Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Til sölu Toyota Hilux D-cab disel 2400. 4 dyra, nýskráður 6.10.2000, ekinn 2.000 km, 33 tommu breyttur, brettakantar, plast í skúffu, krókur, stigbretti. Ásett verð 2.790.000. Ath. skipti ÞÓTT lengsta kennaraverkfalli sög- unnar sé lokið er enn eftir að gera fjölmarga kjarasamninga milli ríkis, sveitarfélaga og viðsemjenda og ann- arra aðila. Þórir Einarsson ríkis- sáttasemjari segir að nokkur fjöldi mála sé í vinnslu án þátttöku embætt- isins og önnur í formlegri vinnslu. Fiskimannafélögin þrjú eru enn með lausa samninga og hefur litlu miðað í þeim efnum. Flugumferðar- stjórar eru jafnframt með mál sín hjá ríkissáttasemjara og hafa verið haldnir nokkrir fundir með þeim og viðsemjendum. Þórir segir að minnsti gangurinn sé líklega hjá sjó- mönnum. Þar hafi deilan verið lengi í gangi og litlu miðað. Fátt efnislegt hafi verið borið á borð í viðræðum en útgerðarmenn vakið umræðu um breytingar á hlutaskiptakerfinu. Sjó- menn hafi þó ekki ljáð máls á slíku nema hugsanlega með markaðsteng- ingu aflans. Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis á morgun. Sleipnismenn hættu í verkfalli í júlí sl. en samninga- viðræður hafa ekki komist almenni- lega í gang, ekki síst vegna dómsmála sem hafa verið rekin út af verkfallinu. Félag skipstjórnarmanna, sem er innan Farmanna- og fiskimannasam- bandsins, hefur vísað kjaraviðræðum yfirmanna hjá Landhelgisgæslunni til ríkissáttasemjara og Matvís fyrir hönd bryta hjá Landhelgisgæslunni. Stærst að umfangi eru mál sem snerta ríkið og sveitarfélögin, að sögn Þóris, og skipta þau tugum en aðeins fáein þeirra eru komin til sáttameð- ferðar hjá ríkisáttasemjara. Viðræð- ur eru við lögreglumenn, launanefnd sveitarfélaga ræðir við slökkviliðs- menn og bæjarstarfsmenn o.s.frv. Um 500 samningsumboð Sigurður Óli Kolbeinsson, fram- kvæmdastjóri launanefndar sveitar- félaga, segir að viðræður séu í gangi við fjölmarga viðsemjendur nefndar- innar, þar á meðal leikskólakennara, slökkviliðsmenn og félög innan Al- þýðusambands Íslands. Einnig séu að fara í gang viðræður við bæjar- starfsmannafélögin, sem er næstfjöl- mennasta starfsstéttin sem launa- nefndin semur við. Innan þeirra raða eru um 5 þúsund stöðugildi en að sjálfsögðu mun fleiri starfsmenn. Stöðugildi leikskólakennara eru u.þ.b. 900 og verða fundir við þennan hóp í dag og fram eftir vikunni. Hjá ASÍ eru um 1.500 stöðugildi og hefur launanefndin samningsumboð vegna 70–80 félaga innan ASÍ en stefnt er að gerð sameiginlegs samnings sem flestra þessara félaga á vettvangi Starfsgreinasambandsins. Þá er unn- ið að samningum við fjölmörg önnur félög, þ. á m. þroskaþjálfa, sjúkraliða og ýmis félög innan Bandalags há- skólamanna. Alls er launanefndin með rúmlega 500 umboð frá sveitar- félögunum. Sigurður Óli segir að samningar séu ekki í sjónmáli á næstu dögum. Margir hafi verið að bíða eftir nið- urstöðum í málum kennara. Hann segir hugsanlegt að mál verði langt komin í lok þessa mánaðar á einstaka vígstöðvum. Þá verður fundað stíft þessa viku með leikskólakennurum. Fjölmargir samn- ingar ennþá lausir MEÐAN vegfarendur bíða eftir að græni karlinn birtist virðist sem bíl sé ekið á ljóshraða framhjá þeim. Ef- laust hefur bílnum verið ekið á lög- legum hraða en ljósmyndarinn beitt óvenjulegum hraða í myndatökunni. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Ys og þys RANNSÓKNADEILD lögreglunn- ar á Akureyri handtók um helgina tólf manns, átta karla og fjórar kon- ur, vegna aðildar þeirra að tveimur fíkniefnamálum. Annað þeirra kom upp í Eyjafjarðarsveit og hitt á Ár- skógssandi. Upplýsingar bárust deildinni um að sala á fíkniefnum færi fram á bæ einum í Eyjafjarðarsveit síðastliðið föstudagskvöld. Samkvæmt upplýs- ingum frá rannsóknadeildinni var maður sem var að koma frá um- ræddum bæ handtekinn, en í kjölfar þess styrktust grunsemdir um að sala á fíkniefnum ætti sér þar stað. Fulltrúar rannsóknadeildarinnar fóru heim að bænum og ræddu við húsráðanda. Við húsleit fundust 100 grömm af hassi, 15 grömm af kókaíni og 15 grömm af amfetamíni auk þess sem hald var lagt á skotvopn á staðn- um. Húsráðandi var handtekinn og færður á lögreglustöð til yfirheyrslu ásamt með þremur öðrum sem á bænum voru. Á meðan á húsleit stóð komu tveir menn til viðbótar að bæn- um og vegna grunsemda um aðild að málinu voru þeir einnig handteknir, þannig að alls voru í þessu máli sjö manns handteknir, tveir konur og fimm karlar. Þremur þeirra var sleppt strax að yfirheyrslu lokinni, en þrír voru úr- skurðaðir í gæsluvarðhald fram á næsta föstudag. Þeim var hins vegar sleppt í gær, mánudag, þar sem mál- ið taldist fullrannsakað og upplýst. Á sunnudag bárust lögreglu einn- ig upplýsingar um að fíkniefnaneysla og jafnvel sala færi fram í húsi einu á Árskógssandi. Þar voru fimm hand- teknir, þrír karlar og tvær konur. Við húsleit fundust um 20 g af hassi og áhöld til neyslu. Fólkið var flutt til yfirheyrslu á lögreglustöðina og gistu fangageymslur en var sleppt síðdegis í gær. Málið er talið upplýst. Rannsóknadeild lögreglunnar á Akureyri rannsakar fíkniefnamál í Eyjafirði Tólf handteknir vegna tveggja fíkniefnamála Hald lagt á töluvert magn fíkniefna STÚDENTARÁÐ hefur auglýst eft- ir einkunnum frá kennurum við Há- skóla Íslands. Eiríkur Jónsson, for- maður Stúdentaráðs, segir að þetta sé í annað sinn sem gripið sé til þess- ara ráðstafana en svo virðist sem áralöng venja hafi skapast fyrir þeim ósið kennara að draga það að skila frá sér einkunnum. Á heimasíðu stúdentaráðs, www.shi.hi.is, er listi yfir þau 10 námskeið sem mest eru komin í vanskil á hverjum tíma. Þar kemur í ljós að námskeiðin Reikn- ingshald I og II eru í mestum van- skilum og skammt á eftir koma Fjar- skiptaverkfræði og Inngangur að uppeldis- og menntunararfi. Eiríkur segir að auglýsingin hafi valdið miklum titringi meðal kenn- ara en um leið bætt einkunnaskilin. Þetta var gert í fyrsta sinn sl. vor. Þá voru 32% prófa í vanskilum en Eirík- ur segir að ástandið sé skárra núna, eða á milli 20-25% í vanskilum. Eiríkur segir að dráttur á ein- kunnaskilum geti haft veruleg áhrif á framvindu náms fyrir stúdenta. Menn útskrifist ekki fyrr en þeir hafi fengið einkunnir. Um 7 þúsund manns stunda nám í HÍ og þar af eru um 40-50% á námslánum og segir Ei- ríkur að ætla megi að um 3 þúsund manns séu að bíða eftir afgreiðslu námslána en fái ekki krónu fyrr en þeir geti framvísað upplýsingum um námsárangur. Ákveðnir kennarar eru komnir tíu daga fram yfir skila- frest og námsmenn í þeim námskeið- um eru enn að bíða eftir niðurstöðum úr prófum til að fá námslán vegna náms í september til desember. Auglýst eftir einkunnum frá kennur- um í HÍ ÍSLENSKT björgunarfólk verður ekki sent á hamfara- svæðið eftir jarðskjálftann í El Salvador en beiðni barst um slíkt frá Sameinuðu þjóðunum til Almannavarna ríkisins í gærmorgun. Ákvörðunin var tekin í ljósi ákvörðunar banda- rísku almannavarnanna í gær um að ekki kæmi að gagni að senda bandarískar björgunar- sveitir til að leita að fórnar- lömbum sem grófust undir húsarústum í jarðskjálftanum síðdegis á laugardag. Auk beiðninnar um björgun- arsveitir barst almannavörnum svonefnd UNDAC-beiðni frá Sameinuðu þjóðunum í Genf á laugardagskvöldið. Íslendingar buðu fram aðstoð sína en síðar barst tilkynning um að ákveðið hefði verið að taka björgunar- fólk frá S-Ameríku og nokkra spænskumælandi menn og konur frá Evrópu. Ekki talin koma að gagni ytra Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almanna- varna ríkisins og stjórnandi ís- lensku alþjóðabjörgunarsveit- arinnar, sagði í fréttatilkynn- ingu í gær að til að hægt væri að taka upplýsta ákvörðun um hvort gagn væri að því að senda íslensku alþjóðabjörgunar- sveitina hefði verið aflað nánari upplýsinga um hvernig björg- unarstarfið gengi í El Salvador. Eftir hádegi í gær hefðu svo þær upplýsingar fengist í kjöl- far stöðufundar Almannavarna Bandaríkjanna að Bandaríkja- menn myndu ekki senda björg- unarsveitir til El Salvador þar sem þeir álitu að það myndi ekki koma að gagni við björgun mannslífa. Með hliðsjón af þessum upplýsingum og að höfðu samráði við skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf hefði því verið tekin sú ákvörð- un að senda ekki íslensku al- þjóðasveitina. Íslenskt björgun- arlið ekki sent til El Salvador
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.