Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 59
Stýrimaður
Stýrimann vantar á 75 tonna netabát sem rær
frá Sandgerði.
Upplýsingar í símum 852 0748 og 899 2857.
ATVINNA ÓSKAST
Leikskólann Undraland
vantar starfsmann strax.
Vinnutími frá kl. 13.00—17.00.
Upplýsingar gefa Bryndís og Sonja í síma
554 0880 frá kl. 9.00—14.00.
„Au pair“ í London
Íslensk fjölskylda, búsett í góðu hverfi í London,
óskar að ráða „au pair“ til að líta eftir 3½ göml-
um dreng. Lágmarksaldur 18 ára. Verður að
vera reyklaus, reglusöm og hafa bílpróf.
Upplýsingar í síma 564 2494.
Sjálfboðavinna í Afríku
Sjálfboða vantar til þróunarhjálpar í
Guinea Bissau og Zimbabwe.
Barnahjálp
Flóttamannahjálp
AIDS forvarnarstarf
Landbúnaður
Þjálfunarnámskeið í Danmörku.
Hringdu núna: 0045 56 72 61 00.
lotte@humana.org www.lindersvold.dk
Heimilishjálp óskast
Fjölskylda á Seltjarnarnesi óskar eftir barngóðri
heimilishjálp frá klukkan 13.00 til klukkan 17.30
alla virka daga. Viðkomandi þarf að annast
öll venjuleg heimilisstörf og sækja 1 árs gaml-
an dreng til dagmömmu í næstu götu kl. 15.00
og taka á móti 7 ára dreng klukkan 14.00.
Ef þú hefur áhuga hringdu í síma 860 1474 og
fáðu upplýsingar. Nauðsynlegt er að umsækj-
andi gefi upp a.m.k. tvo meðmælendur.
Flísalagnir
Verktakar — húsbyggjendur
Getum bætt við okkur fleiri verkefnum.
Upplýsingar í símum 897 1512 og 862 4344.
Eyjólfur og Heiðar múrarar.
Matsvein
vantar strax á 350 tonna netabát sem rær frá
Sandgerði.
Upplýsingar í síma 896 5559.
Embætti sýslumanns
á Ólafsfirði
Embætti sýslumannsins á Ólafsfirði, sem dóms-
málaráðherra veitir, er laust til umsóknar.
Staðan verður veitt frá 1. apríl 2001.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, Arnarhvoli, eigi síðar en 1. febrúar 2001.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja
um embættið.
Umsóknir, þar sem umsækjandi óskar nafn-
leyndar, verða ekki teknar gildar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
2. janúar 2001.
Kynningarfulltrúar
Ert þú sú/sá sem við leitum að?
Átt þú auðvelt með að vinna í hóp?
Áttu auðvelt með að tala við ókunnuga?
Hefur þú góða enskukunnáttu?
Getur þú unnið í 4 tíma á dag?
Við bjóðum: Góð tímalaun ásamt prósentum
og bónus. Fulla þjálfun og þú getur byrjað strax.
Góða vinnuaðstöðu. Ef þetta hentar þér, komdu
þá í viðtal á Grand Hotel Reykjavík föstudaginn
5. janúar á milli kl. 9 og 13 eða 14 og 18.
Við hlökkum til að sjá þig.
Grand Hotel Reykjvík,
Sigtúni 38,
105 Reykjavík.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
TIL SÖLU
Til sölu ódýr borð
og stólar
Til sölu eru 50 fjögurra manna borð og um 150
stólar úr borðsal Heilsustofnunar. Húsgögnin
eru nokkuð við aldur en þeim hefur verið vel
viðhaldið. Upplýsingar gefur framkvæmda-
stjóri í síma 483 0300 eða 896 8814.
Heilsustofnun NLFÍ.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Útboð
Gasaflstöðin við Straumsvík
Grjótkörfur, fylling og uppsetning
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
fyllingu og uppsetningu á grjótkörfum við gas-
aflstöð Landsvirkjunar við Straumsvík, í sam-
ræmi við útboðsgögn STR-12.
Verkið er fólgið í grjótfyllingu, um 260 m³ og
uppsetningu á grjótkörfum úr vír („gabionum“)
í einfaldri röð upp í sex metra hæð, við hús-
byggingu gasaflstöðvar.
Innifalið í verkinu er útvegun fyllingar og smíði
festinga, en Landsvirkjun leggur til körfur til
verksins.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá
og með miðvikudeginum 3. janúar 2001 gegn
óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 2.000 fyrir
hvert eintak.
Tilboð verða opnuð þann 16. janúar 2001 kl.
11:00 á skrifstofu Landsvirkjunar á Háaleitis-
braut 68, Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóð-
endum, sem þess óska.
Útboð — gatnagerð
Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum
í gatnagerð við Fífuhvammsveg.
Í verkinu felst að tvöfalda Fífuhvammsveg milli
hringtorga við Dalsmára og Lindarvegar, með
jarðvegsskiptum, holræsum, umferðareyjum,
umferðarljósum, einum steyptum undirgöng-
um og stígum.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 28.000 m³
Fylling 22.000 m³
Malbik 40.000 m²
Holræsi 635 m
Undirgöng
Steinsteypa 200 m³
Mót 1.020 m²
Verkið er áfangaskipt, en skal skila fullbúnu
fyrir 15. september 2001.
Útboðsgögn verða afhent á Tæknideild Kópa-
vogs frá og með þriðjudeginum 2. janúar 2001,
gegn 20.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
16. janúar 2001, kl. 11.00 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þar mæta.
Framkvæmdadeild Kópavogs.
TILKYNNINGAR
Norðausturvegur,
Bangastaðir-Víkingavatn,
Kelduneshreppi
Mat á umhverfisáhrifum — úrskurður
Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt
lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif-
um. Fallist er á fyrirhugaða lagningu Norðaust-
urvegar milli Bangastaða og Víkingavatns í
Kelduneshreppi eins og henni er lýst í mats-
skýrslu framkvæmdaraðila.
Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu-
lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is.
Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 31. janú-
ar 2001.
Skipulagsstofnun.
STYRKIR
Námsstyrkir
Verslunarráð Íslands auglýsir eftir umsóknum
um tvo styrki til framhaldsnáms erlendis sem
veittir verða úr Námssjóði Verslunarráðs.
1. Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms við
erlendan háskóla eða aðra sambærilega
skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu
og stuðla að framþróun þess.
2. Skilyrði styrkveitingar er að umsækjendur
hafi lokið háskólanámi eða öðru sambæri-
legu námi.
3. Hvor styrkur er að upphæð kr. 200.000 og
verða þeir afhentir á Viðskiptaþingi Verslun-
arráðs Íslands 8. febrúar 2001.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Versl-
unarráðs Íslands í Húsi verslunarinnar, Kringl-
unni 7, 103 Reykjavík, fyrir kl. 16:00, föstudag-
inn 19. janúar 2001.
Umsóknum þarf að fylgja afrit af prófskírteini,
vottorð um skólavist erlendis, lýsing á náminu
við hinn erlenda skóla og ljósmynd af umsækj-
anda.
Verslunarráð Íslands.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Miðlun — spámiðlun
Lífssporin úr fortíð í nútíð og
framtíð.
Tímapantanir og upplýsingar
veittar í símum 692 0882 og
561 6282, Geirlaug.
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma í Kristniboðssalnum í
kvöld kl. 20.30. Mesfin Mamo.
Friðrik J. Karlsson og Valgerður
Gísladóttir tala.
Allir hjartanlega velkomnir.
Netfang http://sik.is
Þrettándaferð Jeppadeildar í
Bása 6.—7. jan.
Þrettándagleði í þessu sæluríki
vetrar og fjalla. Pantið strax.
Léttar göngur og kvöldvaka.
Sameiginleg kvöldmáltíð.
Sunnudagur 7. janúar kl. 10.00.
Nýársferð í Krýsuvík og
Herdísarvík.
Heimasíða: utivist.is
Gleðilegt nýtt ferðaár!
R A Ð A U G L Ý S I N G A R