Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 72
DAGBÓK
72 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lag-
arfoss og Dettifoss
koma og fara í dag.
Trinket fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Venus, Pétur Jónsson,
og Dellach fóru í gær.
Lagarfoss kom í gær.
Fréttir
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í s. Krabba-
meinsráðgjafarinnar,
800-4040, kl. 15–17.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Flóamark-
aður og fataúthlutun.
Opið frá kl. 14–17.
Frímerki. Kristniboðs-
sambandið þiggur með
þökkum alls konar not-
uð frímerki, innlend og
útlend, ný og gömul,
klippt af með spássíu í
kring eða umslagið í
heilu lagi. Útlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM og K, Holtavegi
28, Reykjavík, og hjá
Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni, Glerárgötu
1, Akureyri.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kirkju-
starf aldraðra, ára-
mótaguðsþjónusta í
Grafarvogskirkju í dag
kl. 14, prestur sr. Vig-
fús Þór Árnason og sr.
Miyako Þórðarson,
prestur heyrnarlausra,
sem mun túlka á tákn-
máli. Litli kór Nes-
kirkju syngur og leiðir
almennan söng. Söng-
stjóri og einsöngvari
Inga J. Backman, org-
anisti Reynir Jónasson.
Kaffiveitingar í boði
Grafarvogssóknar eftir
guðsþjónustuna. Allir
velkomnir og takið með
ykkur gesti. Farið frá
Aflagranda kl. 13.
Skráning í afgreiðslu og
í s. 562-2571. Á morgun
myndmennt kl. 13.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–16.30
klippimyndir, útsaumur
o.fl., kl. 13 smíðastofan
opin og spilað í sal, kl. 9
hár- og fótsnyrtistofur
opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl.9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 10 banki, kl. 13
spiladagur og vefnaður.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
hárgreiðslustofan og
handavinnustofan opn-
ar, kl. 13 opin handa-
vinnustofan.
Félagsstarf, Furugerði
1. Þrettándagleði verð-
ur föstudaginn 5. jan-
úar kl. 14. Ólafur B.
Ólafsson leikur á píanó
og harmonikku og dótt-
ir hans, Ingibjörg Aldís
sópransöngkona, syng-
ur innlenda og erlenda
tónlist. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára
9 opin kl 16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting
og verslunin opin til kl.
13, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, byrjendur.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Línudanskennsla
Sigvalda í kvöld kl.
19.15. Fimmtudagur:
Brids kl. 13. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 11. jan-
úar kl. 11–12. Panta
þarf tíma. Breyting hef-
ur orðið á viðtalstíma
Silfurlínunnar, opið er á
mánud. og miðvikud.
frá kl. 10–12 f.h., uppl.
á skrifstofu FEB í s.
588-2111 frá kl. 10–16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Opið frá kl. 9–16.30, frá
hádegi spilasalur opinn,
kl. 12.30–13.30 banka-
þjónusta (ath. breyttan
tíma). Í dag verður
áramótaguðsþjónusta í
Grafarvogskirkju kl. 14
á vegum Ellimálaráðs
Reykjavíkurprófasts-
dæma. Prestar sr. Vig-
fús Þór Árnason og sr.
Miyako Þórðarson sem
túlkar á táknmáli. Litli
kór Neskirkju syngur
og leiðir almennan
safnaðarsöng undir
stjórn Ingu J. Backman
sem einnig syngur ein-
söng. Organisti Reynir
Jónasson. Kaffiveit-
ingar í boði Grafarvogs-
sóknar. Eftir athöfnina
verður ekið um borgina
ljósum prýdda. Mæting
í Gerðubergi kl. 13.15.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Starfsfólk óskar öllum
þátttakendum og sam-
starfsaðilum gleðilegs
árs og friðar með þakk-
læti fyrir stuðning og
samstarf á árinu sem er
að líða. Hlökkum til
nýja ársins.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb og tréskurð-
ur. Kynningardagur
verður fimmtudaginn 4.
janúar kl. 14. Skráning
á námskeið fer fram á
sama tíma. Fólk er
hvatt til að mæta og
kynna sér þá starfsemi
sem fyrirhuguð er til
vors og koma með til-
lögur. Leikfimi hefst að
nýju fimmtudaginn 4.
janúar á venjulegum
tíma.
Gullsmári, Gullsmára
13. Leikfimi byrjar í
dag á venjulegum tíma.
Kynningardagur verður
í dag kl. 14–16. Skrán-
ing á námskeið fer fram
á sama tíma. Fólk er
hvatt til að mæta og
koma með tillögu um
hvað hægt sé að gera í
félagsheimilinu. Heitt á
könnunni og heimabak-
að meðlæti.
Hraunbær 105. Erum
byrjuð aftur á fullum
krafti, allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Kl. 9–16.30 bútasaum-
ur, kl. 9–12 útskurður,
kl. 9–17 hárgreiðsla, kl.
11 banki, kl. 13 brids.
Lausir tímar í myndlist
og glerskurði, uppl. í
síma 587-2888.
Hæðargarður 31. Kl. 9
opin vinnustofa, postu-
línsmálun og fótaað-
gerð, kl. 10 sam-
verustund, kl. 13 böðun.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla, keramik,
tau- og silkimálun og
jóga, kl. 11 sund í
Grensáslaug, kl. 14
danskennsla, Sigvaldi,
kl. 15 frjáls dans, Sig-
valdi, kl. 15 teiknun og
málun.
Norðurbrún 1. Kl. 9–16
fótaaðgerðastofan opin,
kl. 9–12.30 útskurður,
kl. 9–16.45 handa-
vinnustofurnar opnar,
kl. 10 sögustund, kl. 13–
13.30 bankinn, kl. 14
félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
aðstoð við böðun,
myndlistarkennsla og
postulínsmálun, kl. 13–
16 myndlistarkennsla,
glerskurður og postu-
línsmálun, kl. 13–14
spurt og spjallað.
Áramótaguðsþjónusta
verður í Grafarvogs-
kirkju í dag kl. 14. Lagt
af stað frá Vesturgötu
kl. 13.15. Prestar sr.
Vigfús Þór Árnason og
sr. Miyako Þórðarson,
prestur heyrnarlausra,
túlkar á táknmáli. Litli
kór Neskirkju syngur
og leiðir almennan
söng, söngstjóri og ein-
söngvari Inga J. Back-
man, organisti Reynir
Jónasson. Kaffiveit-
ingar í boði Grafarvogs-
sóknar eftir guðþjón-
ustuna. Allir velkomnir
og takið með ykkur
gesti.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bankaþjónusta, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir, bókband og
bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13.30 bókband,
kl. 14.10 verslunarferð.
Bústaðarkirkja, starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13–16.30 spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Nánari uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530-
3600.
Minningarkort
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540-1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Í dag er miðvikudagur 3. janúar, 3.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
En Jesús hrópaði: „Sá sem trúir
á mig, trúir ekki á mig, heldur
þann sem sendi mig.“
(Jóh. 12, 44.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
NÚ GETUR hver maður
séð að þessi leið til að
ákveða laun kennara er
alröng, þar sem hún bitn-
ar á saklausum aðila, sem
er æskulýðurinn í landinu,
og það er engu líkara en
blessuðum börnunum sé
haldið í gíslingu. Þegar í
upphafi bar svo mikið á
milli deiluaðila að þeir
gátu ekki samið sín á milli
um neina millileið og nú
er það mál að sannast að
þetta er ekki leið til þess
að ákveða laun kennara.
Það verður að gerast í
kjaranefnd eða kjaradómi,
eins og gerist hjá hlið-
stæðum stéttum í þjóð-
félaginu. Nú er fengin sú
reynsla að fyrsta verk
stjórnvalda verður að
vera að þetta gerist aldrei
aftur og verði ákveðin hér
eftir af sérstökum kjara-
dómi eða kjaranefnd.
Gamall kennari.
Skrípaleikur
AF HVERJU er þessi
skrípaleikur ár eftir ár við
öryrkja að gefa þeim jóla-
uppbót og taka þetta svo
aftur í skatta? Í ár voru
það 15.900 kr. en eftir
skatta voru litlar 4.797
eftir. Maður fer að gráta
þegar maður sér þetta. Er
ekki búið að kvelja okkur
nógu mikið? Þarf einnig
að eyðileggja jólahátíðina
með þessum uppákomum?
Hvers konar land er þetta
sem við búum í? Það er
sko ekkert sæluríki fyrir
öryrkja og eldri borgara.
Það hefur verið staðfest
aftur og aftur en ekki af
þeim sem ráða ríkjum
hérna. Eftir áliti þeirra
höfum við það prýðilegt
og stórfínt.
Bæði þarf að hækka
skattleysismörkin og svo
aðeins að taka skatta af
hálfsdagsvinnu handa
þeim sem treysta sér til
að vinna. En hérna refsar
ríkið þeim sem vinna með
því að lækka örorkubæt-
ur. Þetta kalla ég andlegt
ofbeldi og niðurlægingu
gagnvart varnarlausu
fólki sem orðið hefur fyrir
því að missa það dýrmæt-
asta sem við höfum –
heilsu okkar.
Sonja R. Haralds,
Bakkakoti.
Ánægð með
Ríkissjónvarpið
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi lýsa
yfir ánægju sinni með
dagskrá Ríkissjónvarpsins
um jólin. Hún var mjög
ánægð með dagskrána á
jóladag og annan í jólum.
Classic Sun
EIGANDI Classic Sun
hafði samband við Velvak-
anda vegna greinar sem
birtist í Velvakanda fyrir
stuttu. Það er búið að
opna Classic Sun í Bæj-
arlind 14-16 í Kópavogi
undir nafninu Lindarsól.
Tapað/fundið
Blátt hjól
í óskilum
BLÁTT karlmannshjól er
í óskilum í garði á Sel-
fossi. Upplýsingar í síma
482-2435.
Karlmanns-
armband tapaðist
TAPAST hefur karlmanns
silfurarmband með text-
anum: Þröstur og Íris.
Armbandið hefur mikið
persónulegt gildi. Finn-
andi vinsamlegast hafið
samband í síma: 896-0315
og 891-7441. Fundarlaun í
boði.
Glæsileg svört
karlmannsúlpa
tapaðist
GLÆSILEG svört karl-
mannsúlpa tapaðist í eða
við Hótel Ísland á annan í
jólum. Húm er svört með
gráu fóðri innan í og það
er mynd af grárri eðlu á
bakinu. Fundarlaun. Upp-
lýsingar í síma 565-7610
eða 867-1683.
Kvengullúr
í óskilum
KVENGULLÚR fannst
fyrir utan Kringluna
föstudaginn 29. desember
sl. Upplýsingar í síma
588-7765.
Dýrahald
Lubbi er
týndur
HANN býr á Núpabakka
í Breiðholti. Lubbi er
svartur og hvítur, loðinn
köttur. Hans er sárt sakn-
að. Lubbi hvarf að morgni
28. desember sl. Vinsam-
legast hafið samband í
síma 567-7010.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þetta má
aldrei gerast
aftur
Víkverji skrifar...
BÓKIN Hálendið í náttúru Ís-lands eftir Guðmund Pál Ólafs-
son er stórmerkileg og hreint þrek-
virki. Hún er allt í senn: myndabók,
ferðabók og fræðirit um náttúru fyr-
ir unga sem aldna. Í ofanálag er hún
feikn vel skrifuð og oftlega tekur
höfundur fyrir merkingu orða sem
tengjast landinu.
Víkverja áskotnaðist bókin um jól-
in og hefur þegar blaðað gegnum
hana og lesið talsvert í henni og kom-
ist að ofangreindri niðurstöðu. Það
skal strax tekið fram að þessa bók
taka menn trauðla í rúmið á kvöldin
þar sem hún er í stóru broti og þung
og yfir 400 blaðsíður. Sjálfsagt verð-
ur hún heldur ekki lesin í einum rykk
eins og hver annar reyfari heldur er
eðlilegra að taka fyrir ákveðna kafla
eða hluta bókarinnar og fara yfir þá
eftir því sem áhuginn leiðir lesand-
ann.
Þetta er líka bók sem gott er að
grípa til þegar hugað er að óbyggða-
ferð til að glöggva sig á staðháttum
og landafræði. Einnig er bent á eitt
og annað sem getur komið að gagni í
slíkri ferð og víst er alltaf þörf á slík-
um heilræðum og ábendingum-
.Dæmi um það er tilvitnun í Sigurjón
Rist vatnamælingamann þar sem
hann fjallar um hvernig best er að
haga sér ef fara þarf um sandbleytu,
bls. 79.
x x x
ÍFORMÁLA bókarinnar segir höf-undur að löngun hans til að örva
lesendur til óbyggðaferða liggi að
baki verkinu: „Í þjóðfélagi þar sem
ys og þys er daglegt brauð eru hin
hjóðlátu ferðalög og þögn öræfanna
mikilvægari en manninn grunar þeg-
ar hann leggur upp í sína fyrstu ferð.
Fleira hangir á þeirri spýtu – meðal
annars sú von og trú að náin kynni
og þekking muni efla vitund og virð-
ingu gagnvart náttúru landsins,“
segir hann og kveður bókina hugs-
aða sem fræðilegan bakgrunn og
vopn þeirra sem umhugað er að
vernda landið og villta náttúru þess.
„Þar af leiðandi er verkið ekki síður
ætlað þeim sem huga að fram-
kvæmdum á öræfum og vilja vanda
til verks. Fræðileg og listræn ábyrgð
þeirra er gríðarleg.“
Þarna kemur höfundur að kjarna
bókarinnar, þeim rauða þræði sem
gengur gegnum hana alla: Að vernda
óspillta náttúruna og gefa henni frið
fyrir hvers kyns röskun og inngripi
mannsins. Þessi umhyggja höfundar
fyrir hálendinu og viðvörun um að
fara með gát kemur vel fram í þeim
fyrsta hluta bókarinnar sem Víkverji
hefur þegar lesið. Hægt er að nefna
nokkur dæmi um þetta: „Verði virkj-
að í Bjarnarflagi kann Hverarönd að
kólna,“ segir í myndatexta á bls. 63
og á hann þar við hverina austan
Námafjalls. „Blöndulón var forleik-
ur, eins konar æfing á þjóðinni. Við
fórn Fögruhvera hófst meðvituð at-
laga stjórnvalda að náttúru landsins.
Slík mistök verða aldrei lagfærð og
aðeins þjóðin sjálf getur komið í veg
fyrir hömlulausa eyðileggingu fóst-
urjarðarinnar með því að læra að
meta hana í sinni hreinu og óvirkj-
uðu tign.“ Bls. 65.
x x x
FRAMSETNING efnisins er að-gengileg. Fyrir utan stórgóðar
myndir er textinn skýr og brotinn
upp með tilvitnunum. Þar leitar höf-
undur víða fanga, hjá fræðimönnum,
skáldum og sagnariturum. Annars
er þessi pistill ekki hugsaður sem rit-
dómur um bókina heldur er verið að
vekja athygli á hversu skemmtileg
og fróðleg hún er. Hún hlýtur að
verða skyldulesning í skólum, senni-
lega framhaldsskólum. Þess vegna
ætti höfundur eða kennarar í sam-
ráði við hann að semja eins konar
kennsluleiðbeiningar við bókina.
Víkverji kynntist hálendinu fyrst
fyrir rúmum 30 árum og hefur þó
ekki gert annað en gára yfirborðið.
Nóg er eftir og hann tekur undir
með Guðmundi Páli á bls. 10: „Við
erum landkönnuðir í eigin landi og
rétt að hefja störf.“
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 flík, 4 grasflöt, 7 ves-
öldin, 8 hyggur, 9
skepna, 11 bráðum, 13
spotta, 14 sé í vafa, 15
þorpara, 17 sáru, 20
borðandi, 22 róin, 23
svæfla, 24 málmurinn, 25
hæsi.
LÓÐRÉTT:
1 svengdar, 2 land í Asíu,
3 brún, 4 vex, 5 bátagálg-
inn, 6 veiða, 10 stundum
þessi, stundum hinn, 12
veiðarfæri, 13 borða, 15
gagnslítil, 16 miskunnin,
18 sárum, 19 úrana, 20 at-
ferlið, 21 keyrir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 mergjaður, 8 rófur, 9 aldin, 10 ill, 11 sárar, 13
linna, 15 krans, 18 andar, 21 vin, 22 latti, 23 getan, 24
barningur.
Lóðrétt: 2 elfur, 3 gerir, 4 aðall, 5 undin, 6 hrós, 7 enda,
12 ann, 14 inn, 15 köld, 16 aftra, 17 svinn, 18 angan, 19
duttu, 20 rann.