Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 78

Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 78
FÓLK Í FRÉTTUM 78 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ jsb – góður staður fyrir konur SHANNEN Doherty, sú sama og lék Brendu Walch í Bev- erly Hills þáttunum ástsælu komst á dög- unum í kast við lögin og var handtekin, grunuð um ölvunar- akstur. Shannen, sem skaust á stjörnu- himininn með leik sínum í Beverly Hills 90210 var, að sögn, handsömuð af laganna vörðum þar sem hún ók æði skrykkjótt á hrað- braut í Kaliforníu- fylki og var færð til lögreglustöðvar til að gangast und- ir blóðprufu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikkonan leggja- langa lendir í vandræðum, en árið 1997 var henni fyrirskipað af dómara að fara í skap- ofsameðferð eftir að hafa grýtt flösku í framrúðu bifreiðar í srifrildiskasti. Ekki liggur enn fyrir hvert áfengismagnið var í blóði Shan- nen en hún hefur verið skikkuð til að mæta fyrir dómstól 26. janúar. Shannen hefur annars verið að gera það gott og sló síðast í gegn með þáttaröðinni Charmed þar sem hún lék eina af þremur systr- um sem uppgötva að þær búa yfir galdrahæfileikum. Tíminn verður síðan að skera úr um hvort Shan- nen tekst að galdra sig úr þeirri klípu sem hún er stödd í núna, en má þó vera bjartsýn því það hefur oft viljað loða við að stórstjörnur hafi notið meiri skilnings hjá dómurum en gengur og gerist. Shannen Doherty úr Beverly Hills handtekin Ók drukkin Þó hún sé fræg og fríð má hún ekki brjóta lög-in, hún Shannen Doherty. „REYKJAVÍK hefur verið tísku- borg úti í heimi undanfarin ár, og fólk er farið að koma til Íslands, ekki bara til að skoða Gullfoss og Geysi, heldur líka þessa skrýtnu borg, þetta sambland af þorpi og heims- borg sem Reykjavík er,“ segir Jón Kaldal ritstjóri Iceland Review, en tímaritið dreifir nú ókeypis einum kafla, sem nefnist In Reykjavík. Innsýn í lífið Jón segir þennan hluta hafa verið með frá fyrsta tölublaði þessa árs í tilefni af menningarborginni. „Við fjöllum samt ekki um Reykjavík út frá þeim forsendum,“ útskýrir Jón, „heldur ákváðum að nota menning- arborgarárið sem tilefni til þess að byrja með Reykjavíkurkafla í Ice- land Review. Mikill hluti ferða- manna kemur hingað af því að þeir hafa lesið greinar um Reykjavík, skemmtanalífið, undarlega arkitekt- úrinn og skemmtilegt fólk. Með þessum kafla langar okkur að veita áskrifendum okkar innsýn í lífið í þessari borg, og af nógu er að taka.“ Hvert tölublað Iceland Review er prentað í um 15 þúsund eintökum, og því er dreift hér innan lands á hótel og víðar, en meiri hluti upp- lagsins fer út fyrir landssteinanna, eða til yfir hundrað landa. „Þetta tiltæki að prenta sérstak- lega þennan kafla og gefa út sem lít- ið Reykjavíkurtímarit er tilraun til að sýna að Iceland Review er tímarit sem kemur víða við og fylgist með. Það er algengur misskilningur að í því séu bara fallegar landslags- myndir, greinar um íslenska hest- inn, svona hefðbundið landkynning- arefni. En það er miklu meira. Í síðasta tölublaði vorum við t.d með grein um réttindastöðu samkyn- hneigðra, útflutning á íslenskum knattspyrnumönnum og tónlistar- arfinn í handritunum. Náttúran verður áfram í brennidepli, en við erum með þessu tiltæki að ýta við fólki og fá það til að hugsa um Ice- land Review líka sem blað um höf- uðborgina.“ Að mynda ákveðin hughrif – Viljið þið höfða til yngra fólks? „Vissulega, því Iceland Review vill ekki eldast og deyja með gömlu áskrifendunum sínum. Við viljum taka þátt í því sem er að gerast, og þetta er einn liður í því.“ – Er útlitið eitthvað öðruvísi? „Nei, því við höfum alltaf lagt mikla áherslu á hönnun og útlit Ice- land Review sem var fyrsta tímaritið hannað af fagfólki. Reykjavíkurkafl- inn er ekki mjög frábrugðinn hönn- un tímaritsins sjálfs, nema hvað þar erum við með margar litlar greinar sem eru ekki í hefðbundari hlutum blaðsins. Greinar sem eru ekki fréttaúttekt heldur reynum við að mynda ákveðin hughrif með stutt- um, forvitilegum textum og með- fylgjandi myndum. Ef þetta lukkast vel og það er áhugi á Reykjavíkur- kaflanum, gæti hann jafnvel orðið að sérstöku tímariti um Reykjavík. Þangað til verður hann fastur liður í Iceland Review,“ sagði Jón Kaldal að lokum og skorar á sem flesta að kíkja á In Reykjavík sem liggur ókeypis frammi á kaffihúsum, í völd- um bókaverslunum og víðar. Nýr kafli um skrýtna borg Af nógu að taka í Reykjavík Morgunblaðið/Ásdís Jón Kaldal ritstjóri blaðar glaður í nýja ritinu sínu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.