Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 77
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 77
STEFÁN Vignir Skarphéðinsson,
nemandi í 10. bekk í Grunnskóla
Borganess, fékk þá hugmynd að
breyta útliti sínu á fáránlegan
hátt. Þess vegna fannst honum að
strípur eða litun myndu ekki duga
heldur væri permanent það fárán-
legasta sem hugsast gæti fyrir
ungan pilt. Hins vegar var hann
ekki viss um hvort hann tímdi að
eyða vasapeningunum sínum í
krullurnar svo að hann fékk aðra
hugmynd. Hún var að safna áheit-
um frá skólafélögum sínum og lét
í því skyni ganga undirskriftalista
í unglingadeild skólans þar sem
samnemendur hans rituðu nafn
sitt og þá upphæð sem þeir voru
tilbúnir að láta af hendi rakna.
Áheitin námu frá tíu krónum og
upp í fimm hundruð og söfnuðust
alls fimm þúsund og níuhundruð
krónur. Þar sem permanentið
kostaði fimm þúsund er níu
hundruð króna afgangur og býst
Stefán við því að eyða honum í
myndbandsspólu og nammi.
Fréttaritari fylgdist með Stef-
áni í permanentinu en það var
Ingleif Gunnarsdóttir í Hár-
greiðslustofu Heiðu í Borganesi
sem setti það í hann.
Stefán var hvergi smeykur og
aldrei á þeim buxunum að hætta
við enda hafði hann pantað lamba-
krullur. Hann var að sögn mjög
spenntur yfir breyttu útliti. Með
Stefáni var einnig útvarpsmaður
frá fm Óðali 101,3 sem tók viðtal
við hann annað slagið og smellti
af honum ljósmyndum sem birtar
voru á vef útvarpsins, enda um
stórfrétt að ræða í Borgarnesi.
Alveg eins og engill
Margir unglingar litu inn á hár-
greiðslustofuna til að sjá fram-
kvæmdina með eigin augum. Það
kom síðan á daginn að viðstaddir
voru sammála um að hann liti út
eins og engill og fengi ábyggilega
lítinn frið fyrir stelpunum. Hann
sagðist ekki óttast það en þá gæti
hann bara safnað áheitum og
breyst aftur. Nú eru menn að
velta því fyrir sér hvort fleiri
strákar fylgi ekki í kjölfarið og
fái sér permanent eða dettur þeim
eitthvað fáránlegra í hug?
Fékk sér
lambakrullur
Stefán Vignir vakti athygli
Borgnesinga fyrir athæfið.
Hárblásarinn gerir permanentið
varanlegt.
Ingleif og Stefán hreykja sér yfir fullkomnun lambakrullanna.
Uppátækjasamur ungur Borgnesingur
Ljósmynd/Guðrún Vala Elísdóttir
Sléttur og slöngulaus Stefán.
Stefán var hvergi banginn við að
breyta um útlit.