Morgunblaðið - 27.01.2001, Síða 64
64 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 8 og 10.15. B. i. 14.
Vit nr. 186Sýnd kl. 2. ísl tal. Vit nr. 144.
Sýnd kl. 2 og 4. ísl tal Vit nr. 169
Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Vit nr. 178
Sýnd kl. 1.45 og 3.50. Ísl tal. Vit nr. 179
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16 ára. Vit nr. 185.Sýnd kl. 6, 8, 10 og 11.20. Vit nr. 190.
Frábær grín- og ævintýramynd fyrir alla
fjölskylduna. Vönduð Íslensk talsetning með
mörgum okkar bestu leikurum.
í i i ll
j l l . Í l l i
l i .
Sjötti dagurinn
Þeir klónuðu
rangan mann
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr. 177
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit nr. 167
Sýnd kl. 1.45 3.50 og 5.55.Vit r. 168
www.sambioin.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal.Vit nr. 183.
kl. 2, 4 og 6. enskt tal. Vit nr. 187.
B R I N G I T O N
"Þú hélst það væri óhætt að fara aftur inn í
skóginn.." og "Gleymdu því sem
þú hefur áður séð, því nú er sannleikurinn
hræðilegri en menn héldu!"
Golden Globe
fyrir besta leik
Var á toppnum í
Bandaríkjunum í 3 vikur.
Mbl
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
HÁSKÓLABÍÓ
Hagatorgi sími 530 1919
þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Sýnd kl. 8 og 10. .B. i. 12.
„fyndin og skemmtileg“
H.K. DV
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SV Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Með íslensku tali.
ÓHT Rás 2
DV
INGVAR E. SIGURÐSSON
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON
EGGERT ÞORLEIFSSON
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
SV Mbl
DAGUR
ÓFE Sýn
ÓHT Rás 2
Sýnd kl.3, 6, 8 og 10.
FRUMSÝNING
Golden Globe
fyrir besta leik
Var á toppnum í
Bandaríkjunum í 3 vikur.
FRUMBURÐUR söngkonunnar
Celine Dion kom í heiminn á
sjötta tímanum á fimmtudaginn,
þremur vikum fyrir tímann. Son-
urinn heitir Rene Charles og vó
um þrjú kílógrömm. Samkvæmt
fréttatilkynningunni heilsast
móður og barni „undursamlega
vel“.
Dion og eigin- og umboðsmaður
hennar, Rene Angelil, hafa verið
að reyna að eignast barn í nokkur
ár og er söngkonan nú í þriggja
ára hvíldarfríi frá iðju sinni til
þess að sinna fjölskyldunni. Ang-
elil var viðstaddur fæðinguna
ásamt systur Celine.
Hjónin greindu frá því í sjón-
varpsviðtali í desember síðastliðn-
um að þau hefðu stuðst við gervi-
frjóvgun og ættu annað frjóvgað
egg sem biði þeirra á læknastofu í
New York.
„Það þýðir þó ekki að um sé að
ræða eineggja tvíbura,“ sagði
Dion m.a. í viðtalinu. „En þau
voru frjóvguð á sama tíma.“
Þegar þulan spurði svo hvort
hjónin hygðu á frekari barneignir
svaraði söngkonan:
„Já, því við eigum nú þegar
annað barn sem bíður okkar í
New York, en það er í dvala eins
og er. Ég gæti ekki gengið í gegn-
um lífið vitandi af barninu mínu
þarna.“
Celine Dion eignast barn
Reuters
Celine Dion og eiginmaður hennar, Rene Angelil,
eignuðust son á fimmtudaginn.
Á annað á lager
ÓKEI, ég fíla Jennifer Lopez. Hún er
alvöru senjoríta, fædd og uppalin í
spænskumælandi Bronx-hverfi New
York-borgar. Hún er nánast jafnvíg á
leik, söng og dans – og tekur æ virk-
ari þátt í gerð platna sinna hvað varð-
ar laga og textasmíðar. Hún er auk
þess titluð sem framleiðandi þeirra.
Hún gerir sem sagt margt fleira en að
mæta á verðlaunaafhendingar í kjól-
um sem rétt hylja geirvörturnar.
Svo er hún fín leikkona. Það var
raunverulegt neistaflug milli hennar
og George Clooney í kvikmynd Stev-
en Soderberghs, Out Of Sight. Ef þú
hefur ekki séð þessa mynd, drífðu í
því. Stelpan verður þó að passa sig ei-
lítið á hlutverkunum sem hún velur
sér, því t.d. The Cell var ekki að virka.
Vonandi gefur The Wedding Planner
leikferli hennar byr undir báða.
„I can sing too“ er frasi sem á vel
við Jennifer Lopez. Það hlýtur að
vera hreint brjálæði að sinna kvik-
mynda- og poppferli samtímis. Þegar
við bætast nokkrar matskeiðar af
kjaftasögum og erfiðleikum í einkalíf-
inu má með sanni segja að Jennifer
blessunin sé uppteknasta kona brans-
ans þessa dagana. Púff... daddy!
Jennifer var grjótheppin með að-
stoðarfólk á sinni fyrstu plötu, On
The 6. Lagið „If You Had My Love
And I Gave You All My Trust“ eftir
Rodney Jerkins reyndist vera réttur
hestur að veðja á og smáskífan seldist
eins og heitar nærbuxur, af Jennifer.
Á eftir fylgdu lög eins og „Feelin’ so
good“, „Let’s Get Loud“ (salsaslagari
eftir Gloriu Estefan) og svo fullkomn-
asta popplag í heimi: „Waiting For
Tonight“.
On The 6 var platan sem enginn
hafði beðið eftir – og þar sem hún
reyndist vera minniháttar meistara-
verk, er komið að erfiðasta verkefni í
heimi – plötu númer tvööööö!
Og hvað gerir Jennifer? Jú, hún
tekur nákvæmlega ENGA
ÁHÆTTU. Þessi nýja plata, J. Lo, á
sko að hitta í mark hjá öllum mark-
hópum sem á annað borð kaupa plöt-
ur þessi dægrin: Hér er að finna
R&B, danspopp, salsa og latín, ball-
öður og hreina rúmstokkstónlist fyrir
súludansara og velunnara þeirra.
Slæmu fréttirnar: Platan líður fyrir
það að vera unnin í miklum flýti í
mörgum heimshornum (Stokkhólmi,
New York, London og Miami) milli
þess sem Jennifer þarf að hlaupa í
myndatökur fyrir enn eina bíómynd-
ina og láta loka sig í fangaklefa útaf
byssuglöðum kærasta. Hljómurinn er
frekar grunnur og þunnur þrettándi,
því miður. Hljóðblöndunin er klæð-
skerasniðin að samþjöppun útvarps-
stöðvanna. Maður verður að hækka
þetta í botn svo það nái að njóta sín.
Svo er það svo fríkað að Jennifer
syngur ekki bara eins og heldur NÁ-
KVÆMLEGA eins og Janet Jack-
son. Allar „fraseringarnar“ og radd-
beitingin ... allt eins. Hvað ætli Janet
eigi eftir að segja? Stundum er geng-
ið svo langt í að stela úr skapandi
gnægtarbúri Jackson að maður
hreinlega fer hjá sér. Dæmi um þetta
eru lög eins og „Come Over“ og
„Secretly“.
Góðu fréttirnar: Sumir vilja ekki
heyra neitt annað en klisjukennt hnoð
þar sem engin áhætta er tekin hvað
varðar laga- og textasmíðar. Þetta er
pottþétt plata fyrir þær manngerðir.
Klisjukennt popp á það á hættu að
hitta í mark hjá manni og það eru
nokkur lög hér sem undirritaður er
búinn að vera með á heilanum. Um
leið og maður fær eitthvað á heilann,
þá á maður að gefa því 3 stjörnur.
J. Lo er í raun tvær plötur í senn.
Þetta eru jú heil 15 lög, sem skiptast í
fyrrgreint froðupopp og svo sjóðheitt
latín. Popplögin sem ég veðja á eru
„Love Don’t Cost A Thing“, „I’m
Real“, „Walking On Sunshine“ og
„Play“. Arnthor Birgisson er skráður
höfundur að síðastnefnda laginu.
Hver er þessi Íslendingur sem vinnur
við að búa til popp í Stokkhólmi?
Aldrei heyrt um kauða fyrr.
Latín- og salsalögin eru sér á parti
á þessari plötu og fara rödd Jennifer
svo miklu miklu betur, enda senjorít-
an þar á heimavelli. Lögin „Ain’t It
Funny“, „Carino“, „Dame“ og „Si Ya
Se Acabó“ eru virkilega fín og sjálfum
sér samkvæm. Svo verður auðvitað
gert nóg af endurhljóðblöndunum af
þessum lögum og þau öðlast nýtt líf
og allt verður brjálað á dansgólfinu
og Jennifer „rúlar“!
ERLENDAR
P L Ö T U R
Páll Óskar tónlistarmaður
fjallar um nýútkomna aðra plötu
leik- og söngkonunnar Jennifer
Lopez sem heitir J. Lo.
Reuters
Jennifer Lopez gerir fleira en
að mæta á verðlaunaafhending-
ar í kjólum sem rétt hylja geir-
vörturnar, að mati Páls Óskars.
Senjoríta
í svaka gír