Morgunblaðið - 16.01.2001, Síða 39
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 39
anum en þar sem orsökina er að
finna.
Meðferð hjá sjúkraþjálfara bygg-
ist alfarið á sögu og mjög sérhæfðri
skoðun, sem gerir meðferð bæði
markvissari og líklegri til árangurs.
„Misvægi eða ójafnvægi í stoðkerfi
líkamans veldur mörgum vanda-
málum m.a. bakverkjum, verkjum í
hálsi og herðum, höfuðverkjum,
svima, jafnvægisleysi, grindarlosi og
svo mætti lengi telja,“ segir Sigrún.
„Bakverkir eru sennilega eitt dýr-
asta vandamál atvinnulífsins í dag.
Afleiðingar þeirra eru mjög kostn-
aðarsamar ef horft er til þess vinnu-
taps sem margir verða fyrir af þeirra
völdum og ennfremur vegna þeirra
meðferða sem viðkomandi þarf að
gangast undir til þess að ná betri
heilsu til að komast aftur til starfa. “
Sigrún segir að með réttri grein-
ingu og meðferð geti dregið úr þess-
um kostnaði. Sjúkraþjálfarar hafa þó
ekki úrlausnir við öllum bakverkj-
um. Hún bendir á að börn með verki
frá stoðkerfinu séu að verða æ stærri
hópur sem leiti til sjúkraþjálfara.
Megi það rekja til einhæfs álags,
mikillar setu í skóla, við tölvur og við
sjónvarp. Einnig sé töluvert um
álagseinkenni og/eða áverka eftir
hinar ýmsu íþróttir. „Það er mikil-
vægt að taka sem fyrst á kvillum og
verkjum sem upp koma í stoðkerfi
vegna þess að því lengur sem þau
vara án þess að nokkuð sé brugðist
við, því erfiðari eru þau viðfangs,“
segir Sigrún Baldvinsdóttir sjúkra-
þjálfari.
Grindargliðnun er dæmi um
ójafnvægi eða misvægi í stoð-
kerfinu og getur valdið miklum
verkjum og færnisskerðingu.
Orsakir geta verið margskonar,
t.d. mýking á bandvef á með-
göngu, áverki eða rangt álag á
grindina. Greina verður skekkj-
una mjög nákvæmlega og ójafn-
vægi í vöðvum, liðböndum og
bandvef.
Dæmi frá Sigrúnu Baldurs-
dóttur sjúkraþjálfara:
Kona sem kom til meðferðar
14 mánuðum eftir að hún hafði
fætt barn og hafði ekki getað
setið allan þann tíma og átti
mjög erfitt með gang og flest
allar hreyfingar. Hún var með
miklar skekkjur í mjaðmagrind-
inni, m.a. var skekkja á spjald-
beini og við það verða mjaðm-
abeinin tvö mjög óstöðug.
Þetta veldur miklu álagi á öll
liðbönd sem halda mjaðma-
grindinni saman, þau verða
bólgin og gefa mikla verki,
vöðvar slappast og þannig verða
vandamálin víðtækari eftir því
sem tíminn líður.
Hér krefst meðferð aftur
mjög nákvæmrar greiningar og
rétta verður afstöðu beina til að
grindin verði stöðug á ný. En
eins og í þessu tilfelli þá var
vandamálið búið að vera svo
lengi til staðar að það tók mjög
langan tíma að ná viðunandi ár-
angri. Meðhöndla þurfti bólgin
liðbönd og styrkja upp vöðva-
hópa sem höfðu slappast til að
auka stöðugleika mjaðmagrind-
arinnar, kenna rétt göngulag og
fleira til að jafnvægi næðist.
Þessi kona náði fullri færni og
komst aftur til sinnar vinnu, en
vinna hennar krefst mikils álags
á grindina.
Verkir og
grindargliðnun
JAFNRÉTTISHANDBÓK fyrir
starfsfólk skóla er komin út hjá
Námsgagnastofnun en umfjöll-
unarefni þessarar handbókar er
jafnrétti í skólastarfi, skyldur
skólans og ábyrgð í jafnrétt-
ismálum.
Fjallað er um hvernig skólar
setja sér jafnréttisstefnu og sjón-
um beint að jafnrétti kynjanna í
námi og starfi.
Í bókinni er m.a. að finna gát-
lista fyrir kennara, eyðublöð og
hugmyndir að verkefnum í
kennslu. Höfundar bókarinnar
eru Hafsteinn Karlsson og Stef-
anía Traustadóttir en Freydís
Kristjánsdóttir myndskreytti.
Handbókin er unnin í samstarfi
við jafnréttisráð/Skrifstofu jafn-
réttismála og jafnréttisnefnd
Reykjavíkurborgar. Íslandsbanki-
FBA og Samtök atvinnulífsins
styrktu útgáfuna.
Í inngangi bókarinnar stendur
meðal annars: „Allt frá fyrstu tíð
læra börn að athöfnum þeirra eru
gefnar kynbundnar merkingar. Í
samskiptum sínum við aðra reyna
þau hvað það er að vera strákur
og hvað það er að vera stelpa. [...]
Þegar þau byrja í grunnskóla
hafa þau skýra mynd af því
hvernig þau eiga að hegða sér.
Getur verið að strákar og stelp-
ur séu metin eftir ólíkum mæli-
stikum í skólanum og annars
staðar í samfélaginu?“
Ýmsar alhæfingar um stráka
og stelpur eru til sem varla eiga
við rök að styðjast, en eiga e.t.v.
þátt í að viðhalda ríkjandi við-
horfum. Hér eru örfá dæmi um
það:
Stelpur eru rólegar, viðkvæmar
og kjarklitlar. Strákar eru óró-
legir, kjarkmiklir og ódælir en
harðir af sér. Stelpur eru prúðar,
stilltar, sætar og pjattaðar. Strák-
ar eru hávaðasamir, sterkir og
ráðagóðir en tillitssamir.
Handbók um jafnrétti í skólum
AP
Jafnrétti. Skúlptúrinn Karlkyns-
kvenkyns í borginni Offenburg.
skólar/námskeið
tungumál
Enskunám í Englandi
Bjóðum enskunám við einn virtasta
málaskóla Englands. Skólinn sér þér
fyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjöl-
skyldu. Um er að ræða alhliða ensku 18
ára og eldri, viðskiptaensku og ungl-
ingaskóla í júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdóttir
sími 862 6825 eftir kl. 18:00