Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALOE VERA
COLON CLEANSE
100%
Aloe Vera,
náttúrulegur
lífrænn vökvi.
Hreinsandi,
kemur reglu á
meltingarveginn,
eykur innri
vellíðan.
ALOE VERA
DIGESTIVE AID
100%
Aloe Vera,
náttúrulegur
lífrænn vökvi.
Með náttúru-
legum meltingar-
lífhvötum, bætir
meltinguna og
eykur vellíðan.
ALOE VERA
CRANBERRY
100%
Aloe Vera,
náttúrulegur
lífrænn vökvi.
Hámarks virkni
gegn ýmsum
meltingar-
truflunum. Með
trönuberja-
bragði.
ALOE VERA
VÖKVI
100%
Aloe Vera,
náttúrulegur
lífrænn vökvi.
Hámarks virkni
gegn ýmsum
meltingar-
truflunum.
VOTTAÐ AF ALÞJÓÐA ALOE VERA VÍSINDARÁÐINU
FÆST Í APÓTEKUM OG HEILSUBÚÐUM -
FÁIÐ RÁÐGJÖF FAGFÓLKS Á ÚTSÖLUSTÖÐUM
Innflytjandi MEDICO ehf. Sími 552 0944.
Hvenær varð fyrst vart við
kúariðu, hvernig smitast
hún í kýr og hvaða áhrif hef-
ur hún á þær?
Svar: Kúariðu (á ensku BSE,
bovine spongiform encephalo-
pathy) var fyrst lýst í nautgrip í
Bretlandi árið 1986 en nú er álitið
að hún hafi ef til vill komið upp á
áttunda áratugnum. Vegna þess
hve meðgöngutími smits er langur
(fimm ár að meðaltali) áður en
taugaeinkenni koma fram er erfitt
að tímasetja þetta nákvæmlega.
Kúariðan stafar eins og aðrir
príon-sjúkdómar (til dæmis sauð-
fjárriða) af óeðlilegu smitandi
prótíni, príon-prótíni, en ekki af
veiru. Ári seinna (1987) var ljóst
að faraldur var í uppsiglingu og
það leiddi til þess að 1988 var
bannað að nota sláturafurðir í
beina- og kjötmjöl fyrir jórturdýr í
Bretlandi. Þannig var reynt að
stöðva vítahring smits gegnum
fóður. Samt sem áður hafa fundist
smituð dýr sem fæddust eftir að
fóðurbannið var sett og er það lík-
lega vegna þess að breskir bænd-
ur fengu að klára birgðirnar og
síðan hefur mengað fóður borist í
annað fóður sem ekki er framleitt
úr jórturdýrum. Þess má geta að á
Íslandi setti Páll A. Pálsson, þá-
verandi yfirdýralæknir, slíkt bann
árið 1978, langt á undan öðrum
Evrópuþjóðum. Ekki er ljóst
hvernig fyrsta kúariðusmitefnið
varð til. Lengi var álitið að kinda-
riða hefði borist í fóður handa
kúm, en margir vísindamenn efast
um að svo sé. Tilraunir með mýs
sem sprautaðar eru með kúariðu
annars vegar og kindariðu hins
vegar sýna að um er að ræða mis-
munandi stofna smitefnis með ólík
sérkenni. Kúariða gæti þess vegna
átt upptök sín í nautgrip.
Kúariðan smitast eingöngu með
fóðri sem inniheldur sláturafurðir
af nautgripum. Faraldsfræðilegir
útreikningar sýna að mengað fóð-
ur er eina smitleiðin. Smitefnið er
smitandi prótín (príon-prótín) á
óeðlilegu formi sem er mjög þolið
gagnvart hita (132°C blauthita) og
niðurbrotsensímum. Tilraunir hafa
sýnt að eitt gramm af sýktum vef
nægir til þess að smita nautgrip.
Við smit er príon-smitefnið tekið
upp gegnum meltingarveg og
berst þaðan upp í mænu og heila.
Við upptöku á óeðlilegu príon-
prótíni „ræðst“ aðkomuprótínið í
smitefninu á eðlilegt príon-prótín í
heila og öðrum vefjum smitaða
dýrsins og umbreytir því í sína
mynd og þannig koll af kolli. Þá er
dýrið farið að framleiða sitt eigið
smitefni í heila og mænu þar sem
það safnast upp. Lendi dýrið í
fæðukeðjunni með fóðri smitar það
aðra nautgripi út frá sér. Engar
vísbendingar eru um að kúariða
smitist milli dýra beint eins og
sauðfjárriðan. Þess vegna ætti að
vera auðvelt að útrýma kúariðu
þegar hringrásin er stöðvuð enda
hrapaði tíðni kúariðu hratt í Bret-
landi eftir að bann var sett á notk-
un beina- og kjötmjöls úr jórt-
urdýrum árið 1988. Þegar
faraldurinn stóð sem hæst árið
1992 fundust 2.000 ný tilfelli á
viku. Nú er faraldurinn að fjara
hægt út í Bretlandi með 50 tilfelli
á viku á síðasta ári og gert er ráð
fyrir 15 tilfellum á mánuði í lok
ársins 2002. Í löndum Evrópusam-
bandsins hafa menn áhyggjur af
að kúariða eigi greiða leið að fólki
ef hún berst í sauðfé, samanber
tengslin milli kúariðu og nýs af-
brigðis af Creutzfeldt-Jacob-
sjúkdómnum. Hins vegar bendir
ekkert til þess að sauðfjárriða ber-
ist í fólk beint.
Eftir smit er meðgöngutími
sjúkdómsins að meðaltali 5 ár án
nokkurra einkenna. Þegar heila-
skemmdir hafa náð vissum þrösk-
uldi koma einkennin fram: Hegð-
unarbreytingar, skyntruflanir og
óeðlilegar hreyfingar. Fyrst í stað
eru dýrin tortryggin og hrædd og
jafnvel árásargjörn („mad cow“).
Dýrin virðast vera ofurnæm á
hljóð og snertingu. Einnig eru
kyrrstaða og hreyfingar óeðlilegar,
sérstaklega riða þau að aftan. Eft-
ir að fyrstu einkenni koma fram
lifir dýrið ekki nema frá tveimur
vikum til sex mánaða ef því er
ekki slátrað. Flest tilfelli í Bret-
landi fundust í mjólkurkúm á aldr-
inum 3–6 ára. Hjá þeim hrapar
nytin og dýrin horast mjög þótt
lystin sé jafnmikil og áður. Engin
meðferð er til og ekki er hægt að
bólusetja gegn kúariðu frekar en
öðrum riðusjúkdómum. Vegna
þess að aðrir sjúkdómar, til dæmis
hundaæði og eitranir, geta gefið
lík upphafseinkenni er sjúkdóms-
greining ekki örugg fyrr en við
krufningu. Þá koma í ljós svamp-
kenndar vökvabólur í heila og
mænu og hægt er að lita upp-
söfnuð óeðlileg príon-prótín.
Ástríður Pálsdóttir, lífefnafræðingur
hjá Tilraunastöð HÍ í meinafræði
að Keldum.
Af hverju eru annar og þriðji
stærsti kaupstaður landsins
við hliðina á höfuðborginni
á Íslandi?
Svar: Þegar skoðuð er saga
byggðar á Íslandi almennt og sér í
lagi á höfuðborgarsvæðinu þurfa
menn að byrja á að gera sér ljóst
að aðstæður til þéttbýlismyndunar
eru sérlega góðar kringum
Reykjavík. Þar er eitt af allra
bestu hafnarstæðum landsins,
heitt vatn og kalt innan seilingar,
nóg landrými á láglendi, hentug
flugvallarstæði, milt veðurfar og
svo framvegis. Staðurinn liggur
auk þess vel við samgöngum á
landi við sveitir Borgarfjarðar og
landbúnaðarhéruð Suðurlands,
sem eru annars að mestu hafnlaus
frá náttúrunnar hendi. Einnig
liggur Reykjavík dável við sam-
göngum á sjó til útlanda og þar er
sjaldan hafís. Ýmsir staðir á land-
inu standa að sjálfsögðu betur en
höfuðborgarsvæðið í einhverjum af
þessum atriðum, en enginn í þeim
öllum. Auk þess má nefna að Ís-
land ber ekki nema eina stórborg
með þeirri þjónustu sem krafist er
nú á dögum.
Umhugsunarvert er að sum
þeirra atriða sem nefnd voru hér á
undan hafa einmitt komið við sögu
þegar Ingólfur Arnarson valdi sér
bústað, til dæmis höfnin og að-
gengi frá sjó, heita vatnið, land-
rýmið og samgöngurnar. Þegar
komið er upp að Suðausturlandi og
siglt til vesturs með landinu dreg-
ur höfuðborgarsvæðið greinilega
að sér athygli sæfarans sem hygg-
ur á búsetu. Þannig er engan veg-
inn víst að staðarval Ingólfs hafi
verið tilviljun. Altítt er í heiminum
að tiltölulega stór sveitarfélög
myndist utan við kjarnann í höf-
uðborgum eða stórborgum. Slíkt á
sér oft sögulegar ástæður; á svæð-
inu hafa kannski í upphafi verið
mörg þorp eða smærri byggðir en
þær hafa svo stækkað og að lokum
vaxið saman með meiri og þéttari
byggð. Hér skulum við hafa hug-
fast að fólksflutningar til höf-
uðborga og svæða kringum þær
eru ekki séríslenskt fyrirbæri.
Síðan er það mjög upp og ofan
hvernig sveitarfélögin á svæðinu
eru skipulögð þegar upp er staðið.
Stundum haldast gömlu sveit-
arfélögin eða einhver þeirra, að
minnsta kosti að nafninu til, þó að
aðalborgin hafi kannski vaxið allt í
kringum þau og sjálfstæðið því
orðið takmarkað í reynd. Sem
dæmi um slíkt má taka sveit-
arfélagið Frederiksberg sem er í
rauninni hluti af Kaupmannahöfn
og algerlega samvaxið henni en
um leið eitt af stærri sveit-
arfélögum Danmerkur. Í stór-
borgum eins og London, New
York og Boston eru mörg dæmi
um ýmiss konar útborgir af þess-
um toga.
Í öðrum tilvikum verður ein-
hvers konar sameining sveit-
arfélaga og stundum fer samein-
ingin eftir því um hvaða verksvið
er að ræða. Þá eru jafnvel mynd-
aðar misjafnlega yfirgripsmiklar
stjórneiningar á svæðinu þannig
að minnstu einingar koma saman í
öðrum stærri og svo framvegis.
Sem dæmi um samstarf án sam-
einingar má nefna almennings-
samgöngur þar sem algengast er í
seinni tíð að sveitarfélög á stór-
borgarsvæðum hafi víðtækt sam-
starf um þær þannig að notandinn
verði þess varla var að hann sé að
fara úr einu bæjarfélagi í annað. Í
þessu er höfuðborgarsvæðið und-
antekning frekar en regla, að
minnsta kosti þegar þetta er skrif-
að.
Stundum má greina vissan tví-
skinnung þegar fjallað er um stór-
borgir af þessu tagi og stærð
þeirra borin saman. Annars vegar
vilja menn þá oft að borgin teljist
sem stærst og taka þá allar út-
borgirnar með en hins vegar er
sveitarfélagið sjálft alls ekki svo
stórt. Úr þessu reyna menn síðan
að leysa með því að tilgreina
tvenns konar stærð borganna,
annars vegar kjarnasveitarfélagið
sjálft, stundum með einhverri við-
bót, og hins vegar allt svæðið með
útborgum.
Flestum Íslendingum mun vera
ljóst af hverju Hafnarfjörður er,
að minnsta kosti ennþá, annað
sveitarfélag en Reykjavík. Við vit-
um til dæmis flest að Hafn-
arfjörður og Reykjavík eru bæði
tiltölulega gamlir þéttbýliskjarnar
á íslenskan mælikvarða. Mörg
okkar vita líka að í eina tíð var
Hafnarfjörður jafnvel stærri og
mikilvægari kaupstaður en
Reykjavík. En kannski vefst okkur
tunga um tönn ef við eigum að
svara þessari spurningu um önnur
sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins.
Varla þarf þó að skýra það sér-
staklega af hverju Kópavogur var í
öndverðu annað sveitarfélag en
Reykjavík, því að einhvers staðar
hlutu mörk Reykjavíkur að liggja.
Hins vegar má auðvitað spyrja af
hverju Kópavogur og Reykjavík
hafi ekki sameinast einhvern tím-
ann á þeim áratugum sem liðnir
eru frá því að það kom fyrst til
greina. Ástæðurnar eru sjálfsagt
margar, þar á meðal sams konar
tilfinningalegar ástæður og við
sjáum oft að verki gegn samein-
ingu sveitarfélaga. En einnig er
vert að hafa í huga að hlutföll milli
stjórnmálaflokka hafa frá önd-
verðu verið talsvert önnur í Kópa-
vogi en í Reykjavík. Sameining
hefði því getað raskað valda-
hlutföllum. Þetta atriði kann raun-
ar að koma við sögu víðar því að
svo mikið er víst að flokkahlutföll
eru oft mismunandi eftir sveit-
arfélögum á stórborgarsvæðum.
Höfundur þakkar Trausta Vals-
syni góðar ábendingar um nokkur
atriði svarsins.
Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í
vísindasögu og eðlisfræði og ritstjóri
Vísindavefjarins.
Vísindavefur Háskóla Íslands
Hvaða áhrif
hefur kúariða?
Að undanförnu hefur umfjöllunarefni á
Vísindavefnum verið af ým,su tagi. Svör
hafa verið birt um hafnartíma, blýanta, kúariðu, danskt fet, muninn
á teini og öxli, aðgerðir til lækninga á kinnholubólgu, fjölda HIV-
smitaðra í heiminum, hver það er sem er sjálfum sér næstur, ástæð-
ur fyrir hlutfallslega háum íbúafjölda höfuðborgarsvæðisins, hvers
vegna ekki er lofthjúpur á Merkúríusi, hvers vegna ljós kviknar
strax og ýtt er á takka, hvort gæludýr geti smitast af Creutzfeldt-
Jakob-sjúkdómnum, hvort til séu álar sem gefa frá sér rafstraum og
hvort lögfræðinám sé forritun á ákveðnum hugsunarhætti. Svarið
um þann sem er sjálfum sér næstur og fyrra svar um kindur í Fær-
eyjum virðast hafa vakið sérstakan áhuga, líklega af því að þau eru
í léttum dúr.
VÍSINDI
Morgunblaðið/Golli
Við tjörnina í Reykjavík.