Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ TRILLUR ● Léttu þér vinnuna ● Gerðu langar vega- lengdir stuttar og þungar vörur léttar ● Sterk plastgrind og öflug hjól með legum Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is SOCO trillur - liprar og léttar - KYNNING verður á starf- semi AtvinnuLífsinsSkóla, ALS, hjá Ferðaþjónustunni Öngulsstöðum III næstkom- andi fimmtudag, 18. janúar kl. 17. Á fundinn mæta Kristín Jónsdóttir sem veitir Endur- menntunarstofnun HÍ for- stöðu, Kristján Jónsson, lekt- or við HÍ, en hann er aðalkennari á viðskiptanám- skeiðum ALS og fulltrúi úr hópi nemenda á fyrsta nám- skeiði ALS. AtvinnuLífsinsSkóli er einkafyrirtæki sem stendur fyrir hagnýtum námskeiðum fyrir fólk í atvinnulífinu. Markmiðið er að ná hámarks- árangri á lágmarkstíma og til þess eru þau haldin með heimavistarformi þar sem nemendur einbeita sér að náminu ótruflaðir af öllu öðru. Fyrstu námskeiðin sem ALS stendur fyrir eru 100 tíma viðskiptanámskeið, tvisv- ar sinnum 5 dagar, með mán- aðar millibili. Þessi námskeið eru byggð á 300 tíma þriggja anna rekstrar- og viðskipta- námi sem hafa ekki annað eft- irspurn hjá Endurmenntunar- stofnun. Næstu tvö námskeið hefjast 8. og 22. febrúar næst- komandi og stendur innritun yfir hjá Endurmenntunar- stofnun Háskóla Íslands. Kynning á Atvinnu- Lífsins- Skóla HJÁLPRÆÐISHERINN á Akur- eyri hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram koma þakkir til allra þeirra sem veittu á einhvern hátt stuðning svo að herinn gæti glatt aðra um jólahátíðina. Hjálpræðisherinn Þakkir fyrir stuðning STJÓRN Einingar-Iðju í Eyjafirði samþykkti á fundi nýlega ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að sjá til þess að breytingar sem nú standa fyrir dyrum á varðskipunum tveimur fari fram hér á landi. „Það er mikill samdráttur hjá fyr- irtækum sem sérhæfa sig í smíði og viðgerðum á skipum og hefur komið til uppsagna starfsmanna,“ segir í ályktun Einingar-Iðju. Enn fremur segir þar að það hljóti að vera þjóð- hagslega hagkvæmt fyrir Íslendinga að halda vinnunni hér innanlands þar sem menn borga sína skatta og skyldur. Viðgerð á varðskipum fari fram innanlands Stjórn Einingar-Iðju GRUNNUR að geðheilsu fullorðins manns er lagður í móðurkviði. Þetta sagði Sigmundur Sigfússon, geðlæknir á Akureyri, í tilefni af því að kynnt var útkoma bók- arinnar „Nýja barnið“ en hún fjallar um hugmyndafræði, aðferð- ir og árangur samnefnds þróun- arverkefnis Heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri. Bókin er unnin af starfsmönnum heilsugæslustöðvarinnar og hand- leiðendum verkefnisins, Huldu Guðmundsdóttur félagsráðgjafa og sérfræðingi í sállækningum og Sig- mundi Sigfússyni geðlækni. Land- læknisembættið gefur bókina út. Þróunarverkefnið „Nýja barnið“ var unnið á árunum 1992-1997 sem þáttur í heilsuvernd og fjöl- skylduverndarstarfi Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri. Vinnulag þessa verkefnis hefur nú verið tekið upp í daglegu for- varnarstarfi stöðvarinnar sem við- bót við hefðbundna mæðra-, ung- barna-, og skólaheilsuvernd, en það felst m.a. í nánu samstarfi heimilislækna, mæðraverndar, ungbarnaverndar, fjölskylduráð- gjafar og skólaheilsugæslu. Allt að 40% barnshafandi kvenna þurfa aukinn stuðning Vinnulagið byggir á þeirri hug- myndafræði, að takist foreldrum að mynda heilbrigð og sterk til- finningatengsl við barn sitt strax eftir fæðingu sé mun auðveldara að veita því þá félagslegu örvun og öryggiskennd sem nauðsynleg er til að það fái þroskað þá sam- skiptahæfni, sem barninu er nauð- synlegt veganesti út í lífið. Með þessu vinnulagi mun í fyrsta sinn á Íslandi markvisst unnið að velferð barnsins og fjölskyldu þess strax frá upphafi meðgöngu með sér- stöku tilliti til tilfinningatengsla. Niðurstaða höfunda af greiningu áhættuþátta var sú að um 30-40% barnshafandi kvenna hafa þörf fyr- ir aukinn stuðning, áfallaúrvinnslu eða einhver meðferðarúrræði. Þróunarverkefnið „Nýja barnið“ fékk viðurkenningu Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar árið 1997. Verkefnisstjórar þess voru Hjálmar Freysteinsson heimilislæknir og Karólína Stef- ánsdóttir fjölskylduráðgjafi, en við kynningu á bókinni greindu þau frá helstu þáttum þess. Karólína gat þess að um afar krefjandi vinnu hefði verið að ræða og tíma- freka, en einnig gefandi og skemmtilega. Hún sagði bókina m.a. nýtast starfsfólki á heilbrigðisstofnunum, til kennslu á heilbrigðissviði og einnig hefði hún almennt notagildi. Elja og dugnaður Sigurður Guðmundsson land- læknir sagði verkefnið einstakt að mörgu leyti, starfsfólk heilsu- gæslustöðvarinnar hefði með elju og dugnaði unnið að því um árabil, eða frá 1992 og nú sæju menn hversu merkilegt starf þarna hefði verið unnið. Hulda Guðmundsdóttir sagði að þegar væri farið að spyrjast fyrir um bókin á heilsugæslustöðvum víða um landi og greinilegt að áhugi væri fyrir þessu verkefni sem unnið hefði verið á Heilsu- gæslustöðinni á Akureyri. Nýja barnið, þróunarverkefni Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri, komið á bók Markvisst unnið að velferð barns frá upphafi meðgöngu Morgunblaðið/Kristján Útgáfa bókarinnar Nýja barnið sem er þróunarverkefni Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri. Við borðið sitja aðalhöfundar bókarinnar, f.v. Hulda Guðmundsdóttir, Anna Karólína Stefánsdóttir og Hjálmar Frey- steinsson. Með þeim á myndinni er Sigurður Guðmundsson landlæknir. VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands, VÍS, opnaði nýja tjónaskoðunarstöð á Akureyri fyrir helgi. Félagið hefur rekið slíka stöð við Furuvelli síðustu 10 ár, en keypti á liðnu ári um 300 fermetra nýbyggingu við Frosta- götu 4c á Akureyri. Sigurður Harðarson, umdæmis- stjóri VÍS á Norðurlandi, sagði að í kjölfar flutninganna hefði umsjón- armaður bifreiðatjóna félagsins einnig flutt aðsetur sitt, farið af skrifstofu félagsins við Glerárgötu og í hina nýju tjónaskoðunarstöð. „Þetta er liður í því að veita betri þjónustu, en nú þurfa þeir sem leita þurfa til okkar vegna tjóns á bifreið- um sínum einungis að fara á einn stað þar sem þeir fá þjónustu á ein- um stað,“ sagði Sigurður. Hann sagði að VÍS hefði kapp- kostað að veita Akureyringum sem besta þjónustu og væri hún sam- bærileg og annars staðar. Rúmlega 800 bílar fóru um tjóna- skoðunarstöð VÍS á Akureyri árið 1999, en tölur fyrir síðasta ár liggja ekki endanlega fyrir að sögn Sig- urðar. Hann sagði þó að vitað væri að um aukningu væri að ræða milli ára. Tjónum í umferðinni hefði fjölg- að og eins hefði markaðsstaða félagsins orðið sterkari. Í salnum er góð lýsing en bílar eru gjarnan myndaðir og upplýsing- um um þær bifreiðar sem seldar eru er komið fyrir á Netinu. Tölva er í salnum og geta áhugasamir skoðað hvað er á boðstólum af tjónabílum og gert tilboð ef því er að skipta. Sigurður sagði að sala á slíkum bíl- um gengi verr en áður. Afkoma þeirra sem keypt hafa slíka bíla til að gera upp og selja síðan aftur hef- ur versnað og færri sjá sér því hag í að kaupa slíka bíla. Í hinni nýju tjónaskoðunarstöð fer einnig fram kynning á þeim ör- yggisbúnaði sem seldur er um vef VÍS á Netinu og þar er einnig mið- stöð útleigu á barnabílstólum á svæðinu. Morgunblaðið/Kristján Brynjar H. Jónsson innan um skemmda bíla í nýja húsnæðinu. Vátryggingafélag Íslands opnar nýja tjónaskoðunarstöð Liður í betri þjónustu FRAMKVÆMDIR við fyrri áfanga vesturkants Fiskihafnarinnar á Ak- ureyri eru komnar vel á veg og lá fyrsta skipið, togarinn Norma Mary, við festar þar um hátíðarnar. Þá er unnið að smíði 36 metra bátabryggju milli austur- og vesturkant Fiski- hafnarinnar, þar sem verður fram- tíðarviðlegupláss fyrir hafnsögubáta Hafnasamlags Norðurlands. Hörður Blöndal hafnarstjóri sagði að næsta mál á dagskrá væri að rífa burt nefið, þar sem núverandi að- staða hafnabátanna er, en áður en það verður gert í vor þarf að vera bú- ið að smíða nýju bátabryggjuna. Einnig verður ráðist í dýpkun Fiski- hafnarinnar í vor og næsta haust er stefnt að því að halda áfram að nið- urrekstri á stálþili vesturkantsins til norðurs. Viðlegukanturinn er um 120 metrar í dag en hann verður lengdur um 70 metra. Þá er verið einangra hús á vest- urkantinum sem notuð verða til að afgreiða rafmagn og vatn til skipa. Að sögn Harðar er stefnt að því ljúka framkvæmdum í Fiskihöfninni 2002. Hafnasamlag Norðurlands Ný bryggja fyrir hafnsögubátana Morgunblaðið/Kristján Unnið við smíði nýs viðlegukants fyrir hafnsögubáta Hafnasamlags Norðurlands milli austur- og vesturkants Fiskihafnarinnar. Þá er verið að leggja lokahönd á afgreiðsluhús fyrir vatn og rafmagn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.