Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 66
FRÉTTIR
66 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði
umtalsverðan mannafla við störf
um áramótin enda oft mörg verk-
efni sem lögreglumenn sinna á
þessum tímamótum. Samtals
færðu lögreglumenn 670 verkefni
til bókunar þessa helgi.
Talsvert var um skemmdir af
völdum flugelda sem oft var, þá
vegna þess að notkun þeirra var
ekki í samræmi við leiðbeininga-
reglur. Alls var tilkynnt um 57
skemmdarverk víðsvegar um um-
dæmið af þessum sökum og til-
kynnt var um 38 minni háttar
bruna. Mikið var hringt til lög-
reglu og kvartað undan ónæði og
hávaða vegna sprenginga.
Mjög fáar tilkynningar komu til
lögreglu um líkamsmeiðingar og
má leiða hugann að því hvort karl-
menn, sem eru meirihluti gerenda
og þolenda slíkra mála, hafi fengið
útrás á annan hátt þessa helgi.
Ók á biðskýli
og stakk af
Lögreglu var tilkynnt um 36
umferðaróhöpp um helgina og 18
ökumenn voru stöðvaðir vegna
gruns um ölvun við akstur.
Ökumenn tveggja bifreiða voru
fluttir á slysadeild eftir árekstur á
Bergþórugötu og Snorrabraut á
laugardagskvöld. Lögreglu barst
tilkynning um að bifreið hefði ver-
ið ekið á biðskýli strætisvagna í
Víkurhverfi aðfaranótt sunnudags.
Biðskýlið fór á hliðina en ökumað-
ur reyndi að forða sér af vettvangi
en fannst skömmu síðar. Hann var
vistaður í fangageymslu til frekari
yfirheyrslu.
Kona var handtekin eftir hafa
brotið rúðu í útihurð í verslun við
Rauðarárstíg sem var lokuð. Brot-
ist var inn í skóla í Grafarvoginum,
skemmdir unnar á gólfefnum og
þaðan stolið tölvu. Þá var brotist
inn í leikskóla í Suðurhólum en
ekki er talið að neinu hafi verið
stolið.
Skoteldar notaðir til
skemmdarverka
Skemmdir voru unnar á rúðu í
kirkju í Breiðholti um helgina.
Lögreglan stöðvaði skömmu síðar
bifreið og færði til yfirheyrslu
ungmenni sem talin eru eiga aðild
að málinu. Þá var brotin rúða í
húsnæði í Grafarvogi og eru ung-
menni einnig grunuð um aðild að
því skemmdarverki. Bifreið
skemmdist á Bæjarhálsi þegar
logandi blysi var hent í opið skott
hennar. Tvær rúður brotnuði í
skólahúsnæði í Austurborginni
þegar ruslatunna var sprengd upp.
Skemmdir á Bústaða-
kirkju og bíl
Þrjár rúður voru brotnar og
skemmdir unnar á trjágróðri við
Bústaðakirkju. Þá voru einnig
unnar skemmdir á bifreið sem stóð
á stæði við kirkjuna. Fimm rúður
voru brotnar í húsi við Hallveig-
arstíg með skoteldum.
Karlmaður í Rimahverfi hafði
kveikt í flugeldi sem fauk inn um
glugga á stigagangi og olli
skemmdum á hurð og gólfefni á
stigagangi. Þá lenti flugeldur inni í
íbúð í Safamýri og urðu nokkrar
skemmdir á innanstokksmunum
og fatnaði.
Flugeldur fór inn um svalahurð
á íbúð í Hraunbæ og olli skemmd-
um á innanstokksmunum. Flug-
eldur fór inn um glugga og olli
skemmdum á innbúi íbúðar í Vest-
urbergi.
Talsverðar skemmdir
af völdum flugelda
29. desember til 2. janúar
Úr dagbók lögreglunnar
STJÓRN Læknafélags Íslands
gerði eftirfarandi samþykkt á fundi
sínum 29. desember sl.: „Hinn 8.
febrúar sl. sendu stjórnir Lækna-
félags Íslands og Læknafélags
Reykjavíkur frá sér yfirlýsingu um
málefni Landspítalans og Sjúkra-
húss Reykjavíkur. Í henni segir
m.a.: „Koma þarf í veg fyrir fag-
lega stöðnun og einokun á samein-
uðu hátæknisjúkrahúsi, meðal ann-
ars með tímabundnum ráðningum
æðstu stjórnenda sjúkradeildar.
Nýta þarf þetta tækifæri til að fella
hið nýja sjúkrahús að nútímalegum
hugmyndum um hinn akademíska
þátt í rekstri þess með því að efla
tengslin við Háskóla Íslands þann-
ig að það þjóni landsmönnum sem
kennslu- og rannsóknastofnun jafnt
sem sjúkrahús í fremstu röð.
. . . Stjórnir Læknafélags Íslands
og Læknafélags Reykjavíkur
hvetja stjórnvöld til að grípa ekki
til neinna þeirra aðgerða í máli
þessu sem líklegar eru til að valda
afturför eða ólgu og sundurþykkju
meðal þeirra sem málið varðar
mest.“ Landspítali – háskólasjúkra-
hús er eina heilbrigðisstofnunin af
sínu tagi hér á landi. Innan veggja
þessarar stofnunar er að finna
þekkingu til greiningar og með-
ferðar sjúkdóma og til kennslu heil-
brigðisstétta eins og best gerist
meðal þjóða á Vesturlöndum.
Landspítali – háskólasjúkrahús
ætti því með réttu að teljast háborg
heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi.
Ein af forsendum þess að svo geti
orðið er að þar ríki akademískt
frelsi til hugsunar og tjáningar um
þróun heilbrigðisþjónustu hér á
landi. Það frelsi varðar jafnt um-
ræður um heilsugæslu utan sjúkra-
húsa og sjúkrahúsþjónustu sem
brotalamir sem á þessari þjónustu
kunna að vera. Allir starfsmenn
sjúkrahússins ættu að njóta frelsis
að þessu leyti. Það er skoðun
stjórnar Læknafélags Íslands að
lúti starfsmennirnir óttanum um
óvild sjúkrahússtjórnarinnar beri
þeir fram óþægilega framtíðarsýn
frá hennar sjónarhóli muni það
leggja dauða hönd framtaks- og
sinnuleysis á málefni Landspítala –
háskólasjúkrahúss sem og annarra
heilbrigðisstofnana í landi okkar.
Stjórn Læknafélags Íslands
hvetur alla hlutaðeigendur til að
virða þessi sjónarmið landsmönn-
um öllum til hagsbóta og velfarn-
aðar.“
Frelsi til hugsun-
ar og tjáningar
ríki á spítulum
Samþykkt stjórnar
Læknafélags Íslands