Morgunblaðið - 16.01.2001, Page 59

Morgunblaðið - 16.01.2001, Page 59
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 59 því að lúta sömu lögmálum og tekjur almennt. Eðlilegt og rökrétt er að öryrkinn (launþeginn) haldi tekjum sínum þótt hann gangi í hjónaband. Ekki er vitað til þess að neinn annar hópur í þjóðfélaginu missi fjárhagslegt sjálfstæði sitt við það eitt að ganga í hjónaband nema að vera kynni námsmenn, en það er efni í aðra grein. Fyrir utan þá stað- reynd að öryrkjum er af þessum ástæðum fyrirmunað að framfæra sjálfa sig og leggja sitt af mörkum til framfærslu fjölskyldu sinnar, er þeim hættar við en öðrum að sæta kúgun í hjónabandi, þar sem þeir eru gjörsamlega háðir maka sínum fjárhagslega. Aðalatriðið er að hjón eru lögum samkvæmt framfærsluskyld gagn- vart mökum sínum, þ.e. fram- færsluskyldan er gagnkvæm. Þeir einstaklingar sem eru fatlaðir og njóta örorkubóta njóta ekki jafn- réttis á við aðra þegna landsins varðandi það að ganga í hjónaband. Með framangreindu skerðingar- ákvæði koma stjórnvöld í veg fyrir að öryrkjar geti uppfyllt þá laga- skyldu sína, skv. VII. kafla hjú- skaparlaga nr. 93/1993, að hjón skuli sjá sameiginlega fjölskyldu sinni farborða. Af framansögðu verður sú álykt- un dregin að framkvæmd sú sem tíðkast varðandi skerðingu tekju- tryggingar vegna tekna maka líf- eyrisþega brjóti í bága við jafnræð- isreglu stjórnarskrárinnar og samræmist ekki ákvæðum mann- réttindasáttmála þeirra sem Ísland hefur fullgilt eða lögfest. Allt frá þjóðveldisöld hafa gilt hér á landi ýmis lagaákvæði um þá sem minna hafa mátt sín í lífsbar- áttunni. Þegar litið er á löggjöf um réttarstöðu fatlaðra á tuttugustu öldinni er það einkennandi fyrir þróunina á þessu sviði, að löggjöfin hefur breyst frá því að litið var á hinn fatlaða sem „óæðri“ veru, sem vegna líkamlegs eða andlegs at- gervis var sviptur nánast öllum réttindum mannlegs samfélags, til þess viðhorfs sem nú er ríkjandi að hinn fatlaði eigi jafnan rétt og aðrir. Að mínu mati hefði verið eðlileg- ast að stjórnvöld hefðu unnið með forystu ÖBÍ að lausn þessa máls og viðurkennt kröfur bandalagsins strax í upphafi og þannig komast hjá tímafrekum og kostnaðarsöm- um málarekstri. Að lokum við ég óska þjóðinni til hamingju með niðurstöðu Hæsta- réttar í þessu mikilvæga máli. Öryrkjadómurinn Framkvæmd á skerð- ingu tekjutryggingar vegna maka lífeyr- isþega, segir Lára Helga Sveinsdóttir, brýtur í bága við jafnræðisregluna. Höfundur er lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.