Morgunblaðið - 16.01.2001, Síða 1
12. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 16. JANÚAR 2001
HEILAR, mergur og aðrir hlutar
nautgripa sem kunna að bera í sér
kúariðusmit kunna í framtíðinni að
verða hluti af dönsku sementi.
Danskir vísindamenn hafa leitað
lausna á því hvað gera eigi við þá
hluta skepnunnar sem geta borið
smit og eru nú að leggja lokahönd á
sement blandað kýrheilum og
merg. Dýralæknisembættið og um-
hverfismálayfirvöld hafa gefið
grænt ljós.
Þar sem bannað er að nýta kjöt-
og beinamjöl í fóður vegna hætt-
unnar á smiti hafa vísindamenn
reynt að finna önnur not fyrir það
enda um talsvert magn að ræða, um
250 tonn á viku, sem þarf að losna
við.
Kjöt- og beinamjöli hefur verið
blandað í sement í nokkrum Evr-
ópulöndum og telja dönsk yfirvöld
ekkert að því að taka slíkt upp í
Danmörku. Áður en það gerist
verða mjölframleiðendur að semja
um verð við sementsframleiðendur
og vona að banni Evrópusambands-
ins við allri notkun kjöt- og beina-
mjöls verði breytt er það rennur út
30. júní nk.
Samkvæmt því verður að geyma
allt áðurnefnt mjöl þar til eftirlits-
kerfi í viðkomandi löndum hafa
verið könnuð til fullnustu en Danir
framleiða um 200.000 tonn af kjöt-
og beinamjöli árlega.
Kýrheilar
notaðir
í sement
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
OTTO Gregussen, sjávarútvegsráð-
herra Noregs, hefur til athugunar að
koma á veiðileyfagjaldi í sjávarút-
veginum en leggur áherslu á, að það
verði að bíða um sinn vegna ástands-
ins í greininni.
Gregussen segir að meginverkefn-
ið nú sé að endurskipuleggja fiski-
skipaflotann en afkastageta hans er
miklu meiri en svarar til aflaheimild-
anna.
„Þeir, sem hið opinbera úthlutar
veiðileyfum, njóta ákveðinna forrétt-
inda, sem þeir geta hagnast mikið á.
Þegar búið verður að laga flotann að
því, sem auðlindin gefur af sér, er
rétt, að þeir greiði nokkuð til sam-
félagsins fyrir þessi forréttindi,“
segir Gregussen og heldur því fram
að það sé skynsamlegra fyrir þá, sem
mega stunda ákveðnar veiðar, að
greiða hæfilegt gjald en eiga á
hættu, að þær verði opnaðar öllum.
Gregussen kynnti þessar hug-
myndir sínar á fundi með útgerðar-
mönnum í síðustu viku en fékk held-
ur dræmar undirtektir. Þeir og
önnur hagsmunasamtök í norskum
sjávarútvegi eru andvíg veiðigjaldi
en Leiv Grønnevet, sem fer með mál-
efni sjávarútvegsins í norska bank-
anum Kreditkassen, segir, að veiði-
gjald sé eðlilegt þegar búið verði að
taka til í greininni.
Noregur
Veiðileyfa-
gjald til
athugunar
Ósló. Morgunblaðið.
ÍSRAELAR aflýstu í gær friðarvið-
ræðum, sem fara áttu fram síðar um
daginn við Palestínumenn, og lokuðu
Gazasvæðinu vegna morðs á ísraelsk-
um landnema. Viðræðunum verður
þó haldið áfram í dag að sögn ísra-
elska ríkisútvarpsins.
Ísraelski herinn brást við morði
ísraelska landnemans með því að loka
alþjóðaflugvellinum á Gaza og einnig
helstu þjóðvegum á svæðinu. Var því
öllu skipt upp í fjóra hluta og þannig
komið í veg fyrir, að Palestínumenn
gætu farið ferða sinna. Hefndu aðrir
ísraelskir landnemar morðsins með
því að brenna heimili Palestínu-
manna, akra og gróðurhús. Þá skutu
ísraelskir hermenn Palestínumann til
bana á Vesturbakkanum.
Hótar refsingum
Ehud Barak, forsætisráðherra
Ísraels, sagði í gær, að morðið á ísra-
elska landnemanum væri glæpur,
sem ekki yrði fyrirgefinn. Sagði hann,
að Ísraelar myndu ná til morðingj-
anna og refsa þeim og öðrum, sem
ráðist hefðu gegn Ísraelum. Meira en
360 manns hafa fallið síðustu mánuði,
langflestir Palestínumenn.
Aftökur tveggja manna, sem pal-
estínsk yfirvöld dæmdu til dauða fyrir
samstarf við Ísraela, hafa verið for-
dæmdar, einkum í Evrópu, en auk
þess hafa tveir menn aðrir verið
dæmdir til dauða fyrir sömu sakir.
Segja talsmenn Palestínustjórnar, að
njósnir mannanna fyrir Ísraela hafi
leitt til dauða nokkurra landa þeirra,
en stjórnin hefur nú ákveðið að heita
þeim griðum, sem starfað hafa fyrir
Ísraela, gefi þeir sig fram innan 45
daga.
Gazasvæði lokað og
friðarviðræðum frestað
Gaza, Jerúsalem. AP, AFP.
Aftökur/28
MIKILL óhugur er í íbúum El Salva-
dor eftir mannskæðan jarðskjálfta
sem reið yfir landið á laugardag og
forseti þess, Francisco Flores, reyndi
í gær að fullvissa þá um að ekki væri
hætta á frekari náttúruhamförum.
Að minnsta kosti 500 manns biðu
bana og 780 slösuðust í jarðskjálft-
anum í El Salvador sem mældist 7,6
stig á richterskvarða. Haft er hins
vegar eftir talsmönnum ýmissa hjálp-
arstofnana, að meira en 4.000 manns
til viðbótar sé enn saknað, þar af um
3.000 í Comasagua og 1.200 í ná-
grannabænum Las Colinas. Björgun-
armenn voru ekki komnir til bæjanna
í gær vegna ónýtra vega en sagt er,
að mikil skriða hafi fært Comasagua
á kaf. Um 500 eftirskjálftar, allt að
5,6 á richterskvarða, ollu mikilli skelf-
ingu meðal íbúanna og torvelduðu
björgunarstarfið.
Francisco Flores sagði að ekki
væri hætta á öðrum stórum skjálfta á
næstunni og reyndi að kveða niður
orðróm um að jarðhræringarnar
gætu komið af stað eldgosi eða flóð-
bylgjum, sem geta fylgt öflugum
jarðskjálftum.
„Engar slíkar náttúruhamfarir
verða,“ sagði Flores. „Við hvetjum
fólk til að sýna stillingu og halda dyr-
um heimila sinna opnum til að geta
komist út ef snarpir eftirskjálftar
verða.“
Þúsundir húsa
eyðilögðust
Yfirvöld sögðu að 11.000 manns
hefðu orðið að flýja heimili sín vegna
skjálftans. Alls hefðu um 8.000 hús
eyðilagst og tæplega 16.900
skemmst.
Af þeim 403 líkum sem höfðu verið
grafin upp í gær fundust flest í bæn-
um Santa Tecla, skammt frá höfuð-
borginni San Salvador, þar sem allt
að 500 hús eyðilögðust í aurskriðu.
Talsmenn Rauða krossins sögðu að
óttast væri að 1.000 lík væru enn í
húsarústum bæjarins.
Þúsundir manna héldu áfram
björgunarstarfinu í Santa Tecla en
ólíklegt var talið í gær að nokkur
fyndist á lífi úr þessu.
Skjálftans varð einnig vart í
grannríkjunum Gvatemala, Ník-
aragva, Hondúras og allt norður til
Mexíkóborgar. Sex manns biðu bana
í Gvatemala.
AP
Íbúar bæjarins Santa Tecla, skammt frá San Salvador, leita að fórnarlömbum skriðu sem féll á bæinn í jarðskjálftanum á laugardag.
Hundruð manna farast í jarðskjálfta í El Salvador og þúsunda er saknað
Reynt að draga úr ótta
við frekari hamfarir
San Salvador. AFP, Reuters.
Miklir eftirskjálftar/26
♦ ♦ ♦