Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
kjólum,
dressum,
drögtum
og yfirhöfnum
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
20%
aukaafsláttur af öllum
Opið lau.–sun. kl. 15–18, þri.–fim. kl. 20.30–22.30
eða eftir nánara samkomulagi. Ólafur.
Visa- og Euro-
raðgreiðslur
Eitthvert besta úrval landsins af
vönduðum gömlum dönskum
húsgögnum og antikhúsgögnum
Gili, Kjalarnesi
s. 566 8963/892 3041Antikhúsgögn
! "!#$ & !$#$
Strandgötu 11, sími 565 1147
Opið laugardag kl. 10—16
Jakkar frá .........kr. 5000
Buxur frá ..........kr. 2800
Pils frá ..............kr. 2800
Kjólar frá ...........kr. 4800
Blússur frá ........kr. 2800
Vandaður fatnaður á frábæru verði
Líður að lokum
útsölunnar
Á horni Laugavegs og Klapparstígs
sími 552 2515
Sígild verslu
n Tilboðil
Pabbastólar,
mömmustólar,
afastólar og
ömmustólar
Buxur í
líkamsræktina
(Jassbuxur)
Litir: Svart og steingrátt
Verð: 2.095 kr.
Hagkaup - Kringlan
Dreifing: Medico ehf., s. 562 1710.
Smáskór
sérverslun með barnaskó
í bláu húsi við Fákafen - Sími 568 3919, opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
20 - 60%
afsláttur
FLUGRÁÐ, sem er samgönguráð-
herra og flugmálastjóra til ráðu-
neytis um flugmál, hefur lýst sig
mótfallið þeim tillögum um stað-
setningu flugvallar fyrir innanflug-
sflug sem koma fram í nýlegri
skýrslu Stefáns Ólafssonar prófess-
ors. Ítrekar flugráðið þá afstöðu
sína að valið standi aðeins á milli
flugvallar í Vatnsmýrinni og flutn-
ings innanlandsflugsins til Keflavík-
ur.
Flugráð gerir viðamiklar athuga-
semdir við bæði aðferðafræði og
niðurstöðu skýrslu Stefáns. Átelja
þeir hann fyrir að hafa eingöngu
borið saman valkosti á grundvelli
efnahagslegra og samfélagslegra
þátta en gleymt flugtæknilegum at-
riðum. Það sem skipti meginmáli
fyrir flugvöll sé flugöryggið. Að
mati flugráðs er flugvöllur í
Hvassahrauni, suður af Hafnarfirði,
langversti kosturinn út frá flug-
tæknilegum sjónarmiðum en í
skýrslu Stefáns var sá kostur talinn
vænlegastur.
Nálægð við fjöll
framkallar ókyrrð
Flugráð bendir á að engar sér-
stakar veðurathuganir hafi verið
gerðar vegna mögulegs flugvallar í
Hvassahrauni. Flugmálastjórn lét
gera athugun og flugprófanir á
þessu svæði fyrir 30 árum og nið-
urstaðan var að svæðið væri ekki
heppilegt fyrir flugvöll sem ætti að
sinna áætlunarflugi. Ástæðan að
sögn flugráðsmanna er nálægð við
fjöll sem mynda hindranir og búa til
ókyrrð.
Flugráð gagnrýnir skýrslu Stef-
áns fyrir fleiri þætti en flugöryggi.
Meðal þess er að flugráð telur það
sérkennilegt að allir þættir, sem
bornir eru saman hjá Stefáni, hafi
sama vægi. Þá bendir flugráð á að
Hvassahraun sé miðja vegu á milli
Reykjavíkur og Keflavíkur. Ná-
lægðin við Keflavíkurflugvöll hljóti
að vekja upp spurningar um skyn-
semi fjárfestingarinnar. Það sé
einnig álitamál hvort flugrekendur,
sem eru með flugrekstur á Kefla-
víkurflugvelli, muni telja sér hag í
því að byggja upp aðstöðu á tveim-
ur nánast samliggjandi flugvöllum.
Flugráð telur það ekki ýkjur sem
fram komi í skýrslunni að saman-
burður á valkostum sé ekki hávís-
indalegur.
„Það er mjög auðvelt að skilja
það sjónarmið að staðsetning
Reykjavíkurflugvallar veki upp
spurningar um skipulagsmál höfuð-
borgarinnar. Það er hins vegar
kominn tími til að skoða málið raun-
hæft og borgarbúar og helst lands-
menn allir greiði atkvæði um skýra
og raunhæfa kosti, sem að mati
flugráðs eru Reykjavíkurflugvöllur í
Vatnsmýri eða að innanlandsflug
flytjist til Keflavíkur,“ segir í sam-
þykkt flugráðs.
Flugráð gagnrýnir skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors
Telur Hvassahraun
langversta kostinn
RÍKISKAUP hafa ekki enn tekið
afstöðu til tilboðanna sem bárust
á dögunum í viðgerð á tveimur
varðskipum Landhelgisgæslunn-
ar. Lengri tíma hefur tekið að
afla gagna frá lægstbjóðendum
en reiknað var með og frestur til
að skila inn umbeðnum gögnum
hefur verið framlengdur í tví-
gang.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ríkiskaupum hafa nægjanleg
gögn nú borist til að meta fjár-
hagslegt og tæknilegt hæfi lægs-
tbjóðenda, sem voru skipasmíða-
stöðvar í Póllandi og á Spáni, og
leggja umsögn fyrir verkkaupa,
þ.e. ríkissjóð. Verður það gert
eftir helgina.
Tilboðin sem bárust falla úr
gildi næstkomandi föstudag og
þarf ákvörðun þá að liggja fyrir í
síðasta lagi, verði gildistími til-
boða ekki framlengdur.
Viðgerð á tveimur varðskipum
Styttist í niður-
stöðu Ríkiskaupa