureyri. RAGNAR KARLSSON                                               ! "# $  "# %"  &' ( *  $  !+*   "# $   !*" %"  ,$  "# $  ! # %!  *" %"  +  +- $. +  +  +- (                                    ! "       #  #     $  %                 !   #    $ #% &   #   ' ( #     #   ) #%   #    #   * % ( )$ ))$ %( )))$+                          !  "   !    #$ %   & '$    (       "   )*$                                                      !                     ! "#$ %&'                   !      "  #    $$% !    ( )!* +%,     ( -( %   *. **! // 0 (  // 12                  !" #$    %              &' ()                                      !    "   #$   #$ %&& '                                    !"  # $ #  %  !"    %$! $ &% '$  # $  !$( ) *  !"  # $ $+ ,! &$  % *$ *-$ .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.